Hvöt - 01.02.1939, Side 7

Hvöt - 01.02.1939, Side 7
HVöT 5 verið notað til þess að útrýma snýkjudýrum, sem aækja að ýmsum nytjajurtum. Læknis- fræðin segir að nikotinið í tó- bakinu hafi laman,di á,hrif á taugakerfið, og þá ekki sízt á hið ósjálfráða taugakerfi (sym- athieus). En menn venjast þessu eitri að vissu marki. Þó er þaö svo, að stór skammtur af því er ávallt banvænn. Fyrir nokkrum árum vildi það tili að mikill tó- baksmaður saup í cgáti á sterk- um tóbakslegi, sem hann hugði vín. Maðurinn féll niður stein- dauður á sama augabragði. Margir munu hafa séð hinar hröðu eiturverkanir tóbaksins á börn eða unglinga. Þær llýsa sér í því að köldum svita slær út um hörundið, þá gera, svimi, ógleði og uppköst vart við sig, jafnvel bráður niðurgangur. Menn verða aflvana. Æðin verður vart finnanlleg. Síðast falla menn í svefn. Dæmi eru til þess að börn hafa dá'ð af slíkri bráðri tó- bakseitrun. Meðan á svefninum stendur vinnur lífs-aflið sitt miki’.sverða hreinsunarstarf að losa llíkamann við eitrið. Hin langvinnu áhrif tóbaks- notkunarinnar á menn eru nokk- uð mismunandi eftir því hve hraustir þeir eru fyrir. Sumir menn þola þetta og aðrar eitur- tegundir miklu betur en aðrir, eins og Sigmundur Völsungs- son þoldi eitrið betur en Sin- f jötlli sonur hans. Konur þola að jafnaði miklu lakar eituráhrif tóbaksins en karlar. Stafar það af því, að taugakerfi þeirra og kirtilstarfsemi er ekki í svo föst- um skorðum og hjá karlmönn- um. Hin langvinnu áhrif tóbaks- nautnar lýsa sér á margan hátt. Einna ákveðnust: eru áhrifin á taugarnar og þar með á hjarta og æðar. Langvinn tóbaksnautn veldur því að kalk setzt í æð- arnar. Það er hinni algengu æða- kölkun. f sumurn löndum eru sjúk- dómar í hjarta og æðum talin tíðasta dánarorsökin. Efalaust á tóbaksnautnin allmikinn þátt í þessum dánarorsökum, þó þess sé sjaldnast getið. Fáir munu þeir tóbaksmenn, er ná háum aldri, sem sleppa með öllu við þann kvalafulla sjúkdóm, sem kallaður er Angina pectoris sem er beinlínis afleiðing kolkunar í æðaveggjum hjartans, og þá sér- staklega í æðumi þess. Langvinn tóbaksnautn dregur úr starfs- þrótti allra líffæra. Hún veikir meltinguna;, veldur kyrrstöðu í þörmum og flýtir einnig á þann hátt fyrir æðakölkun, Hún sljófgar þann hluta heilans, sem ræður yfir dómgreind og viti. Hún sljófgar starfsþrótt horm- onmyndandi kirtla, svo sem skjaldkirtilsi, nýrnahettanna og kynkirtlum. Jafnvægið á þess-

x

Hvöt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.