Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 2
NÁTTÚRUVÁ „Það er einkennandi
fyrir fólk á Seyðisfirði að standa
saman og það hefur verið mjög
sýnilegt síðustu daga,“ segir Svandís
Egilsdóttir, íbúi á Seyðisfirði. Stór
aur skriða féll úr Botna brún, milli
Búðar ár og Stöðvar lækjar, skömmu
fyrir klukkan þrjú í gær og féll á hús
sem voru ekki á rýmingarsvæði.
Alls hafa þrjár aurskriður fallið á
Seyðisfirði í vikunni og eyðilagt í
það minnsta tíu hús.
Neyðarstigi var lýst yfir og bær-
inn rýmdur. Allir í bænum voru
beðnir um að gefa sig fram í félags-
heimilinu Herðubreið. Hátt í 700
manns búa á Seyðisfirði. Engra er
saknað. Almannavarnir hafa sent
allt tiltækt lið til að takast á við
ástandið næstu daga, þar á meðal
sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Miklar drunur heyrðust þegar
aurskriðan féll á bæinn í gær. Í gegn-
um rigninguna og mökkinn mátti
sjá hús sem stóð fyrir innan ána og
hafði færst af stoðum sínum og var
komið hálfa leiðina út í sjó. „Fólk var
að hlaupa út á götu á nærfötunum
enda voru drunurnar rosalegar, mér
leið eins og fjallið væri að hrynja
yfir bæinn,“ sagði íbúi við Frétta-
blaðið skömmu eftir að skriðan féll.
Rafmagn fór af hluta bæjarins.
Svandís segir kraftaverk að ekki
hafi orðið manntjón. „Þetta snertir
allar fjölskyldur hér, það er verið að
rýma hjúkrunarheimili með lokaðri
Alzheimer-deild. Það verður lang-
hlaup að byggja þetta aftur upp,“
segir hún. „Það er ekkert smáræði
að f lytja allt líf í burtu. Fyrir utan
allt fólkið eru hundrað kettir,
hænur og gullfiskar. Þetta er ekkert
smáræði. Við héldum að við værum
heppin að lenda ekki í COVID, en
við áttum ekki að sleppa við allt.“
Hættustigi var lýst yfir á Eski-
firði í gærkvöldi og voru sex götur
rýmdar. Samkvæmt almannavörn-
um hefur rýmingin í báðum bæj-
unum gengið vel. Ekki liggur fyrir
hvenær íbúar geta snúið aftur heim.
Áraraðir eru frá því að rýma þurfti
síðast heilan bæ hér á landi, var
það gert í kjölfar snjóflóða í Súða-
vík árið 1995 og vegna eldgossins í
Vestmannaeyjum árið 1973.
Brynhildur Bolladóttir, upplýs-
ingafulltrúi Rauða kross Íslands,
sagði að vel gengi í fjöldahjálpar-
stöðvum en mikið hafi verið að gera
í gær. Á Eskifirði er fjöldahjálpar-
stöð utan rýmingarsvæðisins. Seyð-
firðingum hefur víða verið boðin
gisting.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er til
taks ef þörf krefur. Varðskipið Týr
lagði af stað frá Reykjavík í gær-
kvöldi og verður komið til Seyðis-
fjarðar síðdegis í dag til að vera til
taks.
Aðalheiður L. Borgþórsdóttir,
atvinnu- og menningarmálastjóri
Múlaþings, var að skrá sig út úr
bænum þegar Fréttablaðið náði
tali af henni seinni partinn í gær.
„Ég horfði á skriðuna falla, á þetta
svæði. Ég var stödd í Ferjuhúsinu
þar sem við vorum með aðstöðu
fyrir starfsmenn og annað. Þetta féll
á þessa byggð. Synir mínir og eigin-
maður voru inni í húsi sem við héld-
um fyrst að hefði orðið fyrir, þann-
ig að þetta var alveg rosalegt,“ segir
Aðalheiður. Sem betur fer sluppu
allir. „Það var fólk í fjórum húsum
sem lentu í skriðunni í raun án þess
að eyðileggjast. Það var skrítið. Öll
húsin í kringum fóru, en ekki þessi
hús sem fólkið var inni í.“
Fjöldi manns hefur lýst yfir sam-
hug með Seyðfirðingum. Katrín
Jakobs dóttir, for sætis ráð herra,
sagði í yfirlýsingu að allir myndu
hjálpast að við að bæta tjónið og
vinna að úrbótum.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, sagði landsmenn standa
saman. Þá minnti hann á mikilvægi
björgunarsveitanna. „Úrhellinu
slotar senn. Þá verður hafist handa
við hreinsunarstarf. Svo hefst upp-
byggingin. Í henni stöndum við líka
saman,“ sagði Guðni.
