Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Síða 60

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Síða 60
Fyrri hluta árs 1998 er ferðínní svo heitið f Lækjargötuna þar sem Nýja bíó og Tunglið voru áður tii heimilis. Húsið öðlast nú nýtt iíf og Heaven, dansstaður að fyrirmynd erlendra klúbba, opnar meö fjólubláu Ijósi við barinn. Staðurinn tekur nokkur spor, en gamanið verður stutt og hann andast skömmu síðar. I lokjúlí brennur svo sjálft húsið til kaldra kola og er rifið. í dag er þar verslunin Iða. //Kastljósið á Hverfisgötunni Þetta sama haust verða enn á ný vatnaskil í sögunni. Á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis, þar sem í dag er 101 Hótel, hefur nýr gaystaður rekstur í kjallara Ingólfscafés sáluga. Og nú er samkeppnin svo öflug að 22 sem í áratug hafa staðið af sér öll áhlaup mega lúta í lægra haldi fyrir hinum unga samkeppnisaðila, Spotlight Club. Ingi Rafn segir frá: Fólk rokkaði dálítið á milli f fyrstu, en svo lenti 22 fljótlega í rekstrarlegum hremmingum, varð mjög sjúskaður og fékk á sig nafnið Subban. Gayliðið hætti svo að sækja Subbuna og henni blæddi út hægt og rólega. UNDIR REGNBOGANUM Dyraverðir SpotligHtstandaS/aktina á Hverfisgötunni. Mikill eldmóður einkennir hins vegar rekstur Spotlíght Club, enda eru rekstraraðilarnir að stórum hluta ungt og kraftmikið hinsegin fólk. Hannes Páll Pálsson er einn þeirra: Okkur fannst eitthvað vanta þarna í skemmtanalífið og vorum nægilega ung og ævintýragjörn til að taka bara af skarið gera eitthvaö f málunum. Hópurinn fær til liðs við sig reynt fólk úr bransanum, ákveður strax að bjóöa upp á dansvænt umhverfi og vinnur ávallt út frá skýrri hugmyndafræði. Hannes heldur áfram: Já, það var á hreinu alveg frá byrjun að Spotlight væri gay. Staðurinn var auglýstur sem slíkur og þótt stefnan væri tekin á heitustu danstónlistina vorum við líka óhrædd við að taka klisjuna með Donnu Summer og félögum. Þetta lagðist líka svona rosalega vel í fólk. Spotlight á líka velgengni að fagna næstu árin. Staðurinn rúmar nokkur hundruð manns, er bæði sóttur af hommum og lesbíum og verður einnig gríðarlega vinsæll meðal gagnkynhneigðra. Klúbbastemmingin er allsráðandi á stærsta dansgólfi miðbæjarins, mikið um þemakvöld og allskyns uppákomur og kátínan er smitandi. Og á milli dansa má setjast niður og slaka á, nú eða ganga hringinn um reykfyllta og dularfulla ranghala staðarins og vonasttil að koma auga á álitlegan mann eða konu. Með tímanum fer stemmingin þó að breytast. Tónlistin verður harðari, kúnnahópurinn breytist og nú fer líka að bera á því að bjórdrekkandi og Abbadansandi hommar og lesbíur hitti fyrir fólk í stjörfu fíkniefnastuöi. Og þegar þessir ólíku kraftar mætast verða óneitanlega árekstrar, en áfram heldur reksturinn. 200^008 //Upprisa ogdauði íupphafi aldar Á haustdögum ársins 2000 bætist svo enn í skemmtistaðaflóruna þegar nýr staður opnar í húsnæðinu sem í dag hýsir Ölstofuna við Vegamótastíg. Staðurinn er allur hinn glæsilegasti, en kúnnahópurinn er heldur þrengri en á öðrum stöðum. Mannsbar einskorðar sig nefnilega við karlmenn. Staðurinn öðlast töluverðar vínsældir meðal homma á öllum aldri, enda andrúmsloftið þægilegt. Og þar sem setið er hringinn í kringum barinn má auðveldlega komast í augnsamband við manninn á móti. Sé vilji til þess. Sniðug útfærslan á barnum virðist þó ekki nægja til að tryggja reksturinn og lokast dyrnar endanlega í upphafi árs 2002. Saga Mannsbars er þar með öll. Um svipað leyti flytur Spotlight í húsnæði Café Thomsen við Hafnarstræti 17. Boðið er upp á bari og tónlist á 1. hæð og í kjallara og þar sem hinsegin fólk er trútt sínum kæra stað fylgir það honum á nýtt heimilisfang. Jens Fjalar Skaptason er á þessum tíma að stíga sín fyrstu skref í hommaheiminum: Ég var 17 ára, rétt náði í skottið á staðnum og skemmti mér bara mjög vel. Þótt mér hafi náttúrulega nokkrum sinnum verið vísað út vegna ungs aldurs! Brátt fer þó að halla undan fæti. Tónlistin fer í sama harða farið og á Hverfisgötunni, efnin verða á ný áberandi og gleðin hverfur. Og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.