Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Page 53
j^ÝrÍrhermenn*? *
'Þeirvirðastaðminnstakosti *
nokkuð nánir þessi bresku
hermenn uppi á Fróni í síðári
heimsstyrjöldinni.
Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur
// Mótunarár reykvískrar æskumenningar
Heimsstyrjölclinni lýkur og sigurvegararnir skrifa nýja
mannkynssögu með köldu stríði og kjarnorkuvá. Og
amerískri hersetu. Árið 1951 fer reykvíska ungskáldið
Elías Mar að leita að Könunum og íslenskum lagskonum þeirra, en hann
hyggst gera samskiptum þeirra skil t sinni næstu bók. í þessum tilgangí
fer hann á kaffihúsið við Laugaveg 11, þar sem í dag er veitingahúsið
Italía. Þarfinnur hann hvorki Kanana né stelpurnar, en í þeirra stað
fær hann ódýrt kaffi með ábót, og brátt aukast vinsældir staöarins til
muna. Hommi og fyrrum tíður gestur á kaffihúsinu lýsir stemmingunni:
Þetta var mjög góður staður og þótt einungis væri selt kaffi man
ég nú eftir gestum að pukrast með áfengi undir borðum. Þarna
komu margir mætir andans menn og mikið skrafað um listir og
bókmenntir. Elías Mar, Dagur Sigurðarson skáld og félagar voru
þaulsetnir þama. Enda máttu menn sitja eins lengi og þeir vildu.
Og það eru ekki einungis ungskáldin og listamennirnir sem sitja
á kaffihúsinu dagana langa við sköpun hinnar nýju og hinsegin
Reykjavtkursögu:
Gestirnir voru ágætis blanda af hinu og þessu fólki.
Menntskælingarnir úr MR og Verzló voru til dæmis afar
áberandi og svo vorum við hommarnir þarna náttúrulega líka.
Margir okkar voru í skápnum en það kom nú ekki í veg fyrir
að hægt væri að gera sér dælt við aðra stráka þarna.
// Hafnarkrár og heiðarbúllur
Og þeir eru skammt undan. Á þessum árum blómstra nefnilega
mat-stofurnar Hvoii í Hafnarstræti 15 og Heitt og kalt í Veltusundi
1. Þetta eru vinsælir viðkomustaðir og mikið stundaðir af
hommunum. Hvoll er staðsettur í því sögufræga húsi sem á
3. og 4.áratugnum hýsti hinn skuggalega Bar Reykjavík, en
við þann stað eru „Bar-rónarnir“ eða bara „rónarnir" kenndir.
Þar er veitingastaðurinn Hornið í dag. Þórir hefur orðið:
Hvoll var alveg sérstaklega þægilegur. Þar gátu menn gengið
inn frá höfninni, reynt að koma auga á einhvern áiitlegan
svo lítið bæri á um leið og þeir gengu í gegn, og farið svo
út Hafnarstrætismegin. Einir eða við annan mann.
Matstofurnar njóta líka nálægðarinnar við höfnina. Hér er
urmull báta, skipa og sjómanna og mikið líf og fjör. í námunda
vió Eimskipafélags-húsið eru líka almenningssalernin.
Já, þetta „pissoir" var dularfullur staður og þar komust ungu
einhleypu strákarnir í kynni
við útlenda hermenn í skjóli
nætur. Og þarna var líka
meira en nóg af harðgiftum
íslenskum karlmönnum.
Ekki síst þeim eldri.
Fimmti áratugur20.aldar. Folkaröltieftirbæjarbryggjunni.
Eimskipafélágshúsið gnæf ir tilkomumikið yfir, en lengst til vinstri
má sjá Hafnarstræti 15 þar sem matstofan Hvoll er til húsa. ■*
samt alltaf eitthvað. Það var nú bara þannig
að þar sem hermennirnir voru, þar var alltaf
von á einhverju. Þetta var algjör hörmung á
tímabili, maður hreinlega óð í karlmönnum.
Og ef ekkert var þar að hafa mátti jafnvel bregða
sér í langferð upp í Baldurshaga, sem var steinsnar
frá einum braggakampi hermannanna, rétt við
Rauðavatn. Þórir lýsir veitingastað í stóru húsi:
Þetta var bara búlla. Þarna var hægt að tylla sér við
borð, en þó var einnig boðið upp á músik og hægt að
dansa. Inn slæddist svo alls konar lýður, þar á meðal
amerísku hermennirnir og það sem þeim fylgdi.
1950-1960
Ef menn eru ekki þeim mun
fengsælli við höfnina má
bregða sér á Vesturgötu
45, þar sem veitingastofan
Westend ertil húsa. Þangað
venja hermenn líka komur
sínar. Og unga fólkið eltir:
Sko, þessi staður var ekki
beint gay, ekki frekar en
Borgin, en þarna var nú
RÆTTUM LISTINAOG LIFIÐ
Gestir á Laugavegi 11 á 6. áratug 20. aldar. Frá vin
leikara; Elías Mar, skáld; Kristin Gestsson, píanólé
og Dag Sigurðarson, skáld.
stri má sjá Jón Laxdal Halldórsson,
? j kara;Stu rl u Tr yggva son, víóluleikara