Morgunblaðið - 19.03.2020, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Samfélagsmiðlaáhrifavaldurinn Pat-
rekur Jaime er aðalstjarnan í nýja
raunveruleikaþættinum Æði sem
kemur inn á Stöð 2 Maraþon á næstu
dögum.
Eru þættirnir stærsta leikstjórnar-
verkefni Jóhanns Kristófers, eða Jo-
ey Christ eins og hann er jafnan kall-
aður, en hann leikstýrir þáttunum.
Kollegarnir litu inn í stúdíóið til
Kristínar, Jóns Axels og Ásgeirs Páls
í gær og ræddu um starfið á bak við
þættina.
Spurður út í það um hvað þættirnir
fjölluðu sagði Patrekur að þeir fjöll-
uðu í raun um líf hans, vina hans og
fjölskyldu.
Erfitt fyrst en varð svo „æði“
„Ég vinn við samfélagsmiðla, það
er það sem ég geri. Ég er bara að
„flippa“ og lifa,“ sagði hann.
Sagði Patrekur að honum hefði
þótt erfitt fyrstu tvo dagana að venj-
ast að hafa myndavélar á eftir sér all-
an daginn. „En svo fannst mér það
æði,“ bætti hann við brosandi og
sagðist hafa verið hættur að taka eftir
myndavélunum í lokin. Jóhann stað-
festi að þættirnir fylgdust með átta
dögum í lífi Patreks.
„Við sýnum bara eins mikið og
Patti vill sýna okkur í rauninni. Við
erum ekki að reyna að troða okkur í
hans nánustu stundir en við vorum
með honum meira og minna í átta
daga,“ sagði Jóhann. „Það er mjög
gaman að fylgjast með honum. Ég
get alveg skrifað undir það,“ bætti
leikstjórinn ungi við.
Aðspurður sagði Patrekur að hann
fengi allar sínar tekjur við starf sitt
sem samfélagsmiðlastjarna. Sagðist
hann njóta starfsins vel.
„Mér finnst það æði. En það er líka
óvissa. Ég veit aldrei hundrað pró-
sent hvað ég er með í tekjur í hverj-
um mánuði,“ sagði hann.
Sagði hann að ólíkt því sem margir
skemmtikraftar og listamenn hafa
fengið að upplifa hefði samkomu-
bannið jákvæð áhrif á starf hans sem
samfélagsmiðlastjarna.
„Það er nú bara æði fyrir mig. Það
eru allir að fylgjast með því sem ég er
að gera. Það er bara að fara að gefa
mér tvöfalt meira,“ sagði Patrekur
kíminn í bragði.
Þegar kollegarnir voru spurðir út í
aldurstakmark raunveruleikaþátt-
anna var Jóhann fljótur að svara því
að þeir væru, eftir því sem hann best
vissi, fyrir alla aldurshópa.
„Krakkar hafa séð allt í dag. Það er
allt bara einu „klikki“ í burtu frá
þeim. Þannig að ég held að fólk sé
ekki að fara að sjá neitt sem það hef-
ur ekki séð áður,“ sagði hann.
Samkomubannið
jákvætt fyrir Patrek
Patrekur Jaime, aðal-
stjarnan í nýja íslenska
raunveruleikaþættinum
„Æði“, mætti ásamt
leikstjóra þáttanna, Jó-
hanni Kristófer, í morg-
unþáttinn Ísland vaknar
í gær og spjallaði um
nýja og spennandi tíma.
Stjarna Samfélagsmiðlastjarnan Patrekur Jaime er aðalstjarnan í raun-
veruleikaþáttunum Æði sem sýndir verða á Stöð 2 fyrir helgi.
Ljósmynd/K100
Kollegar Jóhann Kristófer, leikstjóri Æðis, mætti ásamt Patreki Jaime sam-
félagsmiðlastjörnu í stúdíó K100 og spjallaði um verkefnið.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri Samtaka í sjávar-
útvegi, stofnaði á dögunum Face-
book-síðuna Björtu hliðarnar sem
svar við öllum þeim neikvæðu frétt-
um sem nú dynja á fólki í miðjum
heimsfaraldri sem nú geisar. Hún
ræddi um síðuna við Loga Bergmann
og Sigga Gunnars í Síðdegisþætt-
inum í vikunni.
„Þetta byrjaði eiginlega um
helgina. Ég var bara eins og aðrir,
sat heima hjá mér og það var búið að
tilkynna um þetta samkomubann en
það var ekki brostið á. Ég er með
tveggja ára gemling sem er búinn að
krota sig allan út og á alla veggi á
nýju heimili sem er enn óklárað og
engin eldunaraðstaða. Og ég hugsaði
Guð minn góður, hvað er ég að fara
að stíga inn í,“ sagði Heiðrún.
Erum heltekin af aðstæðunum
„Þetta eru áskoranir fyrir okkur
fjölskylduna og ég hugsaði bara
hvernig ætla ég að komast í gegnum
þetta. Við erum öll þannig að maður
verður dálítið heltekinn af þessum
aðstæðum. Maður fer að fylgjast allt-
af með fréttamannafundunum á
hverjum degi. Það er orðin fíkn að
heyra í sóttvarnalækni,“ sagði hún.
„Endurtekin eymd. Það getur ekki
gert manni gott. Þannig að ég hugs-
aði, nú verð ég að gera eitthvað í
þessum málum,“ sagði Heiðrún.
Það eru allir í sömu pælingum
Sagðist hún hafa viljað búa til ein-
hvers konar vettvang fyrir aðra til að
taka þátt í að líta á björtu hliðarnar.
„Það eru allir í sömu pælingum.
Hvernig ætla ég að lifa þetta af. Að
vera fastur heima hjá sér og geta
ekki verið í félagslegum sam-
skiptum,“ sagði Heiðrún.
Sagði hún að Facebook-síðan ætti
að vera vettvangur fyrir fólk til að
deila sín á milli jákvæðum og
skemmtilegum hlutum.
„Sjá kómísku aðstæðurnar í þess-
ari súrrealísku tilveru sem við erum
allt í einu orðin hluti af.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jákvæðni Heiðrún Lind hvetur fólk til að líta á björtu hliðarnar í þeim erf-
iðu aðstæðum sem heimurinn stendur nú frammi fyrir vegna COVID-19.
Vill líta á björtu
hliðarnar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir spjallaði í vikunni við
Loga Bergmann og Sigga Gunnars um Facebook-
síðuna Björtu hliðarnar sem hún stofnaði til að
hjálpa fólki að deila jákvæðni í þeim aðstæðum
sem heimurinn tekst á við um þessar mundir
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Logi Berg-
mann og Siggi
Gunnars,
þáttastjórn-
endur Síðdeg-
isþáttarins á
K100, settu
sér það verk-
efni í vikunni
ásamt Ragn-
ari Eyþórssyni að velja fimm sjón-
varpsseríur hver sem þeir mældu
með til hámhorfs (e. binge watch-
ing) fyrir þann fjölda fólks sem nú
neyðist til að sitja heima í sóttkví
eða einangrun.
Ræddu þeir sína uppáhalds þætti
og hversu vel þeir pössuðu við þann
raunveruleika sem landsmenn
þurfa nú að horfast í augu við.
Hámhorfs-lista kolleganna má
finna á vef K100-útvarpsstöðvar-
innar, K100.is.
Völdu fimm
seríur hver
Þættir fyrir sóttkví