Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Page 33
íslensk lesbíska, starfaði um hríð með öðrum
kvennasamtökum á Hótel Vík. Þarna takast
Þóra Kristín og Lára Marteins í sjómann.
//Tylft af rauðvíns og hvítvínsglösum
Árið 1986 var félagið Íslensk/Lesbíska stofnað á Hótel Vík þar
sem Kvennalistinn hafði bækistöðvar sínar ásamt öðrum róttækum
kvennasamtökum og kvenfrelsisritinu Veru. Á stofnfundinum voru í
fararbroddi konur sem voru orðnar virkar í starfi Samtakanna og störfuðu
einnig innan
Kvennalistans
eða annarra
kvennahreyfinga
í húsinu. Ekki
var einhugur
um þetta
samstarf meðai
félagskvenna
Kvennalistans og
annarra samtaka
hússins og olli
það miklum
taugatitringi.
Hússtjórnin
var lengi að afgreiða umsóknina en sumar konurnar töldu sér ógnaó
af nábýlinu við lesbíur. Fundarherbergi Íslensk/Lesbíska var stundum
notað undir fundi stjórnmálasamtakanna og einhverjar óprúttnar lesbíur
gerðu sér það að leik að láta liggja frammi lesbísk klámblöó sem höfðu
borist félaginu frá Bandaríkjunum meira í gamni en alvöru. „Það voru
einhverjar kvennalistakonur ósáttar við þetta en ég svaraði bara sem svo
að þær hefðu innst inni bara gaman af því að fletta þessum blöðum,"
segir Stella Hauksdóttir einn stofnenda Íslensk/Lesbíska. Snemma í
starfi félagsins fór að bera á sömu brestum og í starfi Samtakanna ‘78.
Meirihluti kvennanna hafði áhuga á sameiginlegum partíum en mun
minni á eiginlegu félagsstarfi. Félagið hélt þó allmarga fundi, lét útbúa
dreifibréf og stóð fyrir skemmtikvöldum. Tekin var ákvörðun um að leggja
félagið niður og skömmu seinna fóru konur að gera sig meira gildandi í
Samtökunum ‘78.
„Það eina sem félagið lét eftir sig af veraldlegum eigum, var tylft af
rauðvíns og hvítvínsglösum, hvorki sérlega dýrum né heldurvoru giösin
samstæð, en þessar eigur runnu óskiptar tíl Samtakanna ‘78,“ segir
Margrét Pála Ólafsdóttir. Hún segisttelja að Íslensk/Lesbíska hafi orðið
þess valdandi að karlar urðu fúsari til að víkja úr vegi fyrir konum innan
Samtakanna ‘78 og hleypa þeim til meiri áhrifa. Félagsskapurinn KMK
eða konur með konum tók síóan til starfa áriö 1993 og hefur haldið
úti öflugu blakliði, séð um vefsíðu fyrir lesbíur auk þess að standa fyrir
margvíslegum uppákomum, þar á meðal árlegri Góugleði. Þá hafa konur á
öllum aldri hist reglulega á sumrin á Miklatúni til að leika knattspyrnu um
áratuga skeið.
tnl/i
$ 'iéUaÍeiÍ
iigákvenn;
//Niðurlæging Norðurlandaráðs
Mök samkynhneigðra voru refsiverð samkvæmt íslenskum lögum frá
1869 til ársins 1940. Lagagreinin sem um er að ræða var að danskri
fyrirmynd og tók jafnt til kynmaka einstaklinga af sama kyni og kynmaka
við dýr.
Á tuttugustu öldinni var einn íslendingur dæmdur fyrir mök vió aðra
karlmenn en það var Guðmundur Hofdal, landskunnur íþróttamaður og
gltmukappi sem var dæmdur til átta mánaða betrunarhúsvinnu árið 1924.
Guðmundur fékk uppreisn æru með konungsbréfi árið 1935, fimm árum
eftir aö hliðstæð ákvæði voru afnumin úr dönskum hegningarlögum.
íslenska lagaákvæðið var þó ekki afnumið fyrr en árið 1940. Sambærileg
lagaákvæði var að finna á öðrum Norðurlöndum en ísland var annað
Norðurlandanna til að nema það burt.