Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 73

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 73
Viö Steinunn byrjuóum saman í ágúst 2003, en stuttu síðar fór ég ein í heimsókn til strákanna og ræddi möguleikann viö þá. Viö Steinunn vorum svo nýbyrjaðar saman að hún hafði ekki enn kynnst strákunum, en ég fór til þeirra til að panta þá, ef af þessu yrði seinna meir. Ég vildi ekki setja sérstaka pressu á Steinunni eða samband okkar, enda var það ekki tímabært. Ég sagði strákunum að ég væri bara að hugsa til framtíöar, þeir þyrftu alls ekki að svara þessu strax. Við ræddum ekki einu sinni hvor þeirra yrði líffræðilegur faðir.“ Þorsteini leist strax mjög vel á hugmyndina, en Orri segist hafa haft ýmsar efasemdir. „Ég var logandi hræddur, satt best að segja. Ég var mjög sáttur viö líf okkar Þorsteins, vió höfðum frelsi til að gera allt sem okkur datt í hug og mér fannst að barn hlyti að hefta okkur ógurlega. Við Þorsteinn höfðum að vísu rætt aöeins um möguleikann á að verða pabbar, en það virtist alveg út úr myndinni. Mér leist ekkert allt of vel á þetta, þótt Þorsteinn væri spenntur. I raun hurfu efasemdir mínar ekki endanlega fyrr en Reynir Björn fæddist." Þegar Kolbrún og Steinunn höfðu verið saman um tíma töluóu þær um barneignir og Steinunni leist vel á aó leita til Þorsteins og Orra. „Ég vissi að ég yrði að gera eitthvað í málunum fyrr en síðar, ef ég ætlaði aö eignast barn, enda var ég þá komin yfir þrítugt," segir hún. //Ekki stjúpættleiðing Þau hittust margoft og ræddu málin, því þau vildu undirbúa allt vel og vandlega. Stærsta málið var hvort Kolbrún ætti aö stjúpættleiða barnið, eftir að Steinunn fæddi það. Þær höfðu alltaf gengið út frá að svo yrói, en Þorsteinn tók það ekki í mál og Orri var sammála honum. „Við Þorsteinn vorum sammála um að ef Kolbrún stjúpættleiddi barnið værum við að gefa þau skilaboö aö við vildum sem minnst af því vita,“ segir Orri og Þorsteinn bætir við að hann hafi ekki getaö hugsað sér að verða faöir barns, en hafa ekki forræói þess. Steinunn segir að þær Kolbrún hafi fljótlega komist á sömu skoðun, enda væri þessi afstaða pabbanna mjög skiljanleg. Þær sögðu hins vegar að þessi ákvörðun þeirra hefði sætt töluverðri gagnrýni, til dæmis hefðu aðrar lesbíur í staðfestri samvist sumar átt mjög erfitt með að skilja að Kolbrún skyldi samþykkja þetta. „Ábyrgð okkar gagnvart syni okkar er mikil," segir Kolbrún. „Við látum hans hagsmuni ráða og satt best að segja er þetta fyrirkomulag sanngjarnast. Sanngirni er lykilorðið, þegar fjórir einstaklingar þurfa að taka ákvörðun um hagsmuni eins barns. Við fórum þessa leið af því að við vildum að sonur okkar þekkti uppruna sinn, svo það var ósköp eðlilegt að Þorsteinn væri skráður faóir hans og hefði forræðiö með Steinunni." Þau voru svo forsjál, að þau ákváðu með árs fyrirvara hvenær þau myndu fyrst reyna að geta barn. „í maí 2006 byrjuöum við að reyna og ég var orðin ólétt í desember sama ár,“ segir Steinunn. „Þetta gekk allt saman vel, en að vísu átti ég pantaðan tíma á Art Medica, sem framkvæmir tæknifrjóvganir, daginn eftir að ég uppgötvaöi að ég var ólétt. Ég ætlaði bara að kanna hvort ekki væri allt í lagi, en við höfðum ekki tekið neina ákvörðun um næstu skref, ef þetta hefði ekki gengið." Þegar Steinunn var komin langt á leið héldu foreldrarnir fjórir boð fyrir afa og ömmur. Stofan fylltist, því þarna mættu foreldrar Þorsteins og foreldrar Orra, foreldrar Steinunnar, mamma Kolbrúnar og pabbi og stjúpa hennar. Alls níu manns, sem allir áttu tilkall til litla drengsins. „Þau eru öll alsæl með þetta," segja fjórmenningarnir, Fjöldinn í afa- og ömmuveislunni