Morgunblaðið - 19.03.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
FaGfÓLk Í
SaUmAvÉLuM
Sala á íslenskum Voxis-hálstöflum
og Keynatura-fæðubótarefni er
hafin í Kína, en Voxis er notað við
kvef- og flensueinkennum.
Vörurnar eru framleiddar af
fyrirtækinu SagaNatura. Í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að íslenska
hvönnin spili lykilhlutverk í virkni
Voxis því í jurtinni séu veiruvirk
efni og efni sem mýki hálsinn. Vör-
urnar eru sagðar afrakstur ára-
langs rannsóknar- og þróun-
arstarfs hér á landi.
Fyrstu tvær sendingarnar af
Voxis fóru til Kína fyrir áramót og
seldust þær strax upp. Voxis er
ekki selt í verslunum í Kína heldur
á netinu og í gegnum sjónvarp.
„Vegna kórónafaraldursins var á
tímabili erfitt að koma vörunum inn
í Kína en þeim hindrunum hefur nú
verið rutt úr vegi og er næsta send-
ing nú á leið á markaðinn,“ segir í
tilkynningunni.
SagaNatura er með samning við
Orka Iceland um dreifingu á vörum
wfélagsins í Kína. Stjórnendur
SagaNatura áttu ásamt fulltrúa
dreifingaraðila fund í liðinni viku
með viðskiptafulltrúa í kínverska
sendiráðinu á Íslandi þar sem hann
lýsti ánægju með þessi viðskipti.
Íslenskar hálstöflur
rokseljast í Kína
Hálfstöflur Lilja Kjalarsdóttir og Sjöfn Sigurgísladóttir frá SagaNatura
ásamt Guisheng Chen í sendiráðinu og David Tong-Li frá Orka Iceland.
Samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir
Verkefni sem Vegagerðinni er heimilt að bjóða út sem samvinnuverkefni með einkaaðilum
Heimild: Frumvarp til laga
um samvinnuverkefni um
vegaframkvæmdir
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: L
of
tm
yn
di
r
Tvöföldun
Hvalfjarðarganga
■ Val á legu nýrra ganga
liggur ekki fyrir
■ Undirbúningur ekki hafi nn
■ Hrein einkaframkvæmd
■ Kostnaðarmat 21,8 milljarðar
■ Vegstytting 59 km
■ Áætluð dagsumferð
7.300 ökutæki
Sundabraut
■ Val á leið liggur ekki fyrir
■ Undirbúningur ekki hafi nn
■ Hrein einkaframkvæmd
■ Kostnaðarmat
60-74 milljarðar
■ Vegstytting 7-9 km
■ Áætluð dagsumferð árið
2030 m.v. tvo leiðakosti:
32.300 á brú eða
göng yfi r Elliðaárvog
11.400 á brú yfi r
Kollafjörð
Hringvegur um Hornafjarðarfl jót
■ 18 km veglína
■ Framkvæmdir
hafnar við 1. áfanga
■ Blönduð leið við
fjármögnun
■ Kostnaðarmat
4,9 milljarðar
■ Vegstytting 12 km
■ Áætluð dagsumferð
1.200 ökutæki
Hringvegur um
Mýrdal og jarðgöng
í Reynisfjalli
■ Nýr vegur
sunnan Víkur
og jarðgöng
■ Umhverfi smat hefur
ekki farið fram
■ Hrein einka-
framkvæmd
■ Kostnaðarmat
6,5-7,9 milljarðar
■ Vegstytting 2 km
■ Áætluð umferð
2.600 ökutæki
Hringvegur
norðaustan Selfoss
og brú á Ölfusá
■ 3,6 km
og brú við
Laugardæli
■ Umhverfi smati lokið
■ Hrein einka-
framkvæmd
■ Kostnaðarmat
6,1 milljarður
■ Vegstytting 0,4 km
■ Áætluð dagsumferð
5.500 ökutæki
Axarvegur
■ 22 km vegarkafl i
■ Umhverfi smati lokið
■ Blönduð leið við
fjármögnun
■ Kostnaðarmat 4 milljarðar
■ Vegstytting 68 km
■ Áætluð dagsumferð
220 ökutæki
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Vegagerðin fær ótvíræða heimild til
að semja, að undangengnu útboði, við
einkaaðila um samvinnu um sex til-
teknar samgönguframkvæmdir á
þjóðvegakerfinu skv. lagafrumvarpi
sem Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra hefur lagt fram á Al-
þingi. Segir í greinargerð þess að
setja þurfi skýran ramma um þær að-
stæður ,,þar sem framkvæmdir á
þjóðvegakerfi Íslands og fjármögnun
þeirra gætu verið með samningum
settar í hendur einkaaðila gegn því að
þeim verði veitt heimild til að inn-
heimta gjald af umferð um mann-
virkin um tiltekinn tíma“.
