Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 59
1990-2000
//Út á gaddinn, inn á Gull og upp á Myllu
Veturinn 1990-91 er hinsegin fólk þvt enn og aftur sett út á gaddinn
með skemmtanalíf sitt. Þegar komið er fram í febrúar og hýrir orðnir
leiðir á því að þreyja
Þorrann úti í skafli, viröist
samkvæmisdrunganum þó
eitthvað létta. The Golden
Gay opnar. Ingi Rafn er
einn af aöstandendum
og lýsir staðnum svo:
Já, nú stóðum við uppi án
nokkurs gay staðar, sem
var alveg ferlegt. í þessu
millibilsástandi fengum við
þó afnot af efstu hæðinni
á Gullinu, þar sem Óðal er
nú. Þessi rekstur stóð nú
ekki lengi, kannski I tvo, þrjá
mánuöi og reyndar bara um
helgar. En það var þó reynt.
RAUÐA MYLLAN OPNAR DYRNAR
Boðskort á opnunarkvöld Myllunnar 2. mars 1991
Já, sannarlega er reynt.
Gullið hefur nefnilega ekki starfað lengi þegar mikil sprenging verður
í skemmtanalífinu. í byrjun mars er dyrunum hrundið upp á Rauðu
myllunni og byltingunní fram haldið. Starfsfólkið á Myllunni erferskt
og tekst á við verkefni sitt af miklum metnaði. Boðið er upp á mikiar
skrautsýningar og oft er salurinn umhverfis dansgólfið þéttsetinn
fólki sem komið er til að dást að, og fá jafnvel einn lítinn fingurkoss
frá fjöðrum skrýddum dragdrottningunum. Staðsetningin? Gamla
Brabra. Ingi mætir sem gestur og fer svo að vinna á staönum:
Svo opnar Moulin Rouge
með miklum látum og
Páli Óskari og Marlusi
á útopnu. Á staðinn
kom alls konar fólk,
samkyn-hneigðir, vinir og
kunningjar og sjóin voru
frábær. Það var mjög
þægilegt að fylgjast með
þeim og stundum tók
maður líka þátt sjálfur.
BOÐÍBOÐ
Myllan fagnaði eins árs afmæli sínu 10.-11. apríl 1992.
Myllan verður fljótt
fræg að endemum fyrir
sýningarnar. Þær þykja
óvenjulegar og sumar svo
frumlegar að þær snúast
jafnvel um fiskflökun.
Fagmennska ungu
drottninganna spyrst líka
hratt út og fjölmiðlarnir
mætajafnvel á staðinn til
að gera herlegheitunum skil. En eins og systirin í París lifir þessi Mylla
líka hátt, hratt og með stæl og samkvæmt Inga veróa geðsveiflurnar
ansi djúpar þegar hún loks kemur niður í hálftómann kjallarann:
Það háói staðnum alltaf mikið hvað hann virkaði sem gríóarlega
mikill geymur. Stundum var hann hreinlega eins og rússneskt
kaupfélag á krepputímum. Með hillurnar gapandi tómar.
Haustið 1992 kemur svo að því að kreppan verður viövarandi og
enn á ný er dyrunum niður í kjaliarann við Hlemmtorg skellt í lás.
//Hlemmur-Lækjartorg
Frá Hlemmi er því haldiö niður á Laugaveg 22 sem um þetta leyti réttir
aftur úr kútnum. Nýir eigendur hleypa lesbíum og hommum inn á ný
og staðurinn fær andlitslyftingu. Þá verða fimmtudagskvöldin aftur
mikil stemmingskvöld og um helgar er fullt út úr dyrum. Næstu árin
lifir staðurinn svo eins og blómi í eggi og gegnir áfram aóalhlutverki á
leiksviði hinsegin fólks. Eða allt þar til samkeppnin lætur á sér kræla.
Snemma árs 1997 eiga sér stað hræringar á horni Bankastrætis og
Þingholtsstrætis og í kjölfarið opnar Nellý’s Café dyr sínar fyrir gestum.
Nellý's býður upp á gamla diskótónlist í bland við nýrri danstónlist
og þrífst ágætlega næstu árin sem „gay friendly" skemmtistaður.
Þangað kemur töluvert af hinsegin fólki, drottningar halda dragsjó um
helgar, Herbert Guðmundsson gerir „comeback" og staðurinn verður
meira að segja vettvangur hinnar geysivinsælu Dragkeppni fslands.