Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 12
9-22
ALLA HELGINA
OPIÐ
OPIÐ 9-20 á Hvolsvelli, Reyðarfirði,
Vestmannaeyjum, Vík og Þorlákshöfn.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Pssst ...
Gott að gera
jólainnkaupin
snemma í ár
Tímasetning sölu rík-isins á hlut í Íslands-banka er góð, að mati viðmælanda Frétta-blaðsins. Samhliða lægra vaxtastigi hefur
eftirspurn eftir fjárfestingakostum
aukist. Forstjóri Kauphallarinn-
ar segir að skráning Íslandsbanka
væri mikilvæg fyrir hlutabréfa-
markaðinn og myndi laða að fjár-
festa, innlenda sem erlenda.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra féllst í gær á tillögur
Bankasýslu ríkisins um sölu á hlut
í Íslandsbanka. Stefnt er á að selja
hlutina í almennu hlutafjárútboði
og skrá bankann, sem er að fullu í
eigu ríkisins, í Kauphöllina.
Magnús Harðarson, forstjóri
Kauphallarinnar, nefnir gengis-
þróun Arion banka sem nærtækt
viðmið um hvort um sé að ræðan
góðan tímapunkt til að selja í
Íslandsbanka. Hinn 4. mars lagði
Bankasýsla ríkisins til að ríkið
myndi selja að lágmarki 20 pró-
senta hlut í Íslandsbanka en dró
tillöguna til baka tveimur vikum
seinna í ljósi breyttra aðstæðna
sem rekja má til COVID-19. 4. mars
var gengi Arion banka 80 krónur á
hlut en hafði lækkað í 59 krónur
daginn sem Bankasýslan dró tillög-
una til baka. Nú sé gengi bankans
rúmlega 91, að hans sögn.
Valdimar Ármann, sérfræðingur
í markaðsviðskiptum hjá Arc-
tica Finance, segir að tímasetning
sölunnar sé góð. Annars vegar
hljóti háar fjárhæðir á innláns-
reikningum að leita í arðbærari
fjárfestingarkosti eins og hlutabréf.
Hins vegar ætti breytt umhverfi í
vaxtastigi landsins að öðru jöfnu
að bæta samkeppnishæfni bank-
anna og auka arðbærni lánasafna
sem geri bankann mögulega að
áhugaverðum fjárfestingarkosti.
Magnús segir að þar að auki hafi
Alþingi samþykkt frumvarp fjár-
málaráðherra á fimmtudag, sem
auki áhuga almennings á að fjár-
festa á hlutabréfamarkaðnum.
Frumvarpið snýr að því að frí-
tekjumark einstaklinga nái einnig
til arðgreiðslna og söluhagnaðar
af skráðum hlutabréfum. Frítekju-
markið var hækkað í 300 þúsund
krónur fyrir einstaklinga og í 600
þúsund fyrir hjón.
Magnús Örn Guðmundsson, for-
stöðumaður hlutabréfa og bland-
aðra sjóða hjá Stefni, bendir á að
almenningur hafi sýnt hlutafjárút-
boði Icelandair mikinn áhuga. Sjö
þúsund nýir hluthafar hafi bæst
við þá 4.500 sem fyrir voru. „Þeim
hefur svo haldið áfram að fjölga
eftir útboð og eru nú um 13 þús-
und.“
Hann veltir upp þeim mögu-
leika að minnka bankann fyrir
skráningu, til dæmis með því að
selja lánasöfn eða rekstrareiningar
til hæstbjóðenda. „Fyrir eru tveir
skráðir bankar. Fjárfestar þurfa að
vega og meta verðmæti og tækifæri
í þeim þriðja. Fyrir liggur að frekari
hagræðingar er þörf í bankakerf-
inu, en í dag eru þrír stórir og einn
minni, sem raunar var að samein-
ast skráðu tryggingafélagi.“
Aðspurður hvort fjárfestar hafi
áhuga á að vera minnihlutaeig-
endur að banka á móti ríkinu, telur
Magnús forstjóri Kauphallarinnar
svo vera. Hann segir að ríkið þurfi
að huga vel að því fyrir útboðið
hvernig hagi skuli eignarhaldinu til
framtíðar litið. Stefna ríkisins sé að
selja Íslandsbanka að fullu en eiga
áfram hlut í Landsbankanum.
