Morgunblaðið - 14.03.2020, Qupperneq 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2020
(Matt. 15)
ORÐ DAGSINS:
Kanverska konan
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Jóhanna María djákni, Inga
Steinunn píanóleikari og séra Sigurður
annast stundina. Brúður, bænir,
söngvar og sögur. Hressing í Ási á eft-
ir.
BESSASTAÐASÓKN | Messa kl. 11
og aðalsafnaðarfundur að henni lok-
inni í Brekkuskógum 1. Sr. Hans Guð-
berg og Margrét djákni þjóna og Álfta-
neskórinn syngur undir stjórn
Ástvaldar organista.
Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl.
11. Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn Kr.
hafa umsjón með stundinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sjöfn Jóhann-
esdóttir héraðsprestur þjónar, Kór
Breiðholtskirkju syngur undir stjórn
Arnar Magnússonar organista. Sunnu-
dagaskólann leiða Steinunn Þorbergs-
dóttir djákni og Steinunn Leifsdóttir.
Alþjóðlegi söfnuðurinn. Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Toshiki Toma.
Barnastarf í höndum Steinunnar Þor-
bergsdóttur djákna.
The International Congregation in
Breiðholts-Church. Service at 2 PM.
Pastor Toshiki Toma. Sunday School
Steinunn Þorbergsdóttir, deacon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Fjölbreytt tónlist og fræðandi
starf fyrir börnin. Daníel Ágúst, Sóley
Adda, Jónas Þórir og Pálmi leiða sam-
veruna. Foreldrar, afar og ömmur hvött
til þátttöku. Guðsþjónusta kl. 14. Að-
alsafnaðarfundur Bústaðasóknar. Kór
Bústaðakirkju syngur, Jónas Þórir við
hljóðfærið. Messuþjónar aðstoða.
Prestar: Eva Björk Valdimarsdóttir pré-
dikar og Pálmi Matthíasson, sem þjón-
ar fyrir altari. Veitingar í boði sókn-
arnefndar.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Hádegisverður á vægu verði í safn-
aðarheimili að messu lokinni. Ferm-
ingarfræðsla. Sama dag er fjöl-
skyldumessa í Hjallakirkju kl. 17 og er
sunnudagaskóli kirknanna tveggja
hluti af þeirri samveru. Kvöldmatur á
vægu verði í safnaðarheimili að lok-
inni stund í kirkjunni
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Prest-
ur er Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn
og Kári Þormar er dómorganisti. Æðru-
leysismessa kl. 20. Æðruleysismess-
urnar einkennast af kyrrð, reynslu
sögu, hugleiðingu og bæn og tónlist.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og
prédikar. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Með-
hjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Kaffi-
sopi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjöl-
skyldumessa kl. 14. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Fermingarbörn taka þátt. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir
stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Við
hvetjum fjölskyldur fermingarbarna til
að mæta og vera með börnum sínum í
guðsþjónustunni.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskyldu-
guðþjónusta kl. 11 í umsjón sr. Sindra
Geirs og Sunnu Kristrúnar djákna.
Barna- og æskulýðskórinn syngur und-
ir stjórn Margrétar Árnadóttur kór-
stjóra. Undirleik annast Valmar Välja-
ots organisti.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Sigurður Grétar Helgason
prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti
er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í
Spöng | Engin Selmessa verður þenn-
an sunnudag þar sem Borgum hefur
verið lokað tímabundið í forvarnaskyni
vegna Covid-19.
GRENSÁSKIRKJA | Sunnudaginn
15. mars lýkur kristniboðsvikunni og
af því tilefni munu fulltrúar frá Kristni-
boðssambandinu messa með okkur.
Temesgen Shibru kristniboði í Eþíópíu
og forstöðumaður Yewongel Berhan
kirkjunnar í Ósló prédikar og sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir, sr. Ólafur Jón
Magnússon og sr. Ragnar Gunn-
arsson þjóna. Kór Grensáskirkju leiðir
okkur í söng undir stjórn Ástu Haralds-
dóttur organista og Sálmavinafélagið
syngur nokkur lög.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestar eru Leifur Ragnar Jónsson og
Pétur Ragnhildarson. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Sunnudagaskólinn í
safnaðarheimilinu og sr. Pétur verður
með alls konar kubba eftir stundina.
Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds-
dóttir. Kaffisopi eftir messuna.
HAUKADALSKIRKJA | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Sr. Egill Hall-
grímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Félagar úr Kordíu kór Háteigs-
kirkju leiða söng. Organisti er Guðný
Einarsdóttir, prestur er Eiríkur Jó-
hannsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Service. Translation
into English. Samkoma á ensku kl.
14. English speaking service. Sam-
koma á spænsku kl. 16. Reuniónes
en español. Samkoma Fíló+ kl. 20
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma með lofgjörð, barnastarfi og
fyrirbænum kl. 13. Ræðumaður er
Sam Grosso frá Minnesota í Banda-
ríkjunum, en hann er unglingaleiðtogi
og æskulýðsprestur Victory-kirkjunnar
í Tulsa, Oklahoma. Kaffi að sam-
verustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl.
11. Félagar úr kór Keflavíkurkirkju
syngja undir stjórn Arnórs Vilbergs-
sonar organista. Sr. Erla Guðmunds-
dóttir þjónar. Á sama tíma er sunnu-
dagaskólinn í umsjón Jóhönnu, Helgu
og Inga Þórs.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór
Kópavogskirkju syngja. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í safnaðarheimilinu
Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Graduale Liberi
syngur við athöfnina undir stjórn
Sunnu Karenar Einarsdóttur. Guðbjörg
Jóhannesdóttir þjónar, auk ferming-
arbarna og messuþjóna. Organisti er
Magnús Ragnarsson.
Í ljósi flensufaraldurs verður eins og
sakir standa ekki boðið upp á hádeg-
isverð að messu lokinni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20.
Kór Lindakirkju syngur undir stjórn
Óskars Einarssonar. Prestur er
Guðmundur Karl Brynjarsson
MOSFELLSKIRKJA í Grímnesi |
Föstumessa miðvikudagskvöld 18.
mars kl. 20.30. Sr. Egill Hallgrímsson
sóknarprestur og sr. Kristján Valur
Ingólfsson biskup annast prestsþjón-
ustuna.
NESKIRKJA | Helgistund kl. 11.
Steingrímur Þórhallsson organisti
flytur tónlist og leikur undir söng. Sr.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir flytur
ritningarorð og hugvekju.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Fermingarmessa í Njarð-
víkurkirkju (Innri) kl. 10.30 og 13.30.
Sr. Baldur Rafn og sr. Brynja Vigdís
þjóna fyrir altari og félagar úr kirkju-
kórnum leiða söng undir stjórn Stefán
H. Kristinssonar organista.
Samkvæmt tilmælum biskup Íslands
verður ekki altarisganga.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Guðs-
þjónusta kl. 11. Kirkjukór Reynivalla-
prestakalls leiðir sálmasöng og mes-
susvör. María Qing Sigríðardóttir
leikur á selló. Organisti er Guðmundur
Ómar Óskarsson. Ritningarlestra lesa
sóknarnefndarformennirnir Sigríður
Klara Árnadóttir og Björn Jónsson. Sr.
Arna Grétarsdóttir sóknarprestur þjón-
ar fyrir altari og prédikar. Messunni
verður útvarpað á Rás 1. Sprittbrúsi
verður í anddyri kirkjunnar, alt-
arisganga fer ekki fram.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng og und-
irleikinn annast Tómas Guðni Eggerts-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Rabb um Ca-
esar. Árni Indriðason talar. Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr.
Ása Laufey Sæmundsdóttir héraðs-
prestur þjónar. Friðrik Vignir Stef-
ánsson er organisti. Sveinn Bjarki og
leiðtogar sjá um sunnudagaskólann.
Félagar úr Kammerkórnum leiða al-
mennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar
og samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hall-
grímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20.
Vox Felix, ungmennakórinn á Suð-
urnesjum, syngur undir stjórn Arnórs
Vilbergssonar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Helga Björk Jónsdóttir djákni
prédikar og kveður eftir þriggja ára
djáknaþjónustu í Garðabæ. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari. Fé-
lagar í kór Vídalínskirkju syngur syngja
og organisti er Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskóli sem Matthildur
Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi leiðir.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonBreiðabólstaðarkirkja í Vesturhópi.
