Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 42

Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Viðskipta Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Um leið og ég las bókina varð ég gagntekin af henni, enda sterk sam- tímasaga sem er að takast á við spennandi viðfangsefni. Ég ýmist grét eða hló þegar ég las hana og hélt að lestri loknum sífellt áfram að hugsa um persónur bókarinnar sem eru mjög vel skrifaðar og djúpar. Bókin er drifin áfram jafnt af per- sónunum og sterkum kringum- stæðum sem hentar mjög vel fyrir kvikmyndaformið, “ segir Kristín Eysteinsdóttir sem mun leikstýra kvikmynd sem byggist á skáldsög- unni Kokkáll eftir Dóra DNA. Blaðamaður settist niður með Krist- ínu, Dóra DNA og Steinari Loga Nesheim, framleiðanda mynd- arinnar, fyrr í vikunni eftir að þau ásamt Pétri Má Ólafssyni, útgef- anda Bjarts & Veraldar, höfðu skrif- að undir samning um gerð kvik- myndarinnar upp úr skáldsögunni sem framleiðslufyrirtækið Polarama framleiðir. Fjallar um vestrænan sársauka „Um leið og bókin kom út fór fólk sem vildi skoða kvikmyndaréttinn að hafa samband við mig. Þegar Kristín hringdi í mig var augljóst að hún brann langmest fyrir þessu verkefni,“ segir Dóri DNA og bend- ir á að sem höfundur hafi bókin hel- tekið huga hans í hálft annað ár. „Af þeim sökum vil ég auðvitað fá í verk- efnið einhvern sem brennur jafn- mikið fyrir þessu og ég,“ segir Dóri DNA og viðurkennir að hann sjái bókina ekki jafnskýrt fyrir sér sem kvikmynd eins og Kristín. „En hún sér það og ég treysti hennar mati. Ég held að persónur og hugðarefni bókarinnar eigi farveg að fólki. Hún fjallar um vestrænan sársauka og heim þar sem við erum sífellt að leita að vatni til að slökkva þá elda sem við höfum sjálf kveikt. Af þeim sökum held ég að sagan tali beint inn í hjarta margra,“ segir Dóri DNA. „Mig langar að framleiða sögur sem ég brenn fyrir og þegar ég las þessa bók sá ég strax að mig langaði til að vera partur af þessu teymi. Það draumur framleiðanda að fá tækifæri til að vinna með Kristínu og Dóra DNA,“ segir Steinarr Logi framleiðandi sem stýrir hinu ný- stofnaða framleiðslufyrirtæki Pol- arama. Steinarr Logi hefur starfað hjá Sagafilm og meðal annars séð um framleiðslu sjónvarpsþáttanna Thin Ice sem hefja göngu sína á RÚV annað kvöld. Krefjandi verkefni „Það verður krefjandi verkefni fyrir okkur að koma þessari sögu og karakterum til skila á hvíta tjald- inu,“ segir Steinarr Logi og Dóri DNA tekur undir það. „Sagan gerist í tveimur löndum, þ.e. Íslandi og Bandaríkjunum, og á tveimur ólík- um tímum, þ.e. í nútímanum og um síðustu aldamót. Það hversu mikið vægi ólík lönd og tímar fá hefur auð- vitað áhrif á hvað myndin kostar að endingu. Bókin er 334 síður og því ljóst að það þarf að skera efniviðinn niður,“ segir Dóri DNA og tekur fram að hann sé feginn að þurfa ekki að sjá um þann niðurskurð. „Nú hefst þróunarvinnan við að færa söguna úr einu listformi í ann- að,“ segir Steinarr Logi og tekur fram að hann sé sannfærður um að Kokkáll muni tala sterkt til fleiri en Íslendinga. „Ísland er ekki lengur lokað mengi. Í dag er heimurinn vettvangurinn sem verið er að þróa fyrir og gæðakröfurnar eftir því. Við vitum að við erum að fara að fram- leiða kvikmynd sem á heima á alþjóðamarkaði,“ segir Steinarr Logi. „Það eina sem er séríslenskt í bókinni er nöfnin og kennileitin. Ég held að tilfinningarnar séu mjög al- þjóðlegar, sérstaklega hér á Vestur- löndum,“ bætir Dóri DNA við. Kristín hefur góða reynslu af því að leikstýra í leikhúsi og því liggur beint við að spyrja hvernig það legg- ist í hana að skipta um miðil og leik- stýra sinni fyrstu kvikmynd. „Þetta hefur lengi verið draumur hjá mér, enda hefur mig langað til að endur- nýja mig sem listamann og takast á við nýjar áskoranir. Í grunninn snýst þetta auðvitað um það sama, að brenna fyrir sögunum sem mig langar að segja og miðla þeim. En ég hef lengi verið að leita að sögunni sem mig langaði að segja og rétt- aframleiðandanum. Ég lít á það sem mikið tækifæri og áskorun að stíga inn á þennan vettvang með leikhús- reynsluna í farteskinu. Í grunninn drífa persónurnar söguna áfram og því kallar það á góða leikaraleik- stjórn,“ segir Kristín og bætir við að sér þyki líka spennandi að vinna í öðru tempói en áður. „Sem leik- hússtjóri hef ég stýrt leikhúsi þar sem við frumsýnum 12 nýjar sýn- ingar á ári með tilheyrandi hraða. Mér finnst ótrúlega spennandi að stíga inn í þróunarferli sem tekur nokkur ár. Eftir margra ára vinnu í leikhúsinu finnst mér spennandi að fara í annan rytma,“ segir Kristín. Lengi verið aðdáandi Kristínar „Ég treysti Kristínu ákaflega vel fyrir þessu verkefni, því drama og vinnan með leikurunum er númer eitt. Reynslan sem Kristín býr yfir sem leikstjóri og getan til að fara í djúpa leikaravinnu er ómetanleg í kvikmyndum,“ segir Dóri DNA og ítrekar að hann ætli ekki að vera með puttana í ferlinu. „Ég óttast sjálfan mig ef ég væri eitthvað að skipta mér af. Ég vel að treysta þeim fullkomlega fyrir verkefninu og þau gera sitt verk á sínum for- sendum. Kristín og Steinarr eru ekki að fara að myndskreyta mitt verk heldur búa til sitt eigið verk,“ segir Dóri DNA. „Sem framleiðandi er gríðarlega spennandi og áhugavert að fá að fara í þennan leiðangur með Krist- ínu og bakka hana upp sem lista- mann. Ég hef lengi verið aðdáandi hennar og hef gríðarlega trú á henni,“ segir Steinarr og bætir við að sú ákvörðun að sækjast eftir rétt- inum til að kvikmynda Kokkál hafi verið sér auðveld þar sem bókin sé „stórkostleg og Kristín hefur mikla framtíð fyrir sér sem kvikmynda- leikstjóri.“ Kristín mun sjálf vinna að þróun handritsins í samvinnu við fleiri. „Næsta skref er að fara í þá vinnu og ákveða hvað við viljum leggja áherslu á í dramatúrgískri nálgun og uppbyggingu handritsins. Bókin er allt í senn ástarsaga og þriller. Hún fjallar líka um karlmennskuna, tengsl og tengslaleysi, þörfina fyrir að tilheyra öðrum og áhrif kynslóð- anna á þá næstu. Mér finnst þetta því mannleg og mikilvæg saga,“ seg- ir Kristín að lokum. Morgunblaðið/Eggert Mannleg Þetta er „mannleg og mikilvæg saga,“ segir Kristín Eysteinsdóttir um Kokkál eftir Dóra DNA. „Drama er númer eitt“  Samið um kvikmyndaréttinn á Kokkál eftir Dóra DNA  Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd  Varð gagntekin af bókinni við lestur  „Ég treysti Kristínu,“ segir Dóri DNA Leikarinn, höfundurinn og trésmið- urinn Nick Offerman verður með uppistand í Háskólabíói 5. maí. Offerman „er best þekktur fyrir hlut- verk sitt sem hinn óborganlegi Ron Swanson í hinum geysivinsælu grín- þáttunum Parks & Recreation, sem Karl Weathers í verðlaunaseríunni Fargo og sem einn þáttastjórnenda Making It á NBC,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum viðburðarins. Þar kemur fram að Offerman hafi skrifað „fjórar metsölubækur sem trónuðu á New York Times metsölu- listanum. Í frítíma sínum má finna hann í tréverkstæði í Los Angeles þar sem hann smíðar handgerða hluti eins og húsgögn, kanó og ukulele. Nick Offerman er nú að túra um heiminn með nýju sýninguna sína, All Rise, en hann fór með hana til 37 borga um Bandaríkin 2019. Um er að ræða einstaka kvöldstund þar sem málin eru rædd og létt dansspor eru tekin sem fá þig til að flissa og hvetja þig til að upplifa betri hlið mannkyns- ins en þá sem við erum vön.“ Miðasala hefst 20. febrúar kl. 10 en póstlista- forsala hefst sólarhring fyrr. Nick Offerman í Háskólabíói 5. maí AFP Hress Nick Offerman fyrr á árinu. Átta af tíu höf- undum sem til- nefndir eru til Viðurkenningar Hagþenkis kynna verk sín í Borgar- bókasafninu, Grófinni, í dag. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til 14.30. Hver höfundur hefur tíu mínútur til að kynna verk sitt. Höfundarnir koma fram í eftir- talinni röð: Andri Snær Magnason, Árni Einarsson, Árni Heimir Ingólfs- son, Björk Ingimundardóttir, Hauk- ur Arnþórsson, Margrét Tryggva- dóttir, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir og Unnur Birna Karlsdóttir. Auk þeirra eru tilnefndar Ragnheiður Björk Þórsdóttir og Rósa Eggerts- dóttir sem ekki áttu heimangengt. Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, náms- gögn eða aðra miðlun fræðilegs efn- is til almennings. Viðurkenningin fyrir árið 2019 verður veitt í byrjun mars og hlýtur verðlaunahöfund- urinn 1.250.000 krónur að launum. Tilnefndir höfundar kynna verk sín Margrét Tryggvadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.