Hvöt - 01.02.1939, Side 11
H V ö T
9
ingamenn láta, sér ekki skiljast,
að tóbakssvæ’a sé ungbörnum
óþægileg' og jafnvel svo eitruð,
að þau verði fárveik af. Ég hefi
stundum, orðið að setja ofan í við
menn fyrir þetta. Er ekki óal-
gengt, að menn taka þetta illa,
upp og þykir óþörf afskiptasemi.
Margir menn reykja við vinnu
sína, bæði út: \ið og inni. Hirða
þeir iítt um það, þó þeir spilli
lóftinu við innivinnu og baki
öðrum óþægindum eða eyða tals-
verðu af vinnutíma, sínum til
þess. að þjóna ílöngun sinni.
Ekkert er eðli’egra, en að þeir,
sem hvorki neyta víns né tóbaks,
séu látnir sitja fyrir öðrum um
áríðandi c.g mikilsverð störf.
Þannig ætti alls ekki að taka
menn, sem reykja, til þess að
kenna börnum, vegna þess hve
eftirdæmið er afsýkjandi.
Eg býst við, að ekki verði um
það deilt, að takmark lífsins sé
aukinn og vaxandi þroski. Það
er og vitað mál, að samband sál-
ar og líkama er innilega, sam-
tengt og hvert öðru háð. Sálin
nýtur sín ,svo bezt, að líkaminn,
sé sem heilbrigðaetur. Þess
vegna draga eiturnautnir úr sál-
arþreki og spilla heilsunni, bæði
andlega og líkamlega, Því er
haldið fra,m um, liíkamann, að
hann sé r.okkurskonar verk-
smiðja fyrir eiturefni. öll efna-
skipti líkamans valda fram-
leiðslu efna, sem eru eitur fyrir j
líkamann, ef þau safnast fyrir
í honum. Ef þessi efni tæmast
ekki nægilega ört úr líkaman-
um, þá er'heilsu og lífi hætta
búin. Með öðrum orðum: heilsa
og veilíðan eru fyrst og fremst
háð því, að blóðið sé svo hreint
,sem kostur er á, Þess vegna er
það næsta fávíslegt,, að metta
líkama sinn, viljandi með hættu-
legu eitri. Með því móti er unn-
ið gegn tilgangi lífsins, hreins-
unarstarfið gert, torveldara. Góð
heilsa, hefir verið talin dýrmæt-
asti auður lífsins. Þegar heilsan
bi.'ar, vilja menn leggja allt i
sölurnar tíl þess, að vinna hana
aftur, þó þeir hafi verið næsta
skeytingarlausir um hana með-
an ekkert, var að henni og jafn-
vel spillt henni viljandi, þó af
fávizku sé.
Menn fara í skóla og Iæra þar
margt óþarft, sem, enga nyt-
s,ama á.vexti ber fyrir lífið. Menn
þyrftu í þess stað að fara og
læra í skóla lífsins til þess að
gleyma eða láta ólærða ýmsa
skaðlega menningarsiði, svo sem
tóbaksnautn, vínnautn, kaffi-
þamb, lyfjaát o. fl. Menn þurfa,
að ganga í þann skóla, þar sem
þeir læra lögmál lífsins í stað
þess að læra ósiði menningar-
innr, s,em leggja lífið í rústir.
Jónas Kristjánsson.