✝ Ólafur GuðjónEyjólfsson
fæddist á Ísafirði 16.
júní 1942. Hann lést
3. mars 2020. Hann
var sonur hjónanna
Guðrúnar Péturs-
dóttur húsmóður og
Eyjólfs Guðmundar
Ólafssonar sjó-
manns. Hann var
einn af átta börnum
þeirra. Systkini
Ólafs eru: Sigurborg Ein-
arsdóttir, gift Sören Sörenssyni,
hann er látinn. Þau eiga þrjú
börn; Þorvaldur Einarsson, giftur
Friðriku Björnsdóttur og eiga
þau fjögur börn; Einar Eyjólfur
Eyjólfsson (látinn), giftur Elínu
seint á ævinni og giftu þau sig árið
2001. Didda, eins og hún var alltaf
kölluð, lést árið 2014. Óla varð
ekki barna auðið en nóg átti hann
af systkinabörnum sem hann hugs-
aði vel um. Einnig voru börn og
barnabörn Diddu hluti af lífi Óla.
Ólafur, eða Óli málari eins og
hann var alltaf kallaður, fór
snemma á sjóinn með föður sínum
og reru þeir lengi saman á bátnum
Báru ÍS. Óli málari, eins og gælu-
nafnið segir til um, lærði svo mál-
araiðn hjá Didda málara. Óli vann
mikið með dóttur Didda, Bjarndísi
Friðriksdóttur, og var mikill vin-
skapur þeirra á milli.
Óli hafði mikla gleði af því að
smíða skipamódel og mála lista-
verk.
Óli bjó alla tíð á Hlíðarvegi 45,
alveg þar til hann flutti í íbúðir
aldraðra á Hlíf í október síðast-
liðnum.
Útför Óla verður gerð frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 14. mars 2020,
og hefst athöfnin klukkan 14.
Kristínu Hjaltadótt-
ur. Þau eiga tvo
syni; Ólafur, giftist
Jónínu Sigríður Sig-
urjónsdóttur. Hún
er látin; Helga Eyj-
ólfsdóttir, gift Pétri
Jónssyni. Þau eiga
tvo syni; Ingólfur
Birkir Eyjólfsson,
giftur Sigrúnu
Guðmundsdóttur.
Þau eiga þrjár dæt-
ur; Þráinn Eyjólfsson, giftur
Grétu Gunnarsdóttur. Þau eiga
þrjú börn; Rúnar Eyjólfsson.
Barnsmóðir hans er Auður Vals-
dóttir. Þau eignuðust þrjú börn.
Óli kynntist eiginkonu sinni,
Jónínu Sigríði Sigurjónsdóttur,
Bátur líður út um eyjasund,
enn er vor um haf og land.
Syngur blærinn einn um aftanstund,
aldan niðar blítt við sand.
(Jón Sigurðsson)
Nú situr þú aftur við stjórnvöl-
inn á glæsilegu fleyi við ljúfa und-
iröldu í átt að sólarlaginu.
Hvergi kunnirðu betur við þig
en um borð í bátum þínum úti á
Ísafjarðardjúpi, elsku frændi.
Það eru ótal ferðirnar sem við
frændurnir höfum farið um Ísa-
fjarðardjúpið, út fyrir Ritinn og
alla leið norður í Furufjörð.
Margar þessara ferða eru mjög
minnisstæðar eins og sú fyrsta
sem ég fór aðeins 6 ára. Þá var
farið á Báru ÍS 66 út á Djúp á
hörpuskel. Eitthvað yrði sagt í
dag ef maður myndi senda 6 ára
barn út á sjó í dagróður á skel-
veiðar. En hvergi fannst manni
maður vera öruggari en einmitt
þarna. Athugull og öruggur mað-
ur í brúnni sem passaði upp á að
nafni sinn hefði það sem allra
best. Þetta var aðeins fyrsta ferð-
in af óteljandi mörgum sem við
frændur fórum. Alveg sama hve
mikið var að gera, ef litla frænda
frá Eskifirði langaði á sjóinn var
hreinlega annað lagt til hliðar og
skutlast í það minnsta út undir
Óshlíð til að ná í nokkra gula í
soðið. Áhugi og virðing fyrir haf-
inu hefur fylgt mér alla tíð síðan
ég fékk að fara fyrstu ferðina
með þér út á Djúpið. Þessi áhugi
og elja þín í að viðhalda honum
hefur enda orðið til þess að þetta
er það sem ég hef gert að starfi
mínu í dag, það er að sækja sjó-
inn. Mér er efst í huga þakklæti
fyrir allan þann tíma sem við
eyddum saman hvort sem var á
sjó eða landi.
