Hvöt - 01.02.1939, Síða 4

Hvöt - 01.02.1939, Síða 4
o HVÖT Hvöt cskar lesendum sínum allra heilla og væntir þess, að efni hennar megi vekja þá til umhugsunar um þau menning- armál, sem hún vill berjast fyr- ir. Hún vill og hvetja þá til starfa og til stórra átaka fyrir bindindishugsjónina. Hún vill benda þeim á þá staðreynd, að í kjölfar áfengisnautnarinnar fylgir margt, sem er gróandi þjóðlífi Þrándur í götu. En fyrst og fremst vill Hvöt beina orð- um sínum til æskunnar. Æskan verður stöðugt að vera á verði gegn þeim Níðhöggum, sem naga vilja rætur lífstrésins. Hún á, að gera sér ljóst, í hverju hætturnar liggja, og á að her- væðast gegn þeim og aldrei semja frið. Hún á að taka áfengismálin til rækilegrar athugunar. Hún á að kynna sér rök andstæðing- anna og gera sig hæfa til að verja mál sín af þekkingu. Og þeirrar þekkingar getur hún auð- veldlega aflað sér, því saga lífs- ins er skráð skýrum stöfum og auðlesnum. Og þar má lesa þau sannindi, að áfengið færi lífinu enga heill. Æskunnar er fram- tíðin og forráð þjóðarinnar. Á- íengið lamar einstaklingana. skerðir vilja þeirra og þor. En glæst framtíð krefst heilbrigðra, ákveðinna og ;sta:rfsamra ein- staklinga, sem fórnað geti miklu, þá nauðsyn krefur. Sá, sem neitar sér um áfengi. færir ekki fórn. Hann hafnar hættulegri venju, sem fátt gott færir, en ótalmargt ilit. En hann styrkir sjálfan sig með þessu og um leið þjóð sína- og eflir þannig frelsi hennar og fullveldi. Stofnun og starfsemi S. B. S. byggist á þeirri megin hvöt, sem hver heilbrigð og djarfsýn. æska hlýtur að hylla, og hún er að brjóta í sundur fjötur áfengis- nautnarinnar. Hún vill afnema þessa hættulegu og eyðileggj- andi venju, sem mörgum glæsi- legustu börnum þjóðarinnar hef- ur grand búið, sem hefur merg- sogið heilbrigði og viðnámsþrótt, lamað fjör og frelsi, fórnað lífi og vonum. S. B. S. hefur hlotíð mikið fylgi meðal æskulýðsins, en það þarf á fylgi allrar œsJmnnar að halda. Þið, sem enn hafið eigi gjörzt félagar, gangið sem fyrst inn í félagsstarfsemi Sam- bandsins. Réttið því örvandi hönd. Styrkið það í baráttunni. Gefið því stærri sigra. Látið drauma þess rætast. Veitið því beggja skauta byr. Það er Sam- bandinu, en einnig þjóð ykkar og ykkur sjálfum fyrir beztu.

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.