Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Síða 40

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Síða 40
líka að taka til í eigin ranni til að hraða því ferli. Það má kalla þetta einskonar normalíseringu en þetta var aðeins hluti af heildaraðgerð. Við stækkuðum líka bókasafnið og réðum framkvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur og þjónustu fyrir gesti og gangandi í félagsmiðstöðinni alla daga. Allra stærsta atriðið í hinni breyttu ímynd var þó stóraukinn sýnileiki; pólitísk fjölmiölaumfjöllun undir gunnfána mannréttinda svo og mjög áberandi og opinber stóratburður á hverju ári þar sem leitaö var eftir stuóningi allra þeirra sem vildu virða mannréttindi. Þetta taldi ég nauðsynlegt til að ná víðtækri samstöðu meðal þjóðarinnar sem þurfti til að ná fram réttindum og viðurkenningu." Margrét Pála //Lögreglukórinn sló ígegn Þann áttunda desember árið 1995 birtu Samtökin ‘78 heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu þar sem fjöldi þjóðkunnra einstaklinga lýsti yfir stuðningi við mannréttindabaráttu homma og lesbía. Auglýsingin birtist í tilefni af Mannréttindahátíð Samtakanna ‘78 sem var haldin í íslensku óperunni í tilefni af afmæli Sameinuðu þjóðanna. Fjölmargir listamenn lögðu hátíðinni lið og að öðrum ólöstuðum vakti þátttaka Lögreglukórsins einna mesta athygli. Tveir lykilmenn í baráttu samkynhneigðra á íslandi voru sæmdir frelsisverðlaunum Samtakanna að þessu tilefni, þeir Guðni Baldursson og Hörður Torfason. Þá var í fyrsta sinn haldin kvikmyndahátíð homma og lesbía hér á landi, Hinsegin bíódagar en sú hátíð hefur verið haldin í þrígang, þar af tvisvar í samstarfi við Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigöra stúdenta. í bígerð er slík kvikmyndahátíð í fjóróa sinn og þá í samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátið í Reykjavík. En sumum þótti nóg um sýnileikann. Aðalhátíð Hinsegin bíódaga var í Háskólabíó en veitingahúsið Café Reykjavík lánaði húsakynni sín undir stuttmyndahátíð sem átti að standa yfir tvö kvöld. „Fyrra kvöldið urðum við vör við að allir þjónarnir hurfu úr salnum og furðuóum okkur dálítið á því. Um það leyti sem kvöldinu er að Ijúka tekur framkvæmdastjórinn mig út undir vegg og biðst undan því að vió komum aftur síðara kvöldið. Hann gaf þá skýringu að þjónustufólkið hefði þurft áfallahjálp vegna atriða í myndunum sem hefðu ekki verið neitt nema viðurstyggilegt klám,“ segir Margrét Pála. //Tvöhundruð mannns í staðfestri samvist Nefndin, sem þingið samþykkti að yrði skipuð, var eitt og hálft ár að störfum en árangurinn að nefndarstarfinu varð gríðarmikil skýrsla um stöðu samkynhneigðra í þjóðfélaginu, sem kynnt var á opnum borgarafundi Samtakanna ‘78 á Hótel Borg. Á grundvelli vinnu nefndarinnar var lagt fram lagafrumvarp um staðfesta samvist samkynhneigðra og verndarákvæði fyrir homma og lesbíur í refsilöggjöfinni. Frumvarpið um staðfesta segist hafa talið að það væri komin tími til að skemmtistaðir borgarinnar tækju að mestu við skemmtihlutverki Samtakanna. Hún segir að félagsmenn hafi í raun aldrei verið sammála um hvernig húsió ætti að líta út. í formannstíð Þorvaldar Kristinssonar hefói verið kvartað yfir því að félagsmiðstöðin væri eins og „biðstofa hjá geölækni." Félagsmenn hefðu alltaf verið beittir gagnrýnendur." Og Margrét Pála segist sannfærð um að þetta hafi verið réttar ákvarðanir. Hún hafi einungis verið að hlýóa kalli tímans. „Ég bretti upp ermarnar og hreinsaði til og tel í dag að öðruvísi hefði ekki verið hægt að taka á móti öðrum tíma og nýjum kynslóðum."
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.