Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1974, Page 63
KYNBÓTASKIPULAG FYRIR ÍSLENSKA KÚASTOFNINN 6l
einkunn nautsins. Hinks (1971) komst að
þeirri niðurstöðu, að fjárfesting til aukningar
á afköstum í mjólkurkúastofninum væri mun
arðbærari en fjárfesting í kynbómm fyrir
auknum vaxtarhraða í sama stofni. Peter-
SEN et al. (1973) fundu, að við danskar að-
stæður bæri að framkvæma allsterkt úrval
meðal nautkálfa fyrir vaxtarhraða, áður en
þeir væm teknir í notkun.
Urval fyrir bætmm mjaltaeiginleikum er
hugsanlegt að framlo/æma á tvennan hátt. I
fyrsta lagi, að allar nautsmæður væru mjalta-
hæfnisprófaðar og gerðar til þeirra vissar lág-
markskiöfur. Þetta minnkaði úrvalsstyrkleika
nautsmæðra, sem fljótt minnkar kynbóta-
framfarir, samanber töflu 12 og 13.
Hin aðferðin er, að afkvæmarannsókn færi
fram á eiginleikanum jafnhliða afkvæma-
rannsókn fyrir mjólkurafköstum. Arfgengi
mjaltahæfniseiginleika í íslenska stofninum
er óþekkt, en erlendar rannsóknir benda til,
að það sé öllu hærra en á mjólkurafköstum
(Syrstad, 1967). Annmarki þessarar aðferð-
ar er, að hún yrði líklega mjög kostnaðarsöm
í framkvæmd.
I kynbómm hér á landi hefur til þessa
verið lögð nokkur áhersla á hækkun fitu-
prósentu. Hagfræðilegt mat bendir til, að
einhliða hækkun fituprósenm sé vafasöm
(Pétur Sigurðsson, 1973). Erlendar rann-
sóknir hafa sýnt, að vegna sterkrar erfða-
fylgni fimprósentu og mjólkurmagns, en sú
fylgni er neikvæð, gefi úrval fyrir mjólkur-
magni einu sér yfir 90% af þeim framfömm
í mjólkurfitumagni, sem hugsanlegar eru
með öðm úrvali (Syrstad, 1971, Philips-
son, 1973).
Urval fyrir fleiri eiginleikum mundi því í
öllum tilvikum þýða minni úrvalsstyrkleika
fyrir afkastagetu, þeim eina eiginleika, sem
áætlun þessi er miðuð við. Hve mikið hann
minnkaði, réðist af innbyrðis erfðasamhengi
þeirra eiginleika, sem valið væri fyrir.
Framkvæmd áætlunarinnar mundi vænt-
anlega að litlu leyti raskast frá því, sem hér
er gert ráð fyrir, því að afkastagetan mun í
náinni framtíð verða einn þýðingarmesti eig-
inieikinn í ræktuninni og afkvæmarannsókn-
ir umfangsmesta verkefnið í framkvæmd
kynbótaáætlunarinnar.
Verði úrval framkvæmt fyrir fleiri eigin-
leikum, er nauðsynlegt, að það sé gert með
kynbótaeinkunn. Því vantar frekari rannsókn-
ir til að kanna arfgengi hinna ýmsu eigin-
leika hjá íslenska kúastofninum og innbyrðis
samhengi eiginleikanna.