Hvöt - 01.02.1939, Qupperneq 35
HVÖT
33
svæðið heyrist hinn hái þytur,
hvinur vindsins í þráðunum. Vio
horfum á þetta fullir eftirvænt-
inga". Hver skyldi komast fyrr
yfir í uppvindasvæði skýja-
bóistranna? — Allt í einu fer
önnur svifflugan að »skrúfa s'g
upp« með því að fljúga, í krappa
'nringi. Hinn flugmaðurinn hef-
ur tekið eftir þessu og flýgur
til sama staðar. Þar svífa þeir
lengi rg hækka stöðugt, eins og
fyrir afli csýnilegs anda. Nú
fljúga þeir báðir undir hinum
geysistóru skýj abólstrum. — Og
allt í einu! Hvað er þetta? Þeir
eru báðir horfnir! Skýið hefur
gleypt þá báða. Nýliðarnir
standa sem þrumu lostnir og
þora vart að ancla. Hvar skyldu
þeir koma út aftur, -— En hinir
gömlu félagar miðla fróðleik sín-
um. Þeir vita að báðir þessir
flugir.enn eru vel starfi sínu
vaxnir, og að þeir hafa blind-
flugtæki í flugunum. Annars —
annars gæti það verið hættu-
legt, því það er ekki eins auð-
velt. og margur hyggur að segja
til í hvaða átt jörðin er, þegar
ský lokar algerlega útsjóninni.
— En nú er farið að æfa á ný
hér niðri. Við skulum vona, að
þeim gangi vel líka þarna uppi.
En þessi sjón hefur eflaust
snortið viðkvæma strengi í huga
margra nýliða, Þeir leggja sig
fram við v. finguna, því »æfing
skapar meistarann«. — Hver
ve't — kannske einhverntíma
.seinna? — En nú er orðið áliðið
dags og við erum tímabundnir,
svo við verðum að yfirgefa þessa
skemmtkgu félaga í þetta
skipti. Við kveðjum þá með
þakklæti fyrir indæla samveru
— við hittumst heilir seinna.
»Við fliúgum án vélar«, segii
svifflugmaðurinn með hreykni,
og í þessum orðum hans felst
þróttur og óbifandi kjarkur
æskumannsins. — Er þetta ekki
hættulegt, spyrja e. t. v. nokkr-
ir. Auðvitað get ég ekki haldið
því fram, að svifflug sé hættu-
laust, því alstaðar bíða okkur
hættur. En ef dæma á eftir slys-
um hér á landi, er eflaust miklu
hættulegra, að aka bifreið, hjóla,
ferðast með skipum og jafnvel
ganga. Að vísu er meira gert af
öllu þessu, en að fljúga, en við
á annað þúsund svifflug hefur
ennþá enginn meiðst, hættulega
hérlendis.
I sambandi við svifflugið vil
ég minnast á annað atriði. Mér
finnst .svifflug, eins og reyndar
líka fleiri íþróttir, eiga brýnt er-
indi til þeirra, sem beita sér fyr-
ir baráttunni gegn áfengis-
nautn. Fortclur skýrra manna
um skaðsemi áfengis geta veriö
gcðar og gagnlegar, en þær eru
langt frá því að vera einhlítar.
Fjöldi ungra manna veit mæta
vel um skaðsemi áfengra
drykkja, en þeir drekka samt.