Fréttablaðið - 19.09.2020, Page 96
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
BAKÞANKAR
Ég elska fuglana í hverfinu sem margir dvelja í kringum húsið okkar árið um kring.
Á vorin erum við vakin fyrir
allar aldir með ástarsöngvum
enda kviknar f ljótt líf í nálægum
görðum. Fuglarnir una sér vart
hvíldar við að koma upp ung-
viðinu, en þegar haustar eru
ungarnir f lognir á braut og hörð
lífsbaráttan blasir við. Einhverjir
þeirra verða vonandi í vetrar-
fóðrun hjá okkur – enda á við góða
hugleiðslu að sitja með kaffibolla
við gluggann og horfa á þá háma í
sig steiktan lauk og rúsínur.
En það eru f leiri en fiðraðir ung-
arnir sem f ljúga úr hreiðrinu, því
nú sitjum við hjónin ein í kotinu
eftir að síðasta af kvæmið f lutti
að heiman. Margir fagna þessum
tímamótum – það sést víða. Mið-
aldra hjón verða eins og beljur á
vorin – hlaupa út og suður og telja
að nú sé þeirra tími loks kominn.
Matreiðsla á kvöldin leggst af,
enda tekur því ekki að elda fyrir
tvo og matseðlar á veitingahúsum
í hverfinu lærast utanbókar. Tóm
herbergi og auðir skápar fyllast
f ljótt af dóti hjónanna, enda loks
hægt að dreifa almennilega úr sér á
eigin heimili.
En eftir að dóttirin f laug á vit
ævintýranna nú á haustdögum, sat
eftir klumpur í hálsinum dagana á
eftir og engin fagnaðarlæti brutust
út. En þetta er víst lífsins gangur
og við eins og fuglarnir fylgjumst
stolt með ungunum hefja sig til
f lugs og halda út í lífið. Á þessari
stundu er treyst á að uppeldið skili
sér alla leið, að ungarnir plumi sig
og eigi gæfuríkt líf í vændum.
Hundarnir á heimilinu tóku
þessum tímamótum hins vegar
fagnandi enda f ljótir að leggja
undir sig herbergi heimasætunnar
og ólíklegt að það verði gefið eftir
átakalaust.
Flogið úr
hreiðrinu
Verslun í Kringlunni
Laugarásvegur 1
Pantaðu á skubb.is
OG FÁÐU HEIMSENT
Fyrir svanga
ferðalanga
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020