Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 37
Hópurinn myndaði stóra, ósamstæða fjölskyidu samkynhneigðra á íslandi
sem fyrst í dag er orðin það stór að það er hægt að koma á samkomur
á þessum vettvangi og segja með góðri samvisku: „Ég þekki bara ekki
helminginn af þessu fólki."
//Veistu hver ég er
Samtökin ‘78 fengu í fyrsta sinn opinberan styrk til útgáfumála árið 1987
en hann var nýttur til útgáfu bókarinnar Veistu hver ég er, sem kom út árið
1989. Bókin var þýdd úr ensku og löguð að íslenskum veruleika. Bókin
er fræðsla fyrir foreldra og aðstandendur um hvernig það er aó koma úr
felum og lifa sem hommi eða lesbía. Um þetta leyti eða árið 1988 var
stofnaður ungliðahópur, en þar fékk yngsta fólkið kærkominn vettvang en
starfsemi hópsins hefur jafnan verið með líflegasta móti.
Frá fyrstu tíð buðu Samtökin upp á ráðgjöf í sfma fyrir samkynhneigða,
fyrst var slfk símaþjónusta veitt í heimasíma Guðna Baldurssonar
en Helgi Viðar Magnússon eiginmaður hans varð yfirleitt fyrir svörum
og veitti umbeðna ráðgjöf. Seinna fékk félagið sinn eigin síma. Um
aldamótin síðustu var farið að bjóða upp á faglega félagsráðgjöf fyrir fólk
í húsakynnum Samtakanna en Anni Haugen og Guðbjörg Ottósdóttir hafa
hana með höndum. Undir lok níunda áratugarins voru Samtökin ‘78 með
í Útvarpi Rót sem var athyglisverð tilraun með grasrótarútvarp á íslandi.
Þar var fjallað um
samkynhneigð,
lesið úr bókum um
samkynhneigða,
talað við homma
og lesbíur og leikin
tónlist. Meðal
umsjónarmanna
þáttarins á útvarpi
Rót voru Eysteinn
Traustason,
undirrituö Þóra Kristín Ásgeírsdóttir, Lilja Sigurðardóttir sem síðar varð
fyrsti framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78 og Lana Kolbrún Eddudóttir.
„Það var alveg magnað að upplifa viðbrögðin
við þessum þætti, en það var einsdæmi
að við fengjum að tala svona aigerlega á
okkar eigin forsendum," segir Eysteinn um
útvarpsþáttinn. „Stundum fannst mér á
viðbrögðunum að við værum BBC World að
senda út fréttir í seinni heimsstyrjöldinni."
En Samtökin fóru einnig aó huga að málgagni
en Úr felum hafói þá ekki komið út síðan árið
1985. Blaðið, Sjónmál var metnaðarfullt en
það kom út til ársins 1994, síðustu eintökin
reyndar undir nafninu Sjónarhorn. Útgáfunni
var þá hætt bæði af fjárhagsástæðum og
eins var ritstjórinn Þorvaldur Kristinsson
þrotinn af kröftum enda hafði hann þurft að
skrifa mestmegnis af efninu sjálfur. Farið
var að gefa út fréttabréfið, Samtakafréttir í
staðinn.
37