Það var ekki bara á sjó sem við
fórum í stórkostlegar ferðir, við
fórum um allan Vestfjarðakjálk-
ann eins og hann lagði sig á hvíta
Skódanum sem á eftir að vera
mér í fersku minni svo lengi sem
ég lifi á þessari jörð. Það sem það
var mikið sport að fá að vera aft-
ur í boxinu á honum þegar farið
var frá Hlíðarveginum og niður í
beituskúr eða niður á bryggju.
Þessi bíll var auðkenni þitt á landi
meðan þú áttir hann, frændi kær.
Við meira að segja fórum á hon-
um langleiðina upp að Snæfells-
skála um árið sem mætti eflaust
teljast sem mikið afrek þar sem
þessi bíll var nú ekki gerður til
mikilla ferða utan þéttbýlis og
hvað þá upp á fjöll.
Það verður ansi skrítið að
koma til Ísafjarðar án þess að fá
að hitta þig, hvorki á Hlíðarveg-
inum né í Ólakaffi. En ég er virki-
lega þakklátur fyrir að við fjöl-
skyldan skyldum hafa fengið
tækifæri til þess að koma vestur
síðastliðið vor og hitta þig þó að
stutt væri. Hver stund er svo
gríðarlega dýrmæt því enginn
veit sína ævi fyrr en öll er. Ég
þakka fyrir allar þær stundir sem
við áttum saman. Ég þakka fyrir
allan þann stuðning sem þú sýnd-
ir mér í gegnum tíðina, sama
hvað ég tók mér fyrir hendur.
Þegar sá tími kemur munum við
aftur róa saman og lenda í hinum
ýmsu ævintýrum.
Takk fyrir allt, elsku frændi.
Ólafur Kristinn Kristínarson.
Hann Óli var á 17. ári er hann
byrjaði að mála með pabba, Didda
málara, og fór hann fljótlega á
samning og unnu þeir ásamt fleir-
um um alla firði og víðar. Óli þessi
ljúfi drengur varð um leið einn að
fjölskyldu okkar, fóstbróðir og
átti hann sérlega fallega vináttu
við foreldra mína, okkur systkinin
og fjölskyldur. Mamma mín Sissa
varð hans trúnaðarvinur og það
var mér heiður að erfa þá vináttu.
Óli var skemmtilegur vinnufélagi,
húmorinn og hnyttnu tilsvörin
hans aldrei langt undan og naut
ég þess að hann og Gunnar Hólm
komnir á aldur komu með mér á
mála í Mjólká og það var stór-
skemmtileg upplifun, sögur og
hlátur alla daga. Hann var virki-
lega vandaður fagmaður og
snyrtimennskan í fyrirrúmi, list-
hagur, málaði myndir, smíðaði
bátamótel, slípaði steina og fleira.
Síðan fór Óli á sjóinn með pabba
sínum á Bárunni á skaki og rækju
og þar átti hann marga dygga
vini. Síðast átti hann Færeying og
ætlaði að nefna hann Óla, mér
fannst og fleirum að hann ætti að
heita Óli málari „get ég það“
spurði hann þessi hógværi maður,
er ég merkti bátinn, skrapp hann
í bíltúr og er hann kom til baka
roðnaði hann eins og skólastelpa
en var harla glaður með nafnið.
Óli byggði ásamt fjölskyldu
sinni blokk á Hlíðarveginum og
bjó sér fallegt heimili. Hann var
listakokkur bauð oft í mat og kom
iðulega til okkar. Hann átti stóran
systkinahóp sem honum þótti
vænt um og þeirra börn. Valdi
bróðir var hans besti vinur og
Friðrika kona hans dýrmæt mág-
kona og fallegur tryggðavinur.
