Hvöt - 01.02.1939, Side 15

Hvöt - 01.02.1939, Side 15
HVÖT 13 Hamingja þjóðarnnar er und- ir því komin,, að hægt sé að svara þessum spurningum ját- andi. Svp mikilvægar eru þær. Það er áreiðanlegt, að nokkur hluti æskunnar skilur hlutverk sitt og veit að átök þarf til þess að hefja hana til betra lífs: Margt bendir í þá átt. Kunnug- ir telja, að nýr gróandi sé í ung- mennafélagsskapnum., hann hafi Iqsnað við ýmsar veilur og herði nú á starfinu fyrir bindindi og siðmenntun. Skólaæskan vinnur markvisst að bindindisstarfinu, og má vafalaust telja bindind- isfélög skólanna einn merkasta þáttinn í menningarstarfsemi þjóðarinnar. Áhugi er vaknaður fyrir útiíþróttum, og er það mjög gleðilegt, því að slíkt er einn vissasti vegurinn til að efla lífsþrótt og heilbrigði. Fleira mætti nefna, sem sannar það. að vakning sé að verða meðal æskunnar fyrir heilisusamlegum viðfangsefnum. Aðgerðir hinna eldri til þess að efla manndóm æskunnar eru sízt lítils virði. Mæt-ti þar benda á það, sem hið opinbera hefur gert tili þess að mæta þeirri vöntun, sem, atvinnulausir ungl- ingar verða fyrir, er þeir ganga um viðfangsefnalausir. En sá hluti æskunnar, semi eingongu lifir á vinnu handa sinna og engrar menntunar nýtur, verð- ur ávallt harðast úti og er hætt- ast staddur, þegar tímarnir eru erfiðir og að sverfur, eins og nú. Þegar frá eru skildir nokkrir nöldrunarseggir, sem fátt eða ekkert nýtilegt leggja til æsku- lýðsmálanna, þá eru það flestir, sem vilja vel í þeim efnum, og margir. sem skilja hvað gera þarf, og hafa unnið og vinna mikilsvert starf í þá átt. Það er áreiðanlega ástæðu- laust að örvænta um framtíð- ina,. Töluverður hiuti æskulýðs- ins hefur að vísu orðið ráðvillt- ur í iðuköstum tímanna og því ölduróti, sem nú er á öllum hlut- um. Vegna þess hefur æskunni yfirleitt verið brugðið um deyfð og dáðleysi. En það er langt frá því, að allt æskufólk sé ofurselt þeirri synd. Margir hafa bund- izt samtökum um að mæta örð- ugleikunum með festu og ráð- deild. Þeir gefa góðar vonir. Sumir hinna eldri liáta einskis ófreistað til þess að hefja æsk- una upp úr deyfðinni og arung- anum. Það styrkir hinar góðu vonir. Það er því áreiðanlega, á- stæðulaust. að örvænta. Ekkert er líkllegra en að unga kynslóðin komist klaklaust gegnum þann hreinsunareld., sem hún óneitan,- lega verður að yfirstíga. Og að því verða allir sannir menn að vinna. Stefán Júlkisson.

x

Hvöt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.