Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Birds of Prey er nýjastakvikmyndin úr sagna-heimi DC-teiknimynda-sagnaútgáfunnar og segir af Harleen nokkurri Quinzel sem kallar sig Harley Quinn og var kynnt til sögunnar sem unnusta Jókersins í kvikmyndinni Suicide Squad sem þótti heldur léleg. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá hefur DC-útgáfan m.a. gefið út sögurnar um Leðurblöku- manninn, Súpermann, Wonder Woman og fleiri hetjur en kvik- myndir um persónur sagnanna hafa verið ólíkar að gæðum, sumar af- bragð en aðrar hreinasta hörmung. Birds of Prey er nær því að vera af- bragð en hörmung, fínasta skemmt- un en þó ekki gallalaus. Veggspjöld myndarinnar gefa vel til kynna hvað er í vændum, þau eru afar litrík og skrautleg og benda til þess að einhvers konar smekkleysa eða karnival sé þar auglýst. Á einu þeirra sést Harley Quinn beina hafnaboltakylfu að áhorfandanum en slíkri kylfu beitir hún hugvits- samlega á andstæðinga sína í mynd- inni og þeir eru ansi margir. Nafn persónunnar er orðaleikur því það minnir á „harlequin“, eina af per- sónum fornu ítölsku „commedia dell- ’arte“ leikhúsaðferðarinnar, ef rétt er skilið, og kallast líklega skrípa- leikari á íslensku. Líkt og kærasti hennar, Jókerinn, gengur Quinn ekki heil til skógar, er sturluð á einhvern mjög svo furðu- legan hátt sem sést strax í upphafi myndar þegar hún fótbrýtur mann á báðum fyrir að brúka kjaft á nætur- klúbbi og lætur eins og hún hafi bara slegið hann létt utan undir. Vill svo óheppilega til að maðurinn er bíl- stjóri eiganda klúbbsins, Romans Sionis, stórhættulegs glæpakóngs sem Ewan McGregor leikur og er einnig þekktur sem Black Mask, eða Svarta gríman. Hefur hann það til siðs að pynta fólk og drepa ef það fer ekki að vilja hans. Eitt slíkt atriði hækkar aldurstakmark mynd- arinnar um nokkur ár, myndi ég halda. Harley Quinn á sér marga hættu- lega óvini en hefur notið friðhelgi sem kærasta Jókersins sem er hættulegasti glæpaforingi Gotham- borgar. Það kemur því stórt babb í bátinn þegar Jókerinn segir henni upp og Harley Quinn verður fyrir vikið réttdræp. Sionis er einn þeirra sem eiga harma að hefna og klófestir Quinn en hún bjargar lífi sínu með því að bjóðast til að finna unga stúlku, vasaþjóf, sem rænt hefur af- ar dýrmætum demanti sem Sionis ágirnist. Quinn er ekki lengi að hafa hendur í hári vasaþjófsins en þá byrjar hasarinn fyrir alvöru því fleiri vilja ná þjófnum og drepa Quinn um leið. Fer svo að Quinn, þjófurinn og fleiri skaðræðiskvendi snúa bökum saman og mæta böðlum Sionis og honum sjálfum í miklum tívolíbar- daga. Margot Robbie leikur Harley Quinn með miklum tilþrifum og per- sónan er með þeim skemmtilegri sem sést hafa í ofurhetjumyndum DC, þó að vísu sé hún ekki ofurhetja heldur frekar stálheppin og bar- dagafim andhetja sem áhorfandinn hefur samúð með upp að vissu marki. Myndin er öll í miklum ýkj- ustíl sem gerir hana bara skemmti- legri en ella og í einu eftirminnileg- asta atriðinu ræðst Quinn inn í lögreglustöð og skýtur þar mann og annan en þó ekki með hefðbundnum skotum heldur einhvers konar dós- um fullum af glimmeri, confetti og litadufti. Það er því enginn drepinn, sem betur fer. Bardaga- og hasar- atriði eru listilega úr garði gerð en hreyfivinnan sem býr þar að baki, kóreógrafían ef kalla mætti, er með vanmetnari þáttum kvikmyndagerð- ar og mætti verðlauna hana sér- staklega á uppskeruhátíðum á borð við Golden Globe og Óskarinn. Útlit myndarinnar er í anda sagnanna um Harley Quinn, mjög litríkt og ýkt og sagan fer fram og aftur í tíma sem heldur manni áhugasömum og við efnið. Búningar eru skemmtilega hannaðir og förðunin dásamlega ýkt líkt og hárgreiðslurnar eða -koll- urnar. Það er mikill stelpukraftur, „girl power“, í myndinni og fín skemmtun að horfa á bardagakvendin lúskra á vitgrönnum óþokkum með mjög svo skrautlegum hætti, oft á tíðum. Ólíkt kvenpersónum eru karlarnir ansi tvívíðir og vondi karlinn, sem McGregor leikur, er því miður mjög ófrumlegur og litlaus sem dregur nokkuð úr skemmtigildinu. Óþokki sem manni finnst maður hafa séð ótal sinnum áður. McGregor gerir sitt besta en það dugar bara ekki til. Endalok óþokkans eru líka furðu- lega ófrumleg miðað við þá hug- myndaauðgi sem einkennir myndina á heildina litið. Birds of Prey, eða Birds of Prey (and the Fantabulous Emancipation of One Harley Quinn) eins og hún heitir raunar, er hin fínasta skemmt- un, góð afþreying sem ristir kannski ekki djúpt en það sem bjargar henni á endanum eru flott hasaratriði, gott grín og skemmtilegar persónur. Robbie stendur upp úr þegar litið er til leikara enda í langskemmtileg- asta hlutverkinu. Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að fleiri mynd- ir verði gerðar um Harley Quinn eft- ir þessa ágætu fyrstu sólómynd and- hetjunnar. Skemmtilegur skrípaleikur Vinátta Margot Robbie í hlutverki Harley Quinn í Birds of Prey. Hér er hún með gæludýri sínu, hýenunni Bruce. Sambíóin og Laugarásbíó Birds of Prey bbbmn Leikstjórn: Cathy Yan. Handrit: Christina Hodson. Aðalleikarar: Margot Robbie, Rosie Perez, Mary Elizabeth Winstead, Jurnee Smollett-Bell, Ewan McGregor og Ella Jay Basco. Bandaríkin og Bretland, 2020. 109 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Hin margreyndu söngvarar Anna Sigríður Helga- dóttir og Gísli Magna Sigríðar- son koma fram á tónleikum í Há- teigskirkju í dag, laugardag, kl. 17. Um er að ræða tónleika í röð til styrktar orgel- sjóði Háteigskirkju. Tónleikaröðin hóf göngu sína haustið 2019 og eru þetta fyrstu tónleikarnir á árinu 2020. Þau Anna Sigríður og Gísli flytja nokkra kunna negrasálma og aðra íslenska, flesta eftir Hallgrím Pétursson, við tónlist Gísla Magna og Sigurðar Sævarssonar og að auki flytja þau einn sálm séra Hall- gríms við íslenskt þjóðlag, í útsetn- ingu Smára Ólasonar. Syngja sálma til styrktar orgelsjóði Gísli Magna Sigríðarson Myndlistarkonan Laufey Arnalds Johansen hefur opnað sýningu á verkum eftir sig í verslunarrými á 2. hæð Kringl- unnar, við hlið- ina á verslun Nova, og mun hún standa yfir í nokkrar vikur. Laufey sýnir bæði ný og eldri verk úr seríu sem hún kallar Aurora – Áróra og er mjög litrík. Þá eru einnig sýnd verk úr seríunni Vúlkan en þau verk eru svört og þykk og minna að hennar sögn helst á hraunið og svarta sanda í íslenskri náttúru. Sum verk- ana voru á sýningum í París og Míl- anó, en undanfarið hefur Laufey tekið þátt í 13 sýningum víða um lönd. Laufey sýnir mál- verk í Kringlunni Verk eftir Laufeyju. ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI  Rás 2  FBL BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES m.a. ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN ÓSKARSVERÐLAUN4 BESTA MYNDINm.a. ÓSKARSVERÐLAUN2 BESTA FRUMSAMDA TÓNLISTm.a. HILDUR GUÐNADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.