Kristín Lukka dóttir þeirra bjó
hjá Óla í námi sínu á Ísafirði og
hugsaði vel um hann og gaf hon-
um nafna, Óla Kristin, sem hann
var stoltur af og öllum fannst þeir
líkir nafnarnir, rauðhærðir,
snaggaralegir og taktlíkir. Í fleiri
ár eftir að Rúna mamma hans lést
fóru Óli og pabbi hans til Eski-
fjarðar og héldu jólin þar.
Á árum áður var Óli mikill
dansari og flottur í tjúttinu, léttur
í spori og eftirsóttur dansfélagi.
Svo kynntist hann Diddu og flutti
hún til hans og giftu þau sig og
áttu saman nokkur góð ár. Didda
hugsaði vel um hann og heimilið
uns hún lést.
Óli hafði kaffihorn í skúrnum
sínum og var það vinsælasta kaffi-
hús landsins og þar komu sjó-
mennirnir í kaffi eftir veiðar
dagsins, vinir hans og gamlir Ís-
firðingar og var oft glatt á hjalla
og nafngjöfin á kaffihorninu kom
sjálfkrafa „Ólakaffi“. Didda var
ótrúlega dugleg að steikja kleinur
og baka annað meðlæti alla daga
og vildi að hann gæti boðið með
kaffinu í horninu sínu.
Síðustu ár voru Óla erfið með
heilsuna og hann hafði oft ekki
farið vel með sig vinurinn en hann
var ánægður að flytja á Hlíf síð-
asta sumar, salí sæll þar og naut
sín meðan hann gat innan um gott
fólk. Hann átti sjúkrahúslegur sl.
ár og naut heimaþjónustu sem
hann mat mikils og vil ég þakka
kærlega fallega umönnun við
hann og Kristjáni Lyngmó fyrir
einlæga tryggð. Ég á eftir að
sakna vinar en það hefur verið allt
að því daglegt samband í fjölda
ára og við systkinin þökkum ára-
tuga yndislega tryggðavináttu og
Guð gefi honum góða heimkomu
til ástvina sem fóru fyrr.
Bjarndís málari.
Ólafur Guðjón
Eyjólfsson
Elsku Trausti
minn, þú yndislegi
maður, ert farinn frá
okkur allt of fljótt.
Vorið 2010 var það svo að mig
vantaði íbúð til leigu fyrir mig og
son minn. Mér var bent á að það
væri að losna lítil íbúð í Stórholt-
inu. Ég leitaði upplýsinga og var
raunin sú að ég fékk þessa íbúð til
leigu. Þetta skref er nú stór hluti
af hjarta mínu því þetta vor
kynntist ég dásamlegum manni.
Á þeim tíma sem ég leigði hjá
Trausta, fyrst í litlu íbúðinni og
síðar á efri hæðinni, þróaðist mik-
ill vinskapur okkar á milli. Við
tengdumst sterkum böndum enda
Trausti Jóhannsson
✝ Trausti Jó-hannsson
fæddist 13. maí
1946. Hann lést 24.
febrúar 2020.
Útför Trausta
fór fram 6. mars
2020.
bæði með rætur á
Svalbarðsströnd.
Það að vera einstæð
móðir og að fjöl-
skyldan var hinum
megin í firðinum gat
verið erfitt, en þá var
rosalega gott að eiga
Trausta að, því betri
vin og leigusala er
vart að finna. Eitt
gott dæmi er að þeg-
ar mig vantaði start
á bíldrusluna var ég varla búin að
berja að dyrum þegar hann var
mættur út til að gefa mér start og
ekki skipti það máli hvernig viðr-
aði.
Ég tek með mér í framtíðina
helling af minningum en ekki síð-
ur lærdóm af útsjónarsemi og
nýtni frá þér vinur minn. Minning-
arnar, vinátta og samvera munu
lifa í hjarta mér alla ævi kæri vin-
ur. Ég kveð þig með mikilli sorg í
hjarta. Hvíl í friði elsku Trausti.
Ingibjörg Björnsdóttir.
Minningar