Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Qupperneq 79

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Qupperneq 79
//Orteftirpöntun „Öll viðleitni okkar til að skapa eigin sögu var unnin í frístundum, á kvöldin og nóttunni, og eiginlega alltaf á einhverjum hlaupum. Þannig er það að minnsta kosti í minningunni. Stundum þurfti samt ekki mikið til að eitthvað gott yrði til og þaö gat borgað sig á ýta hér og þrýsta þar til að eitthvað gerðist. Einu sinni orðaði ég það við Þorstein Gylfason hvort hann gæti ekki beint sinni miklu þýðingagáfu að stöku hommaljóði. Auðvitað tók hann mig á orðinu, hann var þannig gerður. Nokkrum dögum síðarfærði hann mér þrjár þýðingar úr Calamus-bálkinum eftir Walt Whitman. Þær hafa flogið víöa. Svipað má segja um þýðingu Elíasar Marar á „Hinum dauðadæmda" eftir Genet. Rétt fyrir eina af menningarvökum Samtakanna '78 heimsótti ég hann á Birkimelinn með textann að Ijóðinu á frönsku og fleiri tungumálum og spurði hvort hann gæti ekki reynt að lyfta stemningunni eitt kvöld með góðri þýöingu. „Heldurðu að ég yrki eftir pöntun?" hnussaði í Elíasi, og ég dauðsá eftir öllu saman. En viku seinna var komið Ijóð á íslensku. Eitt það besta úr penna Elíasar. Annars er það vandasamt viðfangsefni að yrkja um veruleika þeirra sem lifa ájaðrinum í einhverjum skilningi. Það skiptir máli hvertalar, hvort skáldið skrifar af eigin reynslu eða sem „sympatisör". Sögur gagnkynhneigðra skálda sem skrifa um samkynhneigð finnast mér góðra gjalda verðar, en oftast eru þær aðeins skugginn af sögum þeirra sem hafa reynt hinsegin veruleikann á eigin skinni. Það er ekki einleikið hvaö ég verð stundum annars hugar gagnvart tilraunum gagnkynhneigðra skálda til aó lýsa hommum. Ég man hvað mér leiddist kvikmyndin Brokeback Mountain. Þar þótti mér vanta eitthvert það element sem þó var frekar til staöar í samnefndri sögu eftir Annie Proulx - þessa glöðu og djúpu nautn sem þrátt fyrir allt er ævinlega til staðar í þjáníngu hinsegin fólks, þessar voldugu andstæður sem skapa hina samkynhneigðu reynslu. //Vinsælt bókasafn Þorvaldur var í hópi þeirra brautryðjenda sem stofnuðu bókasafn Samtakanna ‘78 fyrir rúmum tveimur áratugum, vorið 1987. „Vinsældirnar voru gríóarlegar og greinilegt að þörfin fyrir einhvers konar samtal við sálina í texta og kvikmyndum var sterk. Ég lýg því ekki að fyrstu árin var slegist um bókakostinn og fyrstu kvikmyndirnar sem bárust í safnið. Ég sakna stundum þeirra tíma þegar ég horfi á frábærar nýjar skáldsögur í hillunum sem ekki hreyfast vikum eða mánuðum saman. Ég held líka að þessi „neysla" á skáldverkum og fræðiritum um samkynhneigð mál hafi búið til óvenju sterkan og meðvitaðan hóp á þessum mikilvægu árum í starfi félagsins þegar þörfin var hvað mest fyrir styrk og skýra með- vitund." Bókasafn Samtakanpa '78 er einstakt í sinni röð, því að þess eru sárafá dæmi í öðrum löndum að rekin séu almenningsbókasöfn með hinsegin efni eingöngu. Og fæst af þessu efni er til á öðrum bókasöfnum hér á landi. En það kostaði mikið hugrekki fyrstu árin að fá lánað á bókasafni Samtakanna, gefa persónuupplýsingar og láta skrá útlán. Rýrnunin var líka umtalsverð, að sögn Þorvaldar. „En allur þessi stuldur vitnaði um þörf, og ekki eitt Ijótt orð um það mál. Mér hlýnar beinlínis um hjartað þegar ég rek augun í Ruby Fruit Jungle eftir Ritu Mae Brown á safninu því að á fyrri árum var hún „stolnasta bókin" þar á bæ og fyrir vikið þurfti oft að endurnýja hana. Vonandi hafa stolnu eintökin skilað íslenskum lesbíum á annan og betri stað í tilverunni." Hér les Sigurður A. Magnússon úr verkum sínum fyrir félagsmenn á bóksafninu árið 1993. Lengsttil hægri sést íKristínu Ómarsdóttur. n ■ Kristín Ómarsdóttir Brjóstin hvít og mjúk HLAUPASTELPA Einsoggellur Fæturnir spírur Ég er hlaupastelpa -alltaf á iði Og húmið býr í augum mínum Ég er glæný hlaupastelpa Með eld í maganum Ég Og hlaupasting I hnjánum leita á nóttina Alveg nývaxin Varir mínar -óx upp í fyrra Drekka svita Og þorsta Pabbi kallar mig blóm Og mamma skilur ekki bofs Varir mínar Blíðu blíðu Nei Ég er ekki þurr kleina Varir mínar Sem þú étur með mjólk. Fríðu fríðu. Ég er kræklingur, rækja og gella -Ný kartafla um haust með salti og sméri. Tunga mín er töm Og kann að hvolfa hugum Húðin ísköld mjólk; Og eigir þú hugsanir, Stundum volg Einsog grjót einsog spjót, Þá renna þær niður dalinn Stundum flóuð -beint í sjó Og nasir mínar og ganga aldrei aldrei Hundóttar meir Þefa þig og á hækjum sér Þefa þig uppi. inní þér -Ég veit alveg hvar við finnumst- Munnur minn er kræklingur Skaut mitt á bragóið eins og rækja Tekið úr Ijóðabókinni í Húsinu okkar er þoka, sem kom út 1987
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.