Áætlað er að samvinnuverkefnin
geti skapað allt að 4.000 ársverk.
Fjallað er í ítarlegu máli um verk-
efnin sex í greinargerð frumvarpsins.
Þau verkefni sem lagt er til að verði
unnin sem samvinnuverkefni í frum-
varpi ráðherrans eru eftirfarandi:
Hringvegur norðaustan Selfoss og
brú á Ölfusá, hringvegur um Horna-
fjarðarfljót, Axarvegur, tvöföldun
Hvalfjarðarganga, hringvegur um
Mýrdal og göng í Reynisfjalli og loks
möguleg lagning Sundabrautar.
Einnig kemur fram að ráðuneytið
kannar nú, í samstarfi við Vegagerð-
ina, forsendur fyrir því að áformuð
jarðgangauppbygging á Austurlandi
fari fram í samvinnu við einkaaðila
með sama hætti.
Vegir, göng og Sundabraut
Farið er yfir þau verkefni sem lagt
er til að heimilt verði að ráðast í með
einkaaðilum og kostnaðarmat á
hverri framkvæmd fyrir sig er sett
fram. Þannig er m.a. gert ráð fyrir að
framkæmdir við hringveginn norð-
austan Selfoss og brú á Ölfusá gætu
kostað nálægt 6,1 milljarði kr. Fram-
kvæmdir við hringveginn um Horna-
fjarðarfljót gætu kostað 4,9 milljarða
en í samgönguáætlun er gert ráð fyr-
ir 50% hefðbundinni fjármögnun
þessa verkefnis.
Framkvæmdir á Axarvegi frá
vegamótum Skriðdals- og Breiðdals-
vegar yfir Öxi og niður í botn Beru-
fjarðar gætu kostað um 4 milljarða.
Áætlað er að fara blandaða leið við
fjármögnun þess verkefnis.
Tvöföldun Hvalfjarðarganga yrði
samkvæmt frumvarpinu hrein einka-
framkvæmd eða svokölluð reiðu-
greiðsluleið og hefur kostnaður verið
áætlaður 21,8 milljarðar kr. með fyr-
irvörum um ýmis óvissuatriði. Und-
irbúningur að þessari framkvæmd er
ekki hafinn og ekki liggur fyrir hvaða
leið verður fyrir valinu. Fram-
kvæmdir um Mýrdal og gerð ganga í
Reynisfjalli gæti kostað 6,5-7,9 millj-
arða og er einnig áætlað að um hreina
einkaframkvæmd verði að ræða.
Loks er birt lýsing á mögulegum
framkvæmdum við lagningu Sunda-
brautar en hún er ekki á samgöngu-
áætlun. Gert er ráð fyrir hreinni
einkaframkvæmd við gerð Sunda-
brautar og reiðugreiðsluleið en tekið
er fram að val á leið liggi ekki fyrir.
Fram fari bæði nýtt mat á kostnaði
og félagshagfræðileg ábatagreining á
þeim kostum sem komið hafa fram.
Fýsilegasti kosturinn verði svo festur
í skipulagi sem framtíðarlausn.
Miðað við útfæslur sem liggja fyrir
hefur kostnaður við lagningu Sunda-
brautar verið metinn á bilinu 60 til 74
milljarðar kr. omfr@mbl.is
Fái að semja
um sex stór-
framkvæmdir
Vegagerð verði heimilað að semja
við einkaaðila um vegaframkvæmdir
Morgunblaðið/Kristinn
Vegaframkvæmdir Opnað er á heimild Vegagerðarinnar til að semja við einkafyrirtæki um framkvæmdir og bent er á
að reynsla erlendis sýni að einkaaðilar nái að jafnaði að ljúka við framkvæmdir á styttri tíma en opinberir aðilar.