Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 20

Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 20
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Þar með er dottinn botninn úr efnahags- lega bat- anum sem allir ráð- gerðu á fyrri hluta ársins. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Fyrir nokkru var tendrað ljós sem kveikti von um að senn væru öll okkar vandræði á bak og burt. Bólusetningar gegn veirunni væru að hefjast og við fengum fréttir um að Bretar hefðu byrjað bólusetningar og Bandaríkja-menn stuttu síðar. Heilbrigðisráðherra lýsti því í fjölmiðlum að tekist hefðu samningar við bólu- efnaframleiðendur sem tryggðu okkur bóluefni sem dygði til að sparka þessum vágesti út í ystu höf. Þungu fargi var létt af brjósti landsmanna og vart var laus- ungar í umgengni við sóttvarnareglur eins og fréttir úr miðbænum um síðustu helgi báru vitni um. Um svipað leyti voru fyrirtækin í landinu að leggja lokahönd á áætlanir næsta árs sem tóku mið af þessum gleðifregnum. Aukið var við áformaðar tekjur – hjólin tækju að snúast á ný. Fram kom að heilsugæslan gæti bólusett tugi þúsunda á hverri viku. Loksins var þessum ríflega meðgöngulöngu þjáningum að ljúka. Endamarkið í augsýn sem allir þrá eftir eyðimerkur- gönguna. Tugir þúsunda vinnufærs fólks atvinnu- laus, annar eins fjöldi sem kveið þegar mánaðamót nálguðust vegna óttans um uppsögn. Óþolandi aðstæður fjölda barna og kvenna sem búa við vaxandi heimilisofbeldi. Aukið þunglyndi, vímuflótti og sjálfs- vígshætta. Nú myndi styttast í að allt þetta yrði að baki og við gætum snúið okkur að uppbyggingarstarfi á sál og líkama, einstaklinga og fyrirtækja. Þá flytur heilbrigðisráðherra af því fréttir að fyrsta sending sé einhverju minni en gert hafði verið ráð fyrir. Ekki sé gert ráð fyrir að við fáum fleiri en 5.000 skammta í fyrstu bólusetningu og kannski 7.000 í janúar eða febrúar. Annað sé óráðið. Síðar breyttust þessar tölur. Og á fimmtudag kom fram í máli sótt- varnalæknis að ásættanlegu hjarðónæmi verði vart náð