Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 5
30 plús 1978
HBmH
Samtökin '78 hafa marga fjöruna sopió
árum. Samt eru þau í dag, sterkari og öflugri en
nokkru sinni fyrr. Þau væru það þó ekki, ef ekki hefði
verið til staðar bæði sköpunarkraftur og hugrekki í
upphafi baráttunnar fyrir þrjátíu árum.
Þótt Samtökin '78 hafi verið áberandi í íslensku
þjóðlífi í rúman áratug hefur það ekki alltaf verið svo
og saga félagsins framan af er á fárra vitorði. Þetta
tímarit sem er gefið út í tilefni af 30 ára afmæli
Samtakanna '78 er ekki hefóbundið tímarit, heldur er
uppistaða þess að megninu til tvær sögulegar
greinar. Sagan á erindi við okkur öll og segir okkur
ekki bara hver við vorum heldur líka hver við erum og
hvaðan við komurn. En það má ekki gleyma því að
sagan ergædd þeim eiginleikum að breyta um lit og
lögun eftir því hver horfir og f gegnum hvaða gleraugu.
Það sem birtist hér er því hvorki upphaf né endir
slíkrar söguskoðunar en vonandi góð viðleitni sem
lesendur hafa gaman af. Um leið biðst ég
velvirðingar á því að margt annað sem hefði átt erindi
í þetta blað varð að bíóa betri tíma og eftir öörum
vettvangi.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ritstjóri blaðsins og greinarhöfundur hefur starfað sem
blaða og fréttamaður frá 1990, á dagblöðum, vikublöðum og tímaritum. Síðustu
tíu árin starfaði hún á Stöð tvö og Fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Bára Kristinsdóttir Ijósmyndari blaðsins hefur starfað að
Ijósmyndun í meira en tvo áratugi. Hún vinnur nú að mestu að
sinni eigin listsköpun.
Ragnhildur Sverrisdóttir var blaðamaður og
fréttastjóri á Morgunblaðinu í rúma tvo áratugi en hefur auk
þess komiö að þáttagerð í sjónvarpi. Fyrir nokkrum árum
söölaði hún um og lærði lögfræði við Háskólann í Reykjavík og
starfar nú sjálfstætt við ritstörf.
Veturliöi Guðnason einn greinarhöfunda er einn kunnasti
þýðandi landsins en hann hefur snarað sjónvarpsþáttum úr
þýsku, ensku og norðurlandamálum fyrir Ríkissjónvarpið í tæpa
þrjá áratugi. Veturliði var einn stofnenda samtakanna lceland
Hospitality en þau samtök voru fyrirrennari Samtakanna '78.
Böðvar Björnsson einn greinarhöfunda starfar sem forstöðu-
maður neyðarvistunar á meðferðarheimilinu Stuðlum. Böðvar
gaf út Ijóðabókina Dagbók Önnu Frík á síðari hluta níunda
áratugarins en Ijóðin lýsa hlutskipti hommans og tíðarandanum
einkar vel.
Hilmar Magnússon er menntaður í arkitektúr og starfar á
teiknistofu jafnhliða því að stunda meistaranám í
alþjóðasamskiptum. Hann er stjórnarmaður í Samtökunum '78
frá 2007. Hann veltir fyrir sér skemmtanalífi homma og lesbía í
Reykjavík í gegnum tíðina hér í blaöinu.
Árni Heimir Ingólfsson starfar sem tónlistarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands og dósent við Listaháskólann. Þótt
tónlist sé hans sérsvið skrifar hann um bókmenntir að þessu
sinni.
Halla Kristín Einarsdóttir myndlistarmaðurteiknar
myndasögur sem birtast hér í blaðinu og birta svipmyndir
heimi homma og lesbía á íslandi.