Morgunblaðið - 14.03.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
● Tekjuafkoma ríkisins var neikvæð
sem nam 29,5 milljörðum króna á
síðasta ári. Nemur hallinn 1% af
landsframleiðslu samkvæmt bráða-
birgðatölum sem Hagstofa Íslands
hefur gefið út. Til samanburðar er
bent á að afkoman hafi verið jákvæð
um 22,8 milljarða árið 2018 eða 0,8%
af landsframleiðslu. Áætlar stofnunin
að heildartekjur hins opinbera hafi á
árinu 2019 aukist um 1% á milli ára
og að heildarútgjöld hins opinbera
hafi aukist um 5,5% á sama tíma.
Áætlað er að tekjuafkoma hins op-
inbera hafi verið neikvæð um 8,3
milljarða á síðasta fjórðungi liðins árs
eða sem nemur 1,1% af landsfram-
leiðslu fjórðungsins. Segir Hagstofan
að samdrátturinn skýrist m.a. af sam-
drætti í tekjum hins opinbera og að
þær hafi dregist saman um 1,1% á
fjórða fjórðungi. Heildarútgjöld hins
opinbera hafi aukist um 1,8% á sama
tímabili. Þegar vegur launakostnaður
þyngst en áætlað er að hann hafi
aukist um 4,8% frá sama fjórðungi
ársins 2018. Áætlað er að tekjur hins
opinbera hafi numið 1.213,3 millj-
örðum á árinu 2019 og jafngildir það
40,9% af landsframleiðslu. Hlutfallið
var 43,1% árið 2018. Heildartekjur
ríkissjóðs námu 872,5 milljörðum ár-
ið 2019 og drógust saman um 0,8%
frá fyrra ári.
Afkoma ríkisins var neikvæð um 29,5 milljarða
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Íslenska flugfélagið Atlanta ehf. (e.
Air Atlanta Icelandic) mun hætta
öllu farþegaflugi sínu tímabundið
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Flugfélagið leigir Saudi Arabian
Airlines sjö Boeing 747-400 breiðþot-
ur í blautleigu
svokallaðri, þ.e.
þotur með áhöfn
og öllu utanum-
haldi um rekstur
og viðhald, og
mun öllum þeim
flugvélum verða
lagt þann 20.
mars nk. Vonast
er til að þoturnar
fari aftur í loftið í
maí nk. Saudi
Arabian Airlines er stærsti við-
skiptavinur Atlanta.
Baldvin Már Hermannsson, for-
stjóri fyrirtækisins, segir í samtali
við Morgunblaðið að Saudi Arabian
Airlines hafi gripið til þess að fella
niður þúsundir flugferða á síðustu
dögum vegna útbreiðslu kórónu-
veirunnar og alþjóðlegra ferðatak-
markana almennt. „Við munum ekki
fljúga okkar þotum fyrir þá eftir 20.
mars nk. Við erum með sjö flugvélar
í landinu og fljúgum þeim út um allan
heim, til Bangladess, Indónesíu, Ind-
lands og fleiri landa. Þessar flugferð-
ir eru meira og minna að stöðvast út
af ferðatakmörkunum alþjóðlega.“
Baldvin segir að Sádi-Arabar vilji
með þessu m.a. reyna að takmarka
útbreiðslu veirunnar í Sádi-Arabíu,
en bregðast einnig við því sem er að
gerast almennt í heiminum, meðal
annars vegna ferðabanns Bandaríkj-
anna sem sett var fyrr í vikunni.
„Vonandi getum við farið aftur í loft-
ið í byrjun maí, en það er ómögulegt
að segja á þessari stundu. Það verð-
ur að koma í ljós hvernig málin
þróast.“
Brugðist við tekjutapi
Spurður um fjárhagsleg áhrif
vegna málsins segir Baldvin að um
verulegt tekjutap sé að ræða fyrir
Atlanta. Grunntryggingar sem séu
til staðar vegi aldrei að fullu upp
tekjutapið sem félagið horfi fram á.
Hann segir að brugðist verði við
tekjutapinu með ýmsum aðgerðum
og auknu aðhaldi í rekstri. „Flug-
félagið Atlanta ehf. hefur hins vegar
aldrei verið betur í stakk búið til að
sigla í gegnum þessa fordæmalausu
erfiðleika, enda býr félagið að gífur-
lega öflugu starfsfólki og miklum
sveigjanlega í rekstri.“
Nýlega undirritaði Atlanta fjöru-
tíu milljarða króna samning við
Saudi Arabian Airlines um blaut-
leigu og áætlunarflug til þriggja ára.
