Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 4
Þórólfur Guðnason,
sóttvarnalæknir
hefur verið settur í
sjö daga sóttkví
eftir að smit
kom upp á
sóttvarnasviði
Embættis land-
læknis. Þórólfur
fór samdægurs
í sýnatöku þar sem
ekki fannst jákvætt sýni en það
verður annað sýni tekið á næstu
dögum. Tveir aðrir starfsmenn
sóttvarnasviðs þurfa einnig að
sæta sóttkví vegna smitsins.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir,
þingmaður
gekk til liðs við
þingf lokk Sam-
fylkingarinnar
en hún hefur
setið utan
f lokka á
Alþingi frá því
að hún sagði sig
úr þingf lokki Vinstri grænna í
september. Hún segir pólitískar
áherslur sínar og Samfylkingar-
innar nátengdar, með mikilvægi á
aukinn jöfnuð í samfélaginu.
Eyjólfur Jónsson,
leikfangasmiður
hefur um árabil
haft áhuga á að
safna f lottum
leikföngum en
fór síðar að búa
til sínar eigin
fígúrur. Hann
hannar leikföng-
inn í bootleg-stíl sem
er vitnun í eftirlíkingar fráAsíu. Í
safninu er að finna leikföng sem
vísa í íslenska sjónvarpsþætti á
borð við Pappírs-Pésa og Fóst-
bræður.
Þrjú í fréttum
Leikföng,
sóttkví
og flokkar
76
þúsund Íslendingar heim-
sóttu Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhúsið, Kjarvalsstaði og
Ásmundarsafn á árinu.
1,7
milljarða króna aukning
verður í málefnum hjúkrunar-
rýma á næsta ári.
2.500
farþegar komast í gegnum nýtt
landamærakerfi Idemia á hverjum
klukkutíma.
7
börn hafa verið lögð inn á
afeitrunardeild fyrir ólögráða
ungmenni á Landspítalanum
frá því í sumar.
59
prósent fatlaðra kvenna hafa
orðið fyrir kynferðislegu,
líkamlegu eða andlegu ofbeldi
á lífsleiðinni.
TÖLUR VIKUNNAR 13.12.2020 TIL 19.12.2020
TAKMARKAÐ MAGN
BÍLA Í BOÐI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP ® CHEROKEE
Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury:
• 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting
• Jeep Active Drive I Select Terrain
með 4 drifstillingum,
• Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera
• Leðurinnrétting
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð
• Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með
bassaboxi
• Apple & Android Car Play
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
FRÁBÆRT VERÐ: 7.990.000 KR.
ÖFLUG DÍSELVÉL - 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING
SPARNEYTINN - HLAÐINN LÚXUSBÚNAÐI
VIÐSKIPTI Íslensk fyrirtæki með
tengsl við bandaríska lyfjafram-
leiðandann Pfizer hafa boðið fram
aðstoð sína til íslenskra heilbrigðis-
yfirvalda svo að útvega megi bólu-
efni til landsins fyrr en ella. Slíkum
umleitunum hefur hins vegar mætt
holur hljómur, að því er heimildir
Fréttablaðsins herma. Einn heim-
ildamaður sagði að fulltrúar hins
opinbera teldu mikilvægt að allar
ákvarðanir er vörðuðu bóluefni
„færu í gegnum rétta kanala,“ en
Ísland hefur undirgengist inn-
kaupasamning Evrópusambands-
ins um kaup á bóluefni fyrir aðild-
arlönd sambandsins og aðildarríki
Evrópska efnahagssvæðisins.
Fjölmörg fyrirtæki á Íslandi hafa
náin viðskiptatengsl við Pfizer. Þar
á meðal er Controlant, sem annast
rekstur og umsjón upplýsingakerfa
dreifingar bóluefnis Pfizer og er því
með góð sambönd við lyfjarisann.
Icepharma er svo umboðsaðili
Pfizer á Íslandi, en fyrirtækin vildu
ekki tjá sig um málið.
Í vikunni sem leið hefur töluverð
upplýsingaóreiða verið ríkjandi um
tímasetningar og umfang bólusetn-
inga. Þann 3. desember síðastliðinn
birti heilbrigðisráðuneytið tilkynn-
ingu sem gaf til kynna að kaup
á bóluefni Pfizer fyrir allt að 85
þúsund einstaklinga væru handan
hornsins. Í sömu tilkynningu voru
leiddar líkur að því að hugsanlega
næðist hjarðónæmi um vorið.
Á undanförnum dögum hefur
staðan um komu bóluefnisins
breyst og nokkuð virtist bera á milli
í málflutningi heilbrigðisyfirvalda
og sóttvarnayfirvalda. Nýjustu
fregnir eru svo þær að 27. desember
næstkomandi muni þrjú þúsund
skammtar af bóluefni Pfizer berast
á viku til landsins. Ef sú tíðni helst
óbreytt út árið, mun það nægja til
bólusetningar á tæplega 80 þúsund
manns, sem svarar til um fimmt-
ungs þjóðarinnar. Það eitt og sér
yrði fjarri því sem dygði til að ná
hjarðónæmi.
Í erindi Svandísar Svavarsdóttur
um bóluefni á Alþingi í gær sagði
Svandís meðal annars að tryggt
væri að Ísland fengi bóluefni í sama
hlutfalli og önnur Evrópulönd. Einn
viðmælandi Fréttablaðsins sagði að
hugsanlega hefði það verið misráðið
að taka þátt í stórinnkaupum Evr-
ópuríkja á bóluefni, enda hefði öll
áherslan þar verið að ná samning-
um við AstraZeneca. Bóluefnisþró-
un AstraZeneca er töluvert styttra
á veg komið en Pfizer. Evrópulönd
hafi hins vegar beitt hvert annað
þrýstingi um að kaupa bóluefnið
sameiginlega svo enginn reyndi
að troðast fram fyrir röðina. Heil-
brigðisyfirvöld um alla Evrópu hafa
markað þá stefnu að eiga í beinum
samskiptum við lyfjaframleiðendur
um kaup á bóluefni. Hins vegar er
allur gangur á því upp að hvaða
marki stjórnsýslan nýtir sér tengsl
einkafyrirtækja við erlenda fram-
leiðendur, en íslenska stjórnsýslan
virðist sitja eftir í þeim efnum.
Á meðan Evrópusambandið lagði
áherslu á að semja við AstraZeneca
gengu önnur ríki frá samningum
við Pfizer. Má þar nefna Banda-
ríkin, Kanada, Bretland, Japan,
Singapúr, Mexíkó og Suður-Kóreu.
Þar af leiðandi hefur Pfizer skorið
niður sendingar á bóluefni til Evr-
ópulanda að undanskildu Bret-
landi, sem gekk frá samningum við
Pfizer fyrr í haust og hefur þegar
hafið bólusetningar.
thg@frettabladid.is
Afþökkuðu aðstoð fyrirtækja
við að ná tengslum við Pfizer
Íslenska stjórnsýslan hefur hikað við að nýta sér tengsl einkafyrirtækja við erlenda lyfjaframleiðendur.
Fjölmörg, fjölmenn ríki sömdu við Pfizer langt á undan Evrópusambandinu sem lagði mesta áherslu á
að ná samningum við AstraZeneca. Bretar sömdu snemma við Pfizer og hafa hafið bólusetningar.
Bólusetningar með bóluefni Pfizer/BioNTech hófust í Bretlandi í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð