Hvöt - 16.03.1948, Qupperneq 3
• •
2. tbl. — ftvk. 16. marz 1 948 — XVI. árg.
OTGEFANDI: SAMBAND BINDINDISFÉLAGA I SKOLUM
GUÐMUNDUR SVEINSSDN:
Samband bindindisfélaga
í skólum 15 ára.
(Þessi sciga átti að koma i „Hvöt“ i fyrravetur, en það fórst
fgrir, og þess vegna kemur hún nú).
Ég hafði drégizt á það við stjórn
S.B.S. að skrifa „sögu sambandsins“
fyrir næstliðin fimmtán ár. í upphafi
var þetta helzt hugsað þannig, að ég
prjónaði aftan við þann sögubol, sem
til varð í sámbandi við tíu ára af-
mælið, og næði sú viðbót yfir fimm
síðustu ár með smá inngangi, sem
hefði að geyma ofurlitlar fróðleiks-
glefsur um fyrri daga. Þegar ég fór
að hugsa nánar um þetta og að þvi
skyldi koma, að efndir yrðu á lof-
orðinu, þótti mér þetta öllu óað-
gengilegra en í upphafi. Fyrst er
það, að ég er næsta óánægður með
tíu ára söguna og tel þá frásagnar-
aðferð, sem þar er höfð, sízt til fyr-
irmyndar. Hef ég fullan hug á því
að bæta um þá smið, ef mér gcfst
tóm til. Aðra mótbáru tel ég þó
veigameiri. Það er óviðkunnanlegt,
að svo ungt félag, sem S.B.S. er, eyði
miklum kröftum og pappírskosti til
þess að kunngjöra sögu sína, sizt af
öllu, að hver fimm ár gefi tilefni til
slíks. Á hinu tel ég, að mun meiri
þörf sé að kynna þeirri æsku, sem
nú stundar nám í skólum landsins,
Guðmundur Sveinsson.
livernig samband okkar er til orðið,
hvað ráðið hafi um stofnun þess. Mér
finnst vel við eigandi, að það blað,
sem helgað er fimmtán ára afmæli
þess, gefi mönnum nokkra hugmynd
um upphafið og líti þá gjarnan um
leið til dagsins í dag án þess að