Áframhaldandi skriðuhætta er á
Austurlandi. Samkvæmt upplýsing-
um frá Veðurstofu Íslands er búist
við að það hætti að rigna á svæðinu
eftir hádegi á morgun.
arib@frettabladid.is
lovisaa@frettabladid.is
FRÍTT
AÐ LEGGJA Í DAG
Húsið Breiðablik færðist um fimmtíu metra í aurskriðu í fyrrinótt. Eigandinn hafði varið síðustu tveimur áratugum í að gera það upp. MYND/ÓMAR BOGASON
Miklar drunur heyrðust þegar skriða féll á hús um þrjúleytið í gær. Húsið hafði staðið frá 1907. MYND/ÓMAR BOGASON
LÖGREGLUMÁL Fleiri en einn ein-
staklingur hefur fengið réttar-
stöðu sakbornings í rannsókn Lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
á slysi sem varð á Vesturlandsvegi
á Kjalarnesi í lok júní síðastliðins.
Tveir farþegar á bif hjóli létust í
árekstri við húsbíl. Böndin beindust
strax að malbikinu sem hafði nýlega
verið lagt og var f lughált.
Lögregla vill ekki veita frekari
upplýsingar að svo stöddu vegna
rannsóknarhagsmuna. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er um
að ræða fjóra einstaklinga, lög-
regla vildi ekki gefa upp hvort um
væri að ræða opinbera starfsmenn.
Loftorka Reykjavík sá um malbikun
vegarkaflans en efnið kom frá Mal-
bikunarstöðinni Höfða.
Í kjölfar slyssins ákvað Vega-
gerðin að malbika vegkaflann upp
á nýtt. Rannsóknir á viðnámi yfir-
borðsins leiddu í ljós að malbikið
uppfyllti ekki útboðskröfur Vega-
gerðarinnar. Bæði lögreglu og Vega-
gerðinni hafði verið gert viðvart um
ástand vegarins fyrir slysið. – ab
Fleiri en einn
með réttarstöðu
sakbornings
COVID-19 Tólf smit greindust innan-
lands í fyrradag, þar af voru fjórir
ekki í sóttkví. 34 sjúklingar voru á
sjúkrahúsi vegna COVID-19, þar af
voru fjórir á gjörgæsludeild.
Mikið álag hefur verið á Keflavík-
urflugvelli síðustu daga en í gær var
síðasti dagurinn fyrir Íslendinga að
koma heim erlendis frá ef þeir ætla
að losna úr sóttkví fyrir jól. 1.276
sýni voru tekin á landamærunum,
töluvert f leiri en undanfarna daga.
Fimm farþegar voru með jákvætt
sýni á landamærum.
Í nýjustu rýni vísindateymisins
sem vinnur að spálíkani um þróun
faraldursins segir að blikur séu á
lofti í þróun faraldursins hér á landi.
Greinilegt er að hreyfing fólks hefur
aukist að undanförnu sem eykur-
líkurnar á dreifingu veirunnar.
Erlend spálíkön gefa til kynna að
hugsanlega sé von á nýrri bylgju
faraldursins hér í janúar. – eþá
Möguleiki á
nýrri bylgju í
byrjun árs
Mikið álag var á Keflavíkurflugvelli.
Neyðarástand á Seyðisfirði
Seyðisfjörður var rýmdur eftir að stór aurskriða féll á hús. Alls hafa tíu hús orðið fyrir aurskriðum í bæn-
um í vikunni. Sex götur voru rýmdar á Eskifirði. Íbúi segir kraftaverk að ekkert manntjón hafi orðið.
Það var fólk í
fjórum húsum sem
lentu í skriðunni í raun án
þess að eyðileggjast. Það var
skrítið. Öll húsin í kring
fóru, en ekki þessi hús sem
fólkið var inni í.
Aðalheiður L. Borgþórsdóttir, íbúi á
Seyðisfirði
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð