Morgunblaðið - 14.03.2020, Side 1
Kóróna semenginn vill bera
Það hefur ekki farið framhjá nokkrum
alræmda er orðin að h iog b i
15. MARS 2020SUNNUDAGUR
BLAÐIÐBA
RNA-
11. tbl. • 15. m
ars 2020
L A U G A R D A G U R 1 4. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 63. tölublað 108. árgangur
+ www.audi.is
ÖÐRUVÍSI
EN FRUM-
ÚTGÁFURNAR
FRÁBÆRT AÐ
FÁ AÐ LEIKA
LITLA BUBBA
BARNABLAÐIÐYFIRLITSSÝNING 53
Ríkisstjórn Íslands boðaði í gær
samkomubann sem taka á gildi á mið-
nætti aðfaranótt mánudags. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra segir
fordæmalaust ástand kalla á for-
dæmalausar aðgerðir af hálfu stjórn-
valda.
Vart hefur orðið við að fólk sæki í
verslanir til að birgja sig upp af mat-
vælum og ýmsum nauðsynjavörum.
Sendu Hagar og Krónan frá sér til-
kynningar í gær þar sem tekið var
fram að birgðastaða verslana, vöru-
húsa og birgja hérlendis væri góð.
Ljóst er þá að meira af lyfjum hef-
ur verið afgreitt út úr apótekum en
alla jafna. Alma D. Möller landlæknir
og Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar og
þjónustu, segja engan vott um yfir-
vofandi skort á matvælum.
Íslensk erfðagreining hóf skimanir
fyrir veirunni í gær og sagði Kári
Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, að
vonast mætti eftir fyrstu niðurstöð-
um í kvöld.
Landamærum Danmerkur verður
lokað frá og með hádegi í dag, nema
fyrir þeim sem sýnt geta fram á að
þeir eigi þangað mjög brýnt erindi.
Icelandair flýgur daglega 2-3 ferðir til
og frá Kaupmannahöfn og hefur fé-
lagið leitað eftir ítarlegri upplýsing-
um frá dönskum stjórnvöldum.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær tvö
frumvörp Ásmundar Einars Daða-
sonar, félags- og barnamálaráðherra,
um aukinn atvinnuleysisbótarétt og
laun fólks sem sætir sóttkví sam-
kvæmt fyrirmælum yfirvalda. Ráð-
herrann segist búast við að mæla fyr-
ir frumvörpunum á þriðjudag.
Gengi hlutabréfa á helstu mörkuð-
um tók víða stökk upp á við í gær eftir
afar slæman fimmtudag, þann versta
í bandarísku kauphöllinni síðan árið
1987. S&P 500-vísitalan hækkaði um
rúmlega níu prósent í gær, sem er
mesta hækkun vísitölunnar frá árinu
2008. Hækkunin vestanhafs kom að
mestu fram í kjölfar þess að Donald
Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að
hann hefði samið við forstjóra stórra
einkafyrirtækja þar í landi um aðstoð
við skimanir fyrir kórónuveirunni.
Forsetinn lýsti einnig opinberlega
yfir neyðarástandi, en yfirlýsingin
leysir úr læðingi milljarða banda-
ríkjadala úr fjárhirslum ríkissjóðs
sem nýst geta í baráttunni gegn far-
aldri veirunnar.
Fordæmalaust bann
Samkomubann tekur gildi á miðnætti aðfaranótt mánudags Enginn vottur um
yfirvofandi skort á matvælum Icelandair í óvissu eftir lokun landamæra Danmerkur
MKórónuveira »2-11, 20-24 &48-49
Morgunblaðið/Eggert
Fólk hamstrar í Bónus í Skeifunni
Vart hefur orðið við að fólk hafi sótt í matvöruverslanir undanfarna daga til að safna að sér birgðum. „Það hamstur sem matvöruverslunin hefur upplifað
er algjörlega ástæðulaust,“ sagði Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, á blaðamannafundi almannavarnadeildar ríkis-
lögreglustjóra í gær. Bætti hann við að þessi birgðasöfnun skapaði gífurlegt álag á verslanir, sem væri óþarft. „Það eru til nægar birgðir af mat í landinu.“
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
138
staðfest tilfelli
kórónu veirusmits
á Íslandi
1.100+
einstaklingar
í sóttkví
1.222
sýni greind
Íslenska flugfélagið Atlanta mun
hætta öllu farþegaflugi sínu tíma-
bundið vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Flugfélagið leigir stærsta
viðskiptavini sínum, Saudi Arabian
Airlines, sjö Boeing 747-400 breið-
þotur í blautleigu svokallaðri.
Vonast er til að þoturnar fari aftur
í loftið í maí. Atlanta mun áfram
sinna fraktflugi milli Afríku og Evr-
ópu og milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu.
Baldvin Már Hermannsson, for-
stjóri Atlanta, segir að fyrirtækið
verði fyrir verulegu tekjutapi vegna
málsins. Síðustu daga sé búið að
fella niður þúsundir flugferða vegna
veirunnar.
Baldvin segir að með þessu vilji
Sádi-Arabar reyna að takmarka út-
breiðslu kórónuveirunnar. »22
Flugfélag Atlanta hættir tímabund-
ið farþegaflugi í Mið-Austurlöndum.
Atlanta
hættir far-
þegaflugi
Sjö breiðþotur
bíða í Sádi-Arabíu
„Kórónuveiran er að verða gengin
yfir og lífið að komast í eðlilegt horf
á ný,“ segir Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri hjá Arla Foods í
Kína. Um 100 manns starfa hjá Arla
Foods og segir Snorri um helming-
inn snúinn aftur til vinnu frá og með
þessari viku; fleiri bætast svo í hóp-
inn í þeirri næstu. „Andrúmsloftið í
Peking er allt annað en það var fyrir
nokkrum vikum og almennt gott
hljóð í fólki sem maður hittir. Það
veit að það versta er yfirstaðið. Hér
er því fullkomin ró.“ Ýtrustu var-
úðar er þó enn gætt og skrifstofu-
húsnæðið hjá Snorra er sótthreinsað
þrisvar á dag. »Sunnudagur
Það versta
er yfirstaðið