Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 71
að tryggja hag
maka sinna sem best
ef eitthvað kæmi fyrir.
Önnur úrræói voru ekki til.
En allt var að breytast og
batna. Viðhorf í þjóðfélaginu
höfðu gjörbreyst á skömmum
tíma. Allir vissu af starfsemi
Samtakanna ‘78 og æ fleiri komu úr
felum, báru höfuðið hátt og kröfðust
jafnréttis. Fyrir tólf árum varð mikil réttarbót,
þegar samkynhneigðum var heimilt að skrá sig
í staðfesta samvist. Allt í einu áttum viö möguleika á að
öðlast réttindi, sem svo skömmu áöur virtust óhugsandi.
Fyrir níu árum fórum við, ég og konan mín, að huga að
barneignum. Við gátum ekki ættleitt börn saman, samkynhneigðir
höfðu ekki þann rétt. Við áttum engan möguleika á að nýta okkur
þjónustu heilbrigðiskerfisins hér á landi og fara í tæknifrjóvgun.
Fyrirtæpum átta árum varð konan mín barnshafandi í Bandarfkjunum
En ég var réttlaus gagnvart tvíburadætrum okkar þegar þær fæddust,
þótt við mæður þeirra værum í staðfestri samvist. Ég mátti þó
stjúpættleiöa þessi börn konu minnar, eins og það hét, og gerði
það. Eg átti hins vegar
engan opinberan rétt
tii fæðingarorlofs, enda
töldust litlu stelpurnar
ekki dætur mínar, þótt
ég hefði verið sú sem
klippti á naflastrenginn.
Fyrir tveimur árum gengu
í gildi lög, sem færa rétt
samkynhneigðra tii jafns
við rétt annarra. Við getum
skráð okkur í sambúð í þjóðskrá
eins og gagnkynhneigð pör. Þar
með njóta samkynhneigð pör í sambúð
sömu réttinda og lúta sömu skyldum
og gagnkynhneigðir hvað varðar
almannatryggingar, lífeyrismál, skattamál,
erfðamái og fjölmargt fleira. Við getum
líka, sem fyrr, staðfest samvist okkar. Við
megum ættleiða börn. Við lesbíurnar getum farið
í tæknifrjóvgun innan íslenska heilbrigðiskerfisins og njótum
sama réttar til fæðingarorlofs og gagnkynhneigðir foreldrar.
Tvíburastelpurnar, sem fæddust í Bandaríkjunum fyrir
tæpum sjö árum, hafa aldrei orðiö fyrir aðkasti af neinu tagi
vegna þeirrar staðreyndar að þær eiga tvær mömmur.
Þrjátíu ár eru ekki langur tími. Samt hefur ailt breyst.