„Ef þessar breiðu línur eru hæfi-
lega skýrar tel ég að fjárfestar muni
ekki setja eignarhald ríkisins fyrir
sig,“ segir hann.
Valdimar segir að tryggja þurfi
aðkomu kjölfestufjárfesta í bank-
anum hvort sem þeir koma erlendis
frá eða séu hérlendis. Sá fjárfestir
myndi taka að sér að leiða þær
hagræðingaraðgerðir eða skipu-
lagsbreytingar sem þurfi að gera
á rekstri bankans til að hann upp-
fylli ávöxtunarmarkmið fjárfesta.
„Aðkoma ríkisins að stjórnun
bankans þarf að vera alveg skýr
og afmörkuð ef það verður áfram
hluthafi í bankanum,“ segir hann.
Til að auka líkurnar á að selja til
kjölfestufjárfestis ætti mögulega
að vinna að því að minnka efna-
hag bankans áður en til sölu og
skráningar kæmi.
Magnús Örn hjá Stefni segir að
það sé ekki útilokað að erlendir
sjóðir sýni Íslandsbanka áhuga.
Þó verði það að teljast langsótt um
þessar mundir. Erlendir fjárfestar
hafi verið að selja sig af innlendum
verðbréfamarkaði að undanförnu.
Hérlendis líkt og víða erlendis sé
bönkum meinað að greiða út arð
tímabundið. „Það geta vissulega
líka legið tækifæri í offjármögn-
uðum bönkum og að öllum líkind-
um öf lugri viðspyrnu hérlendis.
Íslensku bankarnir séu almennt
fjárhagslega sterkir í samanburði
við evrópska banka. Flokkun
Íslands í MSCI Frontier Markets
vísitöluna gæti hvatt þá til dáða,“
segir hann.
Aðspurður hvort fyrirhuguð
skráning Íslandsbanka muni leiða
til þess að fjármagn þurrkist upp
frá öðrum fjárfestingarkostum á
óheppilegum, segir Valdimar að
aukið framboð fjárfestingarkosta
dragi vissulega fjármagn frá öðrum
fjárfestingarkostum.
„Eins og staðan er núna þá er lítið
af nýjum almennum fjárfestingar-
kostum en mikill áhugi, þannig að
áhrifin verða líklega takmarkaðri
en ella.“
Tímasetning sölu Íslandsbanka góð
Sérfræðingar velta upp þeim möguleika að minnka Íslandsbanka með eignasölu og arðgreiðslu fyrir skráningu á hlutabréfamarkað.
Stefna um framtíðareignarhald ríkisins á Íslandsbanka þarf að liggja fyrir við sölu. Eftirspurn eftir traustum fjárfestingarkostum.
Fjármálaráðherra féllst í gær á tillögu Bankasýslu ríkisins um að selja hlut í Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ríkissjóður gæti minnkað vaxtabyrði sína
„Já, hví ekki?“ segir Valdimar
Ármann aðspurður hvort hægt
verði að koma sölu á hlut í Ís-
landsbanka í gegnum þingið á
kosningavetri. Hann bendir á
að mikill hallarekstur sé fram
undan hjá ríkissjóði og hluti af
fjármögnun hans þurfi að fara
fram með eignasölu. „Ávöxt-
unarkrafa ríkisskuldabréfa og
opinberra aðila hefur farið
hækkandi undanfarna mánuði
vegna áhyggna af miklu framboði
á næsta ári sem markaðurinn
hefur ekki verið reiðubúinn að
taka við. Svona sala léttir þannig á
skuldabréfamarkaðnum og í raun
og veru gæti ríkissjóður minnkað
vaxtabyrði sína af skuldabréfa-
fjármögnun þar sem líklegt er að
minni væntingar um útgáfu muni
leiða til lægri ávöxtunarkröfu en
ella. Þannig að þó að bankinn sé
seldur á afslætti þá gæti það vel
unnist upp með lægri fjármögn-
unarkostnaði á skuldahlið ríkis-
sjóðs,“ segir hann.
Valdimar Ár-
mann, sérfræð-
ingur hjá Arctica
Finance
Magnús Örn
Guðmundsson,
forstöðumaður
hjá Stefni
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð