Hvöt - 01.02.1939, Page 49

Hvöt - 01.02.1939, Page 49
HVÖT 47 sem ódýrastar og komi að sem heztum notum í bindindisbarátt- unni. Verði þar lát’ð ráða gildi málst aðai'ins án tillits til forms samtakanna og auk þess skorar þingið á stjórnina að beita sér af alefli fyrir samtökum allra hinna bindindissinnuðu krafta í landinu til skipulagningar á starfsemi þeirra svo sem með út- gáfu sameiginlegt tímarits og með námskeiðum. 7. þing S. B. S. skorár á ,sam- bandsfélög'n að vinna sem mest saman eftir því sem ástæður leyfa hverju sinni með sameig- inlegum stjórnarfundum, al- mennum fundum, skemmtunum, ferðalcgum, íþróttum o. s. frv. 7. þing S. B. S. lýsir ánægju sinni yfir nýútkominni bók um bindindisfræðslu og vottar á- fengismálaráðunaut og núver- andi og fyrrverandi fræðslu- málaráðherra þakkir hinnar bindindissinnuðu æsku, en skor- ar jafnframt á h'na sömu aðila að sjá um að reglugjörð um bindind'sfræðslu verði fram- fylgt og óskar þess einnig að gefin verði sem fyrst út skemmtileg cg fræðandi barna- bók, sem fjalli um skaðsemi á- fengisnautnarinnar. 7. þing S. B. S. skorar á full- trúa á þingi sambandsins, að beita sér fyrir stofnun áhuga- eða fræðsluflokka, hver innan síns félags. 7. þing S. B. S. ítrekar áður samþykktar tillögur á þingum þess um áskorun til veitinga- valdsins, að bindindismenn verði að öðru jöfnu látnir ganga fyr- ir veitingu opinberra embætta. 7. þing S. B. S. gkorar á full- trúa félaganna, að hvetja til bréfaviðskipta milli bindindis,- manna í skólum. I fyrsta, lagi milli félagsmanna innanlands, í öðru lagi milli félagsstjórna og í þriðja lagi milli íslenzkra og erlendra skólabindindisfélaga. Skulu stjórnir félaganna greiða fyrir bréfaviðskiptum innan- land,s, en sambandsstjórn fyrir bréfaviðskiptum við útlönd. 7. þing S. B. S. telur æskilegt að reynd verði verðlaunasam- I keppni fyrir beztu ritgerðir um bindindismál, samidar af nem- endum úr skólum og verði þær síðan birtar í Hvöt, og heimilar þingið fjárnotkun í þessum til- gangi. 7. þing S. B. S. skorar á stjórnir sambandsfélaganna að útvega ritgerðir og kvæði innan. síns félags og senda þær til sam- bandsstjórnarinnar fyrir 1. jan. ár hvert. BLAÐIÐ. Öskir komu fram á þinginu um að Hvöt kæmi út tvisvar á ári, ef fjárhagsást-æður leyfðu, ennfremur um að útbreiða hana, sem kostur væri á og hafa til sölu svo almenningi gæfist betri

x

Hvöt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.