Morgunblaðið - 14.03.2020, Síða 12
áhugamáli, verandi í fullu háskóla-
námi og í starfsnámi?
„Ég nota tímann þegar ég ætti
að vera að læra, ég fékk samt ekki
undir 8,5 í neinu prófi síðast,“ segir
hún og hlær.
„Þegar maður hefur ástríðu eða
áhuga á einhverju finnur maður tíma
til að sinna því. Maður verður að gefa
sér tíma til að gera það sem mann
virkilega langar til að gera. Ég held
að það sé í eðli okkar að vera skap-
andi, finna lausnir og búa eitthvað
til,“ segir Ingibjörg, sem er í Flens-
borgarkórnum, en sá kór hefur alltaf
búningaþema þegar farið er í æf-
ingabúðir.
„Þótt maður sé orðinn fullorðinn
þýðir það ekki að maður geti ekki
skemmt sér í búningi og haft gaman
af lífinu. Mörgum finnst búningar
vera fyrir börn, en við eigum ekki að
hætta að leika okkur, og það er virki-
lega gaman að leggja metnað í að búa
til flotta búninga. Handavinna gefur
manni svo mikið og róar hugann. Ég
er nörd alla leið og er stolt af því. Ég
mæli með að allir fari út í einhvers
konar handa-
vinnu, sama hvað
það er, það er
svo gaman.“
vefnað, sem
er ævaforn
aðferð frá
árunum 900
til 1100.
„Ég
þræði þræð-
ina í gegnum
spjöld og þeim
sný ég svo eftir
ákveðnum reglum svo
að mynstrið komi rétt út. Ég er núna
að vefa Oseberg-mynstur sem fannst
í Oseberg og er frekar einfalt, en sum
mynstur eru rosalega flókin í spjald-
vefnaði. Mesta pjattið og vinnan við
að sauma víkingaklæði er að búa til
skreytingarnar. Ég reyni að hafa
þetta eins nálægt heimildum og ég
get, þótt ég nái því ekki alltaf hundr-
að prósent.“
Reyndu að drepa engan í dag
Ingibjörg og nokkrar vinkonur
hennar skiptast alltaf á handavinnu-
gjöfum úr eigin ranni, og um síðustu jól
ákvað hún að sauma út platta með
krosssaumi sem hún taldi út.
„Ég vildi ekki gera skrautmun
sem hefur engan annan tilgang en að
vera fallegur. Mig langaði að hafa
þetta fyndið og skemmtilegt svo ég
fann fínleg munstur með ýmsum gró-
teskum áletrunum. Til dæmis gaf ég
vinkonu sem er hjúkrunarfræðinemi
platta með áletruninni: Try not to
murder anyone today, eða Reyndu að
drepa engan í dag. Ég á nokkrar vin-
konur sem deila svipuðum kaldhæðn-
islegum húmor.“
Ingibjörg lætur ekki duga að
handsauma víkingaklæði og
sauma út jólagjafir; hún gerir líka
þó nokkuð af því að sauma bún-
inga fyrir hvers konar sprell.
„Mér finnst mjög gaman að
klæða mig upp fyrir hrekkjavöku
og öskudag og ég hef tekið þátt í
búningakeppni hjá Nexus þegar
haldnar eru Midgard-hátíðir.
Þetta eru nördahátíðir þar sem
fókusað er á allt sem tengist
poppmenningu, þættir, bíó-
myndir, bækur, teiknimynda-
sögur, borðspil, hlutverkaspil
og fleira. Hluti af því er
Cosplay, sem er stytting á
Costume Playing, en þá mætir
fólk í búningi sem persóna úr
einhverju sem það hefur
áhuga á. Mér finnst rosa gam-
an að búa slíkt til og hitta
aðra með svipuð áhugamál.“
Er nörd og stolt af því
Hvernig finnur Ingi-
björg tíma til að sinna þessu
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mér hefur alltaf fundistgaman að teikna og búaeitthvað til. Ég fann migvel í handavinnu í
grunnskóla og þar lærði ég að prjóna
og fannst það geðveikt gaman,“ segir
Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, fjórða
árs nemi í hjúkrunarfræði en hún er
sérlega skapandi þegar kemur að því
að gera eitthvað í höndunum. M.a.
handsaumar hún víkingaklæði, býr til
búninga fyrir hrekkjavöku og saumar
út kaldhæðin slagorð.
„Ég held ég hafi þessa
sköpunarþörf frá foreldrum mínum,
pabbi er mjög handlaginn og mamma
hefur alltaf prjónað mikið. Þegar hún
var í kennaranámi var hún alltaf að
búa til brúður fyrir verkefni og mér
fannst það rosalega spennandi,“ segir
Ingibjörg, sem lærði að handsauma
þegar hún var 18 ára.
„Vinkona mín kenndi mér það,
en hún hefur lengi verið í víkinga-
félaginu Rimmugýgi. Ég hef hand-
saumað nokkur víkingaklæði fyrir
mig og litla frænda minn, því ég fer
árlega með hann á víkingahátíðina
hér í Hafnarfirði og þá skörtum við
víkingaklæðum. Mér finnst slakandi
að handsauma og svo er spennandi að
sjá hvað kemur út úr því sem maður
er að búa til. Ég er að læra á sauma-
vél núna, en mér finnst miklu auð-
veldara að handsauma,“ segir Ingi-
björg og hlær.
Til að vefa líningar á víkinga-
klæðin hefur Ingibjörg lært spjald-
Við eigum ekki að
hætta að leika okkur
„Þótt maður sé orðinn fullorðinn þýðir það ekki að maður geti ekki skemmt sér
í búningi og haft gaman af lífinu,“ segir Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, sem finnur
alltaf tíma til að sinna því sem hún hefur mest gaman af, handverki og sprelli.
Morgunblaðið/Ásdís
Húmor Út-
saumaður
platti eftir
Ingibjörgu.
Glæsileg Ingibjörg
í einum af mörgum
búningum sem hún
hefur hannað og
saumað sjálf.
Flott Ingi-
björg sem
skinka í æf-
ingabúðum
kórsins.
Flink Ingibjörg bjó til þennan hatt fyrir einn búninginn.
Flott gervi Ingibjörg var krípí
jólaálfur á síðustu hrekkjavöku.
Vandað Ingibjörg í víkinga-
klæðum sem hún hefur
handsaumað á sig og ofið.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2020
verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en
þar segir:
„Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda
rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga“.
Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða
endurbætur hitastýringar- kerfa og önnur verkefni sem leiða til minni
raforkunotkunar við hitun.
Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði
við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr.
Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til:
• Að verk- og kostnaðaráætlun sé vönduð og ítarleg.
• Að raunsætt mat sé lagt á áætlaðan raforkusparnað.
• Hlutfalls orkusparnaðar miðað við kostnað.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2020
Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar
en 6. júní 2020
Umsóknum skal skila rafrænt af vef Orkustofnunar www.os.is undir Orkusjóður
Nánari upplýsingar á www.os.is og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg,
603 Akureyri. Símar 569 6083 – 894 4280 – Netfang jbj@os.is
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2020