Morgunblaðið - 14.03.2020, Page 11

Morgunblaðið - 14.03.2020, Page 11
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherrar Michael R. Pompeo og Guðlaugur Þór í Hörpu í fyrra. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra mun funda með Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington á fimmtudaginn í næstu viku. Þetta staðfesti Guðlaugur Þór við mbl.is í gær. Hann óskaði á fimmtudag eftir símafundi með Pompeo vegna ákvörðunar bandarískra yfir- valda um að setja á ferðabann til landsins frá Evrópu vegna kór- ónuveirunnar. Guðlaugur sagðist hafa mót- mælt ákvörðuninni harðlega og farið fram á að fundin yrði lausn fyrir Ísland sem byggðist annars vegar á „landfræðilegri legu okk- ar“ og hins vegar á þeim ákveðnu aðgerðum sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til vegna veirunnar. Guðlaugur Þór til fundar við Pompeo í Washington FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020 Landlæknisembættið og almanna- varnir hafa opnað vefsíðu þar sem er að finna upplýsingar um kórónuveir- una á Íslandi. Þar er að finna allar nýjustu fréttir um málið, tilkynn- ingar, góð ráð, upplýsingar um við- brögð á Íslandi og margt fleira. Slóð- in er covid.is. Meðal þess sem um er fjallað á síð- unni er hvernig forðast eigi smit, vita hvort maður hafi smitast, hvernig sóttkví virkar, hvernig einangrun virkar, hverjir eru í áhættuhópum og sérstaklega er fjallað um eldri borg- ara, börn og ungmenni. Þá er fjallað um áhyggjur fólks og kvíða vegna ástandsins, umgengni á vinnustöðum, matvæli og dýr og einnig ferðalög. Á síðunni er jafnframt að finna nýj- ustu upplýsingar um útbreiðslu veir- unnar um landið. Þá birtast þar jafn- óðum nýjustu tilkynningar stjórnvalda til almennings. Á síðunni er bent á þrjár leiðir til að fá per- sónulega aðstoð. Læknavaktin svar- ar allan sólarhringinn í síma 1700, heilsugæslustöðvar svara á dag- vinnutíma og á vefnum heilsuvera.is er boðið upp á netspjall á milli kl. 8 og 22. Upplýsingar um veir- una fyrir almenning  Nýr vefur stjórnvalda svarar flestum spurningum Kórónuveirusmit Samkomubann gildir í fjórar vikur, frá og með mánudeginum 16. mars Þar er átt við skipulagða viðburði þar sem fl eiri en 100 manns koma saman Ekkert bóluefni er til við kórónuveirunni Líkur á alvarlegum sjúkdómi aukast með hækkandi aldri, sérstaklega eftir 50 ára aldur og einstaklingar með ákveðin undir- liggjandi vandamál eru einnig í aukinni hættu Hverjir þurfa að fara í heimasóttkví? Allir sem hafa komið frá svæðum með mikla smitáhættu (sjá lista á covid.is) og þeir sem hafa umgeng- ist fólk með ein- kenni. Ef sá sem er í sóttkví veikist verða aðrir heimilismenn að fara í sóttkví. Mikilvægast er að þvo sér vel og oft um hendurnar með vatni og sápu í lágmark 20 sekúndur eða nota handspritt Þegar þú mætir í vinnu eða kemur heim skaltu byrja á að þvo hendur vel og vandlega Góð regla er að forðast náin samskipti við aðra sem eru með einkenni kvefs Ef þú þarft að hósta eða hnerra er betra að gera það í olnbogabótina en ekki í hendurnar eða út í loftið Sýndu sérstaka aðgát við algenga snertifl eti á fjölförnum stöðum Heilsaðu með brosi frekar en handabandi Salernispappír er ekki talinn lækna kórónuveirusmit Þeir sem fi nna til einkenna skulu hafa samband við Læknavaktina í síma 1700, heilsugæsluna eða netspjall á heilsuvera.is og fá ráðleggingar Ekki fara beint á heilbrigðis- stofnun, heldur hringja fyrst og fá leiðbeiningar Er í lagi að fara í sund og heita potta? Ekki er talin hætta á að veiran berist í fólk úr vatni í heitum pottum eða sundlaugum. Þar er hins vegar oft mikil nánd við marga einstaklinga og þar af leiðandi smithætta. Upplýsingar eru m.a. fengnar af covid.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upplýsingar Auk hinna daglegu upplýsingafunda almannavarna og sótt- varnalæknis er kominn vefur sem svarar spurningum almennings. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Einstaka leigubílstjórar hafa verið ragir við að taka upp farþega við Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að bílstjóri smitaðist af kórónuveir- unni. Annars hefur túrum til Kefla- víkur fækkað mjög vegna sam- dráttar í ferðaþjónustunni og almennt er afar lítið að gera hjá leigubílstjórum vegna hægagangs í þjóðfélaginu. Duglegir við að þrífa bílana „Við höldum áfram að þvo okkur vel um hendur og þrífa bíl- ana. Passað er upp á að alltaf sé spritt í bílunum og viðeigandi pappír eða klútar. Margir nota ein- nota hanska. En taka verður fram að aldrei er hægt að bjóða upp á dauðhreinsaða bíla, veiran er ósýnileg og aldrei hægt að ábyrgj- ast að hún leynist hvergi,“ segir Daníel Orri Einarsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Frama og Bandalags íslenskra leigu- bifreiðastjóra. Spurður um viðbrögð leigubíl- stjóra við því að einn bílstjóri smit- aðist við að flytja farþega frá flug- stöðinni viðurkennir Daníel að einhverjir hafi verið ragir við að fara í Leifsstöð til að taka á móti farþegum, en aðrir fari þangað daglega. Mikið dregið úr ferðum Bílstjórinn sem smitaðist er í einangrun og ekki kominn aftur til starfa. Guðmundur Börkur Thoraren- sen, framkvæmdastjóri BSR, kann- ast ekki við að bílstjórar veigri sér við að fara að flugstöðinni. Hann segir aftur á móti að mikið hafi dregið úr ferðum þangað vegna samdráttar í ferðaþjónustunni. „Þjóðfélagið er hálf lamað, sérstaklega eftir fréttir gærdagsins [fimmtudagsins]. Það er lítil hreyf- ing hjá okkur og helmingi minni umferð en venjulega á götunum,“ segir Guðmundur Börkur og segir að viðskiptin hjá leigubílstjórum hafi minnkað í takti við umsvifin í þjóðfélaginu. Kostnaður meiri en innkoma „Við sjáum að það hefur hægt á samfélaginu og mjög lítið er að gera. Tekjur bílstjóranna lækka strax og kostnaður verður fljótt meiri en innkoman. Það á svo sem við um öll fyrirtæki og heimili landsins. Það er svo spurning hvort við tilheyrum þeim hópi sem þarf að hlaupa undir bagga með, með því að fresta greiðslu opin- berra gjalda sem er stór liður í rekstri leigubíla,“ segir Daníel Orri Einarsson. Lítið að gera hjá leigubílstjórum vegna ástandsins  Sumir ragir við að fara í flugstöðina Morgunblaðið/Ómar Leigubíll Raðirnar hjá leigubílum í Reykjavík og víðar lengjast. KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty DÁSAMLEGIR BOLIR OG NÆRBUXUR Engir saumar – ein stærð (S-XL). Einstaklega mjúkt og teygjanlegt. BUXUR verð 2.650,- BOLUR verð 3.990,- Síðasta sending seldist upp Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Barbara Lebek kjóll 14.980.- Stærðir: 36-48 Fæst ívefverslunhjahrafnhildi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.