Hvöt - 01.02.1939, Page 39

Hvöt - 01.02.1939, Page 39
i Eftir Áreiíus Níelsson. »Oj, hvað þú getur verið »sveitó« cg leiðinlegur«. Þessi orð voru sögð í ertnis- legum róm af ungri og fallegri kaupmannsdóttur. Á róslitum vörum hennar vottaði fyrir brosi og beiskju í ,senn. Sá, sem hún talaði við, var dökkhærður mað- ur, fríður sýnum, Roði hreysti og æsku logaði a vöngum hans. Þunglyndisleg augu cg þróttmik- ill líkami sýndi festu og afl. »Dúdú, því læturðu svona«, sagði hann. »Mér finnst, að þú. getir naumast borið mér rudda- skap á brýn, þó ég vilji ekki blanda »wiský« út í glasið mit,t«. Dolli er of lærður cg skáldleg- ur til þess að geta. verið eins og venjulegt fólk«. Það var Bjarni vinur þeirra, sem, greip fram í. Þetta \ ar á, gamlaárskvöld, og þau sátu öll kringum stórt borð á Hótel Borg ásamt fleiri kunn- íngjum. Vínið freyddi í glösum allra, nema Adolfs Leifssonar, sem aldrei hafði bragðað vín, þrátt fyrir eggjanir margra, skemmtilegra vina, og frjáls- lyndra félaga, sem alltaf voru umhverfis hann. Það var samt algjörlega óréttmæt ásökun, sern Sigrún hafði borið fram gagn- Árelíus Níelsson, stud, theol. vart honum. Fáir þóttu skemmti- legri, fyndnari og kátari en hann í vinahóp, þrátt fyrir hin litlu kynni af Bakkusi, sem hann hafði. Það var því ekki laust við gremju í orðum hans, þegar hann,svaraði Bjarna: »Þarf venjulegt fclk kannske alltaf að hafa vín, til þess að hella í sig, svo að það geti glaðst með öðrum? Er það ekki mikið fremur skortur á þeirri lífsgleði, sem venjulegt fólk á að sýna, ef

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.