Viðskiptasamband félaganna
tveggja nær aldarfjórðung aftur í
tímann. Spurður um áhrif ástandsins
á samninginn segir Baldvin að hann
sé ekki í uppnámi. „Undirliggjandi
samningur heldur áfram. Farþega-
vélunum verður lagt í Sádi-Arabíu á
þessu tímabili sem þær verða ekki í
notkun, og skráðar áfram á flug-
rekstrarleyfi Saudi Arabian Airlines.
Þá hefur þetta ekki áhrif á nýju vél-
arnar sem við erum að fá inn í flot-
ann. Við höldum áfram undirbúningi
okkar varðandi þær.“
Þar á Baldvin við samkomulag
Atlanta við flugvélaleigufyrirtækið
GECAS, eitt stærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar í heiminum, um lang-
tímaleigu á fimm notuðum breiðþot-
um af gerðinni Boeing 777-300 og
Airbus A330-200. Sagt var frá þeim
samningi í ViðskiptaMogganum ný-
lega. Seinkun verður á afhendingu
vélanna þar til aðstæður á mörkuð-
um hafa batnað.
Baldvin segir að fyrirtækið ætli
sér að vera tilbúið að fara í loftið er
aðstæður batna. „Þó þetta sé erfitt
núna, þá er þetta vonandi bara tíma-
bundið ástand. En hversu langt fram
á sumarið þetta varir er ómögulegt
að segja.“
Aukin eftirspurn eftir frakt
Kórónufaraldurinn hefur einnig
áhrif á aðra starfsemi félagsins, en
aukin eftirspurn er eftir fraktflugi
félagsins samhliða því að frakflutn-
ingar í farþegaþotum frá Evrópu til
Bandaríkjanna hætta í einn mánuð,
eftir ferðabann Bandaríkjastjórnar.
„Við erum með eina fraktvél í Sádi-
Arabíu og sex fraktvélar sem fljúga
áætlunarflug milli Afríku og Evrópu
og milli Bandaríkjanna og Evrópu.
Það mun ekki draga úr því nema síð-
ur sé.“
Atlanta hættir farþegaflugi
sínu frá 20. mars fram í maí
Kórónuveira Forstjóri Atlanta vonast til að geta byrjað að fljúga aftur með farþega í byrjun maí.
Sjö breiðþotur bíða í Sádi-Arabíu Þýðir verulegt tekjutap Nýr samningur ekki í hættu
Baldvin Már
Hermannsson.
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
15% afsláttur af öllum sófum af lager - 10% afsláttur af sérpöntuðum sófum - Gildir út 21. mars
14. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 131.12 131.74 131.43
Sterlingspund 167.05 167.87 167.46
Kanadadalur 95.06 95.62 95.34
Dönsk króna 19.707 19.823 19.765
Norsk króna 13.153 13.231 13.192
Sænsk króna 13.602 13.682 13.642
Svissn. franki 139.62 140.4 140.01
Japanskt jen 1.2638 1.2712 1.2675
SDR 181.72 182.8 182.26
Evra 147.29 148.11 147.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.1835
Hrávöruverð
Gull 1636.65 ($/únsa)
Ál 1670.0 ($/tonn) LME
Hráolía 35.99 ($/fatið) Brent
STUTT
● Það var jákvæður dagur í kauphöllinni
í gær og hækkaði gengi hlutabréfa í flest-
um fyrirtækjum í rétt rúmlega þriggja
milljarða viðskiptum. Kemur hækkunin
eftir mikla lækkun á fimmtudag, en á
fimmtudagskvöld tilkynntu stjórnvöld
frumvarp um frestun opinberra gjalda og
var frumvarpið samþykkt á Alþingi í gær.
Við lokun markaða höfðu bréf Iceland-
air hækkað mest eða 8,8%, en á fimmtu-
dag lækkaði gengi bréfa fyrirtækisins um
22%. Þá hækkaði gengi bréfa Brims
næstmest eða um 7,7% og í Iceland Sea-
food um tæp 7%. Gengi bréfa þriggja
fyrirtækja hélt þó áfram að lækka í gær
og lækkaði gengi bréfa Arion banka mest
eða 1,7%, Kviku banka 1,3% og Sýn 1%.
Hækkanir í kauphöllinni