Hvöt - 01.02.1939, Qupperneq 42

Hvöt - 01.02.1939, Qupperneq 42
40 HVöT alla sína slæmu félaga og’ helga ; fiístundir sínar henni og börn- unum, heimilinu sínu, framtíð þeirra allra. Einu sinni í ölæði liafði hann ásakað hana fyrir að hún hefði kennt, sér að drekka áfengi. Guð vissi, að í því var of djúpur sannleiki. En. nú skyldi hún bæta það upp með því, að hætta ekki fyr, en hún hefði hjálpað honum að sigra ástríðuna. Þá yrði sólskin hamingjunnar aðe'ns enn þá bjartara, þegar skuggarnir lægju að baki. Aldrei hafði hún elskað hann eins heitt og nú, þegar l ann þurfti á hjálp henn- ar að halda. Þetta hlaut allt að ganga vel. Hann, var ekki orð- inn neinn ofdrykkjumaður. Klukkan var mikið gengin í níu. Enn kom enginn. Sigrún gaf börnunum að borða og háttaði þau. »Hvar er pabbi?« spurði Elsa litla, elzta telpan. Hún var ofurlítið óróleg. »Hann er ein- hversstaðar úti„ kann-:ke hefir verið svo mikið að gera á skrif- ,stofunni«, sagði Sigrún og brosti dapurlega, því hún var nægiiega, sannfærð um, að hún væri að segja barninu ósatt og sjálfri sér líka. Klukkan var búin, að slá ell- efu og ekki kom Adolf. Sigrún hafði setið í gamla hægindastolnum. Hún reyndi aö lesa, en þegar hún var að ljúka blaðsíðunni, vissi hún ekki, hvað hún hafði lesið. Hún reyndi að sofna, en minningarnar um lið- in gamlaárskvcld, þar sem Adolf var adt, í öllu, liðu fram hjá í skýrum myndum, sem bægðu svefninum, burtu, því að nú — hvar var hann nú, kannske dauðadrukkinn úti á götu, kannske með einhverri annari að skemmta sér. Þegar hann hringdi fyrir hádegi, var hann 3vo undarlegum í orðum og rödd. Hún mundi það núna, þótt hann hefði afsakað sig með ann- ríki frá að koma til miðdegis- verðar. Sigrún gekk hljóðlega inn í svefnherbergið. Sofandi börnin sefuðu æsingu hennar lítið eitt. En hve þau brostu fallega og barn,straustið skein af hverjum andlitsdrætti. En hvað hún var heimsk. Auð- vitað var hann niðri á, skrif- stofu. Hann gat ekki brugðizt trausti barnanna sinna til pabba á svona kvöldi. Hún gekk hratt fram í for- stofu, lét. á ,sig hattinn og fór í kápuna. Að augnabliki liðnu var hún á, leið til skrifstofunn- ar að leita Adolfs. Hann varð að fara að koma heim. Göturnar voru fullar af fólki. Flugeldar, púðurkerl ngar. Allir úti á gamlaár,skvöld. Sigrún tróð sér áfram, þögul og alvar- leg. Þarna var skrifstofan. Myrkur. Þetta myrkur úr glugg-

x

Hvöt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.