Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 62

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Blaðsíða 62
bara inn í rokkstjörnuhlutverkið, spiluðum allar helgar og vorum alltaf með seðlabúnt í vasanum. Algjörlega í takt við konseptið. Svo fylgdu okkur náttúrulega líka grúppíur. Árið 2005 fannst okkur þetta svo komið gott. Konseptið hefur bara ákveðinn líftíma og átti aldrei að standa svona lengi. Viö gátum heldur ekkert verið að semja eigin tónlist inn í það, kaldhæðnin sem fylgdi því var einfaldlega of mikil. //Frá Kósýá Qúbu Að Nonna homma og Rokkslæðunni gengnum ákveður fólk að þrauka þrengslin á Kósý næstu árin. Á þessum tíma viröist Kósý líka vera eina skjól hinsegin fólks, en þegar grannt er skoðað má sjá að þrátt fyrir að vera sá eini á almennum markaói merktur gay fólki, er hann alls ekki einn um hitunaa. MSC hefur til dæmis verið starfræktur allt frá árinu 1985 og þrátt fyrir að vera einkaklúbbur leðurhommanna hafa þeir oftast tekið óbreyttu hommunum opnum örmum þegar harðnað hefur á skemmtanadalnum. Það á líka við f núverandi hallæri. Lesbíurnar halda annað. Árið 2004 er nefnilega stofnaður tónlistarbar f gömlu timburhúsi við Laugaveg 30 sem fær nafnið Dillon. Andrea Jónsdóttir gerist plötusnúður og upp frá því verður hann einskonar óopinber lesbíustaður íslands. Lára segir frá: Já, Andrea er þarna í fararbroddi, á sinn trygga aödáendahóp og það má segja að þetta verði einskonar Staupasteinn lesbíanna. Þarna koma ákveðnar barflugur sem allar þekkjast, líður vel og eiga þarna sitt örugga skjól. í lok febrúar 2007 er svo nýjum stað hleypt af stokkunum við Ingólfsstrætiö. Ekki er laust við ákveðna tortryggni í garð staðarins meðal senufólks sem minnist allra staðanna sem f gegnum tíðina hefur verið breytt í hinsegin hálmstrá að grípa í korteri fyrir gjaldþrotið. Þrátt fyrir fyrirvarana ákveður senan þó að mæta á hinn nýja Q-bar og sannreynir brátt að starfsfólkið hér leggur allan sinn metnað í að halda uppi fjöri og góðri þjónustu. Gestirnir fara því á Qúbuna og kunna að meta það. Vinsældirnar aukast fljótt og nú getur fólk aftur valið um tvo hinsegin staði. Eða allt þar Kósý lendirí húsnæðis-hrakningum um mitt ár og leggur upp laupana. Qúban stendur hins vegar af sér reykingabann, kvartanir og hótanir um styttan opnunartíma og réttu ári eftir opnun sýna hvorki hún né gestir hennar á sér neitt fararsnið. f desember 2007 fær hún líka samkeppni frá staónum Black sem er þar sem Litli Ijóti andarunginn var áður til húsa í Lækjargötunni. Þá er spurningin bara: Eru þessir staðir komnirtil að vera og verða 2 staðir samtímis regla fremur en undantekning? Eða munu þeir hljóta sömu örlög og öndin Brabra forðum daga? Nú, eða 22? Eða Spotlight? Eða Moulin Rouge? Eða Gestur? Eða... Um það getur víst enginn spáð. SAMTAKABÖLL OG SKEMMTANIR TENGDRA FÉLAGA //Mikilvægi mannamóta Eftir þessa skemmtistaðayfirreið er ekki úr vegi að víkja að skemmtunum á vegum Samtakanna ‘78 og skyldra aðila. Að loknu fyrsta balli sínu á Manhattan í Kópavogi 1981, sem gerð eru skil annars staðar í þessu blaði, halda Samtökin mörg eftirminnileg böll. Þau koma víða við og ferðast á 9. áratugnum um staði eins og Hreyfilshúsið við Grensás-veg, Félagsheimilið Drangey í Stakkahlíð og Snorrabæ f Austurbæ. Risið á Hverfisgötu kemur einnig við sögu en þar treöur lesbíubandið Jarþrúður til að mynda upp við góðan orðstír. Tónlistin á böllunum er yfirleitt í höndum aðkeyptra plötusnúða en stundum er hún heimatilbúin og þá oft í formi sýninga. Ingi Rafn lýsir mikilvægi ballanna: Þau sköpuðu eðlilegan vettvang til að hittast og skemmta sér á og fylltu því alveg gríðarlegt tómarúm. Og þar sem þetta var eini vettvangurinn sem margir hættu sér út á reyndust þau mörgu fólki mjög mikilvæg. Svo voru þau bara líka oft svo ótrúlega skemmtileg. Hann rifjar í framhaldinu upp „Þjóhátíð" í Risinu: Hún var skipulögó alveg eins og Þjóðhátíð. Fyrst var ávarp forsætisráðherra og svo tróö ég upp í skautbúningi, með álímt yfirvaraskegg og hélt ræðu í bundnu máli. Ein lesbían stóð svo heiðursvörð við hlió mér í skátabúningi og hélt yfir mér regnhlíf til að skapa alvöru Þjó(ð)hátíðarstemmningu. Lára lýsir böllunum á eftirfarandi hátt: Samtakaböllin voru fólki mjög mikilvæg. Að sjálfsögðu. I byrjun snerust þau oft um ofurdrukkið fólk í leit að einhverri sálrænni spennulosun og útrás og auðvitað að félaga. mam 1*1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.