Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 39

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 39
Nýja félagið fékk sér skrifstofu nánast við hlið Samtakanna ‘78 og starfrækti þar fjörugar útlagabúðir en mikið af ungliðum fylgdi Félaginu að málum. Þetta var ekki síst blóðtaka fyrir Samtökin ‘78 meðan á þessu stóð vegna þess að Eysteinn Traustason kröftugur liðsmaður sem hafði unnið að því hörðum höndum að byggja upp bókasafn Samtakanna, var meðal þeirra sem gekk út. Margir voru félagsmenn í báðum félögum og höfðu gaman af. Meðal annars félagsmaður númer eitt í Samtökunum ‘78, sem þarna var kominn um áttrætt. Eysteinn var gagnrýninn á Samtökin þegar þarna var komið sögu fyrir marga aðra hluti. „Sum umræðuefni voru einfaldlega tabú og einstaklingar innan Samtakanna vildu hreinlega stjórna því hvernig fólk hugsaði," segir Eysteinn. „Mér fannst þetta aðeins of langt gengið." Eysteinn sagði að það væri ekki gott að banna fólki að taka þátt í félagsstarfi Samtakanna þegar þau hefðu að markmiði að berjast fyrir jafnrétti. Menn ættu að fá aö skilgreina sig sjálfir án þess að félagið vildi ráða því. „Ég fór ekki afturtil starfa í Samtökunum 78, aöallega af því að mér fannst ég orðinn nátttröll í þessum félagsskap, hálfgeröur atvinnuhommi." Árið 1993 gaf Hörður Torfason kost á sér sem formaður félagsins en gegn honum fóru bæði Lana Kolbrún Eddudóttur og Sigurður Einarsson. Lana Kolbrún fór meö sigur af hólmi og sat í eitt ár. Hörður Torfason segir að samúð hans með málstaö tvíkynhneigðra hafi ráðið mestu um það að hann féll í kjörinu. n MAÐUR i ER I MANNS I GAMAN I //Skemmtiklubburi útjaðrinum Margrét Pála Ólafsdóttir verður formaður Samtakanna ‘78 árið 1994. „Þá voru breyttir tímar í samfélaginu og loksins kominn grundvöllur fyrir því að ná fullum mannréttindum," segir hún. „Samtökin ‘78 fengu hlutverk í baráttunni gegn alnæmi en það krafðist þess jafnframt að þau gengust undir naflaskoðun og tækju breytingum. Samtökin höfðu á skömmum tíma breyst frá því að vera hálfgerð huldusamtök í að takast á við mjög erfitt hlutverk og rækja það stórkostlega vel. Þau unnu eiginlega kraftaverk I forvarnarstarfi vegna sjúkdómsins og það aflaði þeim virðingar. Það var ekki I boði fyrir Samtökin að vera áfram fámennur skemmtiklúbbur, í útjaðri samfélagsins." Margrét Pála segist hafa lagt á það mesta áherslu í upphafi að ná að halda aigerlega um stjórnartaumana sjálf en það hefði reynst konum erfitt. Þá hafi hún óskað þess fyrir sjálfan sig að geta síðar meir gengið ósködduð frá formannsembættinu en ekki bitur og sár. „Ég setti mér það takmark að gera Samtökin ‘78 að faglegum félagasamtökum en ég hafði mikla reynslu af félagsmálum þótt ég þekkti ekki innviði Samtakanna mjög vel. Þá var ég upptekin af ímynd og sýnileika en ég vildi festa þau I sessi sem mannréttindasamtök. I þriðja lagi stefndi ég að því aó Samtökin 78 fengju nýtt og betra húsnæði, helst í hjarta borgarinnar." Alnæmi hafði nú vikið fyrir öðrum áherslum. Þótt baráttan gegn sjúkdómnum væri hluti af starfsemi félagsins höfðu Alnæmissamtökin tekiö yfir mikið af því forvarnar- og fræðslustarfi sem áður var unnið innan Samtakanna ‘78.“ KONA AN KAR LSc/ t’JfíS og FISKUR'AN REIÐHJOLS //Utmeðklámið Og Margrét Pála hóf ímyndarstarfið meðal annars með þvt að hreinsa út allt klám af bókasafni Samtakanna en leyfa I staðinn sérstakan skiptimarkað með klám. Þá bjó hún til skrifstofu úr herbergi í kjallara hússins við Lindargötu sem hafði áður hafði haft það hlutverk aó vera myrkraherbergi á herrakvöldum. Húsið var svo málað gult og glaðlegt og miðhæöin fékk á sig yfirbragð venjulegrar félagsmiðstöövar. „Þessu fylgdi auðvitað ágreiningur og ég get út af fyrir sig skilið það. En við vorum komin í samræður við stofnanir, embættismenn og stjórnmálamenn út af kröfu okkar um mannréttindi og við þurftum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.