Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1974, Page 51
ÍSL. LANDBÚN.
J. AGR. RES. ICEL.
1974 6, 1-2: 49-60
Kynbótaskipulag fyrir íslenska kúastofninn
Magnús B. Jónsson
Jón Viðar Jónmundsson
Bændaskóianum, Hvanneyri.
YFIRLIT
Skýrt er frá niðurstöðum runureikninga (simulation) til að kanna áhrif ýmissa þátta í framkvæmd
kynbótastarfsins á væntanlega erfðaframför í íslenska mjólkurkúastofninum. Rannsóknin er miðuð
við úrval fyrir aðeins einum eiginleika, mjólkurafköstum.
Kjörstærð afkvæmahópsins er fundin 20—30 dætur, sé viðmiðunin hámarkserfðaframför. Þegar til-
lit er tekið til kostnaðar við framkvæmd, virðist hópstærð 80—100 dætur ráðleg.
Rétt virðist að nota óreynd naut heldur meira en reynd naut.
Erfðaframfarir aukast eftir því sem meira sæði er safnað úr hverju nauti. Með hliðsjón af kostnaði
virðist ráðlegt að miða sæðistöku við 5000—6000 skammta úr hverju nauti.
Tveir nautsfeður í árgangi er talið ráðlegt. Sýnt er fram á, að unnt er að auka verulega notkun holda-
nauta án áhrifa á kynbótastarfið í mjólkurkúastofninum.
Sýnt er fram á veruleg áhrif arfgengis, þátttöku f skýrsluhaldinu og stofnstærðar á væntanlegan ár-
angur kynbótastarfsins.
Niðurstöðurnar eru ræddar allítarlega bæði út frá erlendum rannsóknum og með tilliti til núverandi
framkvæmdar kynbótastarfsins í nautgriparækt hér á landi.
Inngangur.
Kynbætur nautgripa hér á landi eru sam-
vinnustarfsemi, sem lýtur stjórn Búnaðarfé-
lags íslands samkvæmt búfjárræktarlögum.
Fjármögnun kynbótastarfsins er að miklu
leyti á vegum ríkisvaldsins. Viðleitni þeirra,
sem kynbótastarfinu stjórna, er, að það fjár-
magn, sem til þess er varið, skili sem mesmm
arði með kynbótaframförum í stofninum.
Það eru ákaflega margir þættir, sem áhrif
hafa á hagkvæmni kynbótastarfsins. Hag-
kvæmustu lausnina verður því að vinna með
því að setja upp módel, þar sem tekið er
tiliit til sem flestra þátta, og leita síðan hag-
kvæmusm lausna. Erlendis hafa á síðasta ára-
mg verið gerðar margar rannsóknir á þessu
sviði. Yfirlit yfir þær er gefið af Cunning-
ham (1973).
Hér á eftir verður gerð grein fyrir rann-
sókn, sem gerð hefur verið, um kynbæmr
nautgripa við íslenskar aðstæður.
Aðferðir.
Erfðayfirburði hjá völdum hópi einstaklinga
má skrifa:
1 = * rIG°G
þar sem i er úrvalsstyrkleikinn í stöðluðum
einingum, rjQ. er samhengið milli erfða-
eðlisins, sem bæta skal, og svipfarsins, sem