Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 41

Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Undanfarna tvo daga hef ég rætt við tvær nýjustu lands- liðskonur Íslands í fótbolta. Annars vegar Natöshu Anasi og hins vegar Berglindi Rós Ágústsdóttur. Birtust viðtöl mín við þær báðar á mbl.is. Natasha fékk íslenskan rík- isborgararétt á síðasta ári og er því nýorðin lögleg með landsliðinu. Það var gaman að heyra hversu stoltur Íslend- ingur hún er orðin og hve miklu máli það skipti fyrir hana að fá kallið í landsliðið. Hún átti ekki endilega von á því að fá kallið, enda var fót- boltinn ekki í forgangi þegar hún sótti um ríkisborgararétt. Hún hefur verið búsett hér á landi síðan 2014, á íslenskan eiginmann og dóttur sem fæddist á Íslandi. Það er ljóst að hún á erindi í landsliðið, enda lék hún ótrúlega vel með Keflavík síðasta sumar, þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr efstu deild. Berglind verður 25 ára í sumar og var hún að fá kallið í A-landsliðið í fyrsta skipti. Það sem mér þótti frekar fyndið í hennar tilviki var að enginn hjá KSÍ lét hana vita. Fékk hún hamingjuóskir frá vinkonu sinni, án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Þegar hún átt- aði sig á því að hún hefði feng- ið kallið tók við mikil gleði. Berglind hefur spilað virkilega vel með Fylki undanfarin ár og verið fyrirliði liðsins. Margir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í dag hefja landsliðsferilinn á táningsaldri og telst Berglind frekar gömul þegar kemur að fyrsta kalli í landsliðið. Það ætti að gefa öðrum leikmönnum á hennar aldri í deildinni heima aukna von um að góð frammistaða skili þeim sæti í A-landsliðinu. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Úrslitin ráðast í Geysisbikarnum í körfuknattleik í Laugardalshöll- inni í dag. Úrslitaleikur karla á milli Stjörnunnar og Grindavíkur fer fram klukkan 13.30 og klukkan 16.30 eigast við KR og Skallagrím- ur í úrslitaleik kvenna. KR vann Val 104:99 eftir fram- lengdan leik og mikla spennu á fimmtudag en Skallagrímur lagði Hauka að velli í síðari undan- úrslitaleiknum 86:79. Morgunblaðið hafði samband við Þóru Kristínu Jónsdóttur, leikstjórnanda Hauka og landsliðsins, og fékk hana til að velta fyrir sér úrslitaleiknum á milli KR og Skallagríms þrátt fyrir að hún væri að sleikja sárin eftir tapið kvöldið áður. Nærgætni er takmörkuð hjá fjölmiðlum en Þóra brást vel við þessari bón. „Mér finnst kannski KR vera með sterkara lið á heildina litið. Er með fleiri leikmenn sem geta komið inn á og lagt mikið af mörkum. Skallagrímur er með tvo leikmenn sem eru hrikalega sterkir eins og sást á móti okkur: Keira Robinson og Emilie Sofie Hesseldal. Þær eru dæmi um leikmenn sem geta ráðið úrslitum. Ef KR tekst að stöðva þær held ég að KR geti tekið þenn- an leik. KR er einnig með mjög flotta leikmenn eins og Hildi, sem er góð bæði í vörn og sókn. Hún ætti að mínu mati að geta ráðið ágætlega við Emilie,“ bendir Þóra á, en þar gæti orðið áhugaverð rimma. Þóra Kristín á ekki von á því að undanúrslitaleikirnir sitji mikið í leikmönnum þótt aðeins sé einn dagur á milli í hvíld. Leikur KR og Vals var til dæmis afar spennandi og fór í framlengingu. „Ég held að það skipti ekki miklu máli. Ef þú kemur tilbúin að vinna er það aðalatriðið í úrslita- leikjum. Í bikarkeppninni getur hins vegar allt gerst og einbeit- ingin þarf að vera í lagi. Það getur verið misjafnt hvort leikmenn finna sig í svona leikjum en mér finnst KR-ingar búa yfir fleiri vopnum og meiri breidd af varamannabekkn- um. Þær geta fengið hjálp frá fleir- um.“ Þóra segir að möguleikar Skalla- gríms felist í að halda aftur af lykilmönnum KR: Hildi Björgu Kjartansdóttur, Danielle Rodriguez og Sonju Orozovic. „Eins og sást í undanúrslitum er KR með þrjá leikmenn sem eru miklir skorarar. Það þarf að halda aftur af þeim til að eiga möguleika á móti KR. Þær voru sjóðandi heitar á móti Val fyr- ir utan þriggja stiga línuna. Þá láta þær örugglega á það reyna á morg- un. Ef það gengur ekki leita þær að Hildi nær körfunni og fara í annars konar sóknarútfærslur. Hún er lykilmaður og þegar Hildur og Danielle spila vel saman er erfitt að eiga við KR-liðið. Ef það gerist eins og á móti Val held ég að þetta verði erfitt fyrir Skallagrím,“ sagði Þóra Kristín Jónsdóttir enn frem- ur. Fleiri vopn í vopnabúri KR  Þóra Kristín telur KR vera sigur- stranglegra liðið í úrslitaleiknum Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikilvægar Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir verða með reyndari leikmönnum á vellinum í úrslitaleiknum. Wolves og Leicester skildu jöfn, 0:0, er þau mættust í ensku úrvalsdeild- inni í fótbolta í gærkvöldi. Stigið nægði Wolves til að fara upp fyrir Everton og Manchester United og í 7. sæti. Leicester mistókst hins veg- ar að komast upp fyrir Man. City og upp í 2. sætið. Wolves var töluvert nær því að vinna leikinn; Willy Boly skoraði mark sem var dæmt af vegna afar naumrar rangstöðu og Raúl Jiménez fór illa með afar gott tækifæri. Hamza Choudhury hjá Leicester fékk rautt spjald á 76. mínútu en það kom ekki að sök. Wolves upp fyrir United og Everton AFP Grannar Grannarnir í Wolves og Leicester gerðu jafntefli. Janus Daði Smárason, landsliðs- maður í handknattleik, var í gær útnefndur leikmaður 11. umferðar í Meistaradeild Evrópu. EHF, Hand- knattleikssamband Evrópu, stend- ur fyrir valinu. Janus skoraði sex mörk í 26:26-jafntefli Aalborg gegn Pick Szeged í Ungverjalandi síð- asta sunnudag og átti stóran þátt í að liðið krækti í mikilvægt stig á útivelli. Aalborg hefur þegar tryggt sér sæti í sextán liða úrslit- um deildarinnar, en liðið er í fjórða sæti af átta liðum í A-riðli með 11 stig úr 11 leikjum. Selfyssingurinn valinn sá besti Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsso Bestur Janus Daði Smárason var valinn bestur í Meistaradeildinni. Morgunblaðið leitaði til Einars Árna Jóhannssonar, þjálfara Njarðvíkur, til að spá í spilin fyrir úrslitaleik karla. Einar segir að í ljósi frammi- stöðunnar í vetur sé Stjarnan að sjálf- sögðu sigurstrangleg. „Stjörnuliðið hefur spilað mjög vel í vetur. Í því ljósi er fátt sem mælir gegn því að það vinni þennan titil ef ég á að vera alveg heiðarlegur. Frammistaða liðsins í heild sinni hef- ur verið mjög góð í vetur og ofan á það léku leikmenn Stjörnunnar mjög vel gegn sterku Tindastólsliði í und- anúrslitunum í vikunni. Á hinn bóg- inn hafa Grindvíkingar átt erfitt upp- dráttar í vetur en hafa þó sýnt betri frammistöðu undanfarið. En þeir eru litla liðið í þetta skiptið.“ Stjarnan vann þrettán leiki í röð þar til á dögunum þegar liðið fékk óvænt slæman skell gegn Val í deild- inni. Var ef til vill gott fyrir Stjörnuna að sá leikur skyldi tapast rétt fyrir bikarleikina? „Ég held að það hafi verið mein- hollt fyrir þá. Það er einfaldlega lík- legra að maður kafi djúpt með sjálf- um sér þegar illa fer heldur en þegar maður er á sigurgöngu. Því fylgir ákveðin vellíðan þegar vel gengur. Þeir fóru ansi langt niður gegn Val, sem kom manni auðvitað á óvart. Mögulega hefur hugur Stjörnu- manna verið kominn í höllina og svo eru Valsmenn á uppleið. Það hefur sett Garðbæingana upp á tærnar aft- ur að tapa loksins leik. Stjörnumenn unnu reyndar marga seiglusigra í vetur án þess að spila mjög vel. Þeir voru án Hlyns í nokkr- um leikjum og voru án Bandaríkja- manns í einhverjum leikjum. Mér finnst það vera styrkleikamerki hjá þeim að ná í stig við slíkar aðstæður. Þeir hafa því ekki spilað frábærlega í allan vetur þótt þeir hafi átt slíka leiki á milli.“ Óútreiknanlegir leikmenn Stjarnan er í efsta sæti Dominos- deildarinnar en Grindavík er í 8. sæti eftir sveiflukennda frammistöðu í vetur og ýmis forföll. Liðið saknar Dags Kárs Jónssonar sem er meidd- ur og í dag tekur Seth Christian LeDay út leikbann. Í hverju felast möguleikar Grindavíkur að mati Ein- ars? „Þetta liggur í því að Grindavík þarf til að byrja með að hitta á góðan dag. Liðið þarf að fá mikið framlag frá strákum sem eru svolítið óút- reiknanlegir. Ingvi, Sigtryggur Arn- ar og Ólafur geta verið fjandanum erfiðari þegar sá gállinn er á þeim. En þeir geta verið sjálfum sér verstir. Ég held að þessir þrír séu lykillinn fyrir Grindavík. Grindvíkingar þurfa að láta vaða. Enginn utan Grindavík- ur gerir ráð fyrir því að þeir eigi möguleika í þessum úrslitaleik. Ég hef sjálfur farið með Þór Þorlákshöfn í úrslit þar sem við áttum ekki að eiga möguleika en leikurinn varð engu að síður spennandi. En það er ekki nóg að Grindavík spili vel. Stjarnan er það gott lið að Garðbæingar þurfa að eiga slæman dag. Ekkert lið hefur verið betra en Stjarnan í vetur þegar leikirnir eru hraðir og því er ekki víst að slíkt út- spil myndi hjálpa Grindavík. Stjarnan er með einstaklinga sem eru feyki- lega góðir skorarar. Arnari hefur tek- ist að efla Tomsick en ekki voru allir sannfærðir um að hann myndi passa inn í Stjörnuna þótt hann hafi verið frábær hjá Þór í fyrra. Hrósa má þeim báðum fyrir hversu vel Tomsick hefur leikið fyrir Stjörnuna. Mikið þarf að ganga á til að Grindavík vinni. Stjörnumenn eru lík- legir til að verða bikar- og deildar- meistarar annað árið í röð en sem áhugamaður um íþróttina vonast maður að sjálfsögðu eftir jöfnum leik.“ kris@mbl.is Stjarnan líkleg til að vinna aftur  Stjarnan er sigurstranglegra liðið í úrslitaleiknum að mati Einars Árna Morgunblaðið/Árni Sæberg Bakverðir Nikolas Tomsick og Ingvi Þór Guðmundsson mætast í dag. England Wolves – Leicester ................................... 0:0 Staða efstu liða: Liverpool 25 24 1 0 60:15 73 Manch.City 25 16 3 6 65:29 51 Leicester 26 15 5 6 54:26 50 Chelsea 25 12 5 8 43:34 41 Sheffield Utd 26 10 9 7 28:24 39 Þýskaland Hoffenheim – Wolfsburg ........................ 2:5  Sara Björk Gunnarsdóttir lék ekki með Wolfsburg vegna meiðsla. Danmörk Esbjerg – FC Köbenhavn........................ 1:0  Ragnar Sigurðsson var allan tímann á varamannabekk FC Köbenhavn. Holland Excelsior/Barendrecht – PSV............... 1:5  Anna Björk Kristjánsdóttir lék ekki með PSV. B-deild: Excelsior – Jong AZ ................................ 3:3  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior og skoraði eitt mark. Pólland Górnik Zabrze – Arka Gdynia ............... 2:0  Adam Örn Arnarson var ekki í leik- mannahópi Górnik Zabrze. Frakkland B-deild: Grenoble – Niort...................................... 3:1  Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannahópi Grenoble. Lengjubikar karla A-deild, 3. riðill: FH – Þróttur R......................................... 3:1 Morten Beck Andersen 16., Jónatan Ingi Jónsson 43., Þórir Jóhann Helgason 62. – Lárus Björnsson 61. A-deild, 4. riðill: Fjölnir – Stjarnan .................................... 0:2 Hilmar Árni Halldórsson 30., 53.  

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.