varvísbending um það sem koma skyldi, því á jólunum fékk litli guttinn, rétt rúmlega fjögurra mánaða gamall, yfir þrjátíu pakka og fleiri en eina gjöf í hverjum. Foreldrarnir reyna þó að skipta dótinu aðeins, það sem fjölskyldur Orra og Þorsteins gefa er á heimili þeirra, en annað á heimilí Kolbrúnar og Steinunnar. Seinna meir fær Reynir Björn eigið herbergi á heimili pabba sinna, enda verður hann þar með annan fótinn eftir að brjóstagjöf sleppir. Núna er töluvert langt á milli foreldranna, þeir búa í Norðurmýrinni en þær í Grafarvogi. Þau reikna með að færa heimilin nær þegar líður aö skólagöngu sonarins, en viðurkenna að þetta sé líklega eina atriðið sem þau hafi ekki samið um. Það verður leyst af sanngirni, með hagsmuni Reynis Björns í huga, eins og annað. //Uppnám hjá sýslumanni Þegar Reynir Björn fæddist var gengið frá sameiginlegu forræði Þorsteins og Steinunnar. Það var reyndar fremur skondin uppákoma, því þau fóru til sýslumanns til að ganga formlega frá öllu saman. Þar spurði kona þau hvort þau væru í sambúð, en þau neituðu. Hún ítrekaði spurningu sína skömmu síðar og horfði stíft á giftingarhringinn á fingri Steinunnar. Þau neituðu aftur, en skýrðu svo málið. Hann væri sem sagt í staöfestri samvist meö öðrum karlmanni, en hún í staðfestri samvist með annarri konu. Þá varð uppi fótur ogfit, konan taldi að Kolbrún hlyti aö veröa skráð foreldri drengsins fyrst hann fæddist í staöfestri samvist og málinu var vísaö til dómsmálaráðuneytisins. Þá hafði lögum nýlega verið breytt á þann veg að lesbíur gætu farið í tæknifrjóvgun hér á landi og ef þær gerðu það, þá var maki þeirra skráður foreldri barnsins sem þær eignuðust. í tilfelli fjórmenninganna var málum öðruvísi háttað, þetta var ekki tæknifrjóvgun og það lék enginn vafi á hverværi pabbinn. Þorsteinn var loksformlega skráðurfaðir, með sameiginlegt forræði með móður. Litli strákurinn þeirra var ekki skírður, en séra Auður Eir kom heim til þeirra og blessaði hann og þau öll þegar hann var nefndur. „Við ákváöum að vera bara fjögur með strákinn. Við ætluðum fyrst að bjóða til veislu, en þegar við höfðum öll taliö upp okkar nánustu þá var hópurinn kominn vel yfir 50 manns og við sáum fram á að þurfa að leigja sal úti í bæ. Þetta er kannski eini gallinn, að nánustu ættingjar eru svo margir, en um leiö er það auðvitað einn stærsti kosturinn. Við tókum upp myndband fyrir ömmur og afa, en fórum svo fjögur saman út aö borða um kvöldiö. Eða fimm, öllu heldur, því Reynir Björn var auðvitað heiðursgesturinn." Þótt Orri haldi því enn fram að hann fari á taugum, ef hann þarf að sinna smábarni, þá segja þau hin að það sé alrangt. Orri hafi til dæmis sagt að hann gæti ekki snert á barninu fyrr en það væri orðið nokkurra mánaða gamalt og ekki jafn viðkvæmt og fyrst eftir fæðingu, en samt hafi hann verið kominn með drenginn í fangið nokkrum tímum eftirfæðingu. //Rauðhærðir þríburar? Steinunn segir að þær Kolbrún hafi fengið endanlega staðfestingu á pabbavalinu þegar þærfóru í giftingu Þorsteins og Orra sumarið 2006. „Bræðrabörn Orra voru í giftingunni og þegarvið sáum þá með þessum litlu krökkum var augljóst hvað þeir eru miklir barnakallar. Litlu systur Kolbrúnar dýrka þá og vita enga menn skemmtilegri. Við völdum réttu náungana, það er enginn vafi. Og eru ekki bara hrein forréttindi að eiga tvær mömmur og tvo pabba?" Þær Kolbrún og Steinunn vilja eignast fleiri börn og Kolbrún ætlar að ganga með næsta barn. Eða börn, ef henni verður að ósk sinni. „Ég hef alltaf viljað eignast mörg börn og vil gjarnan eignast rauðhærða þríbura næst!" segir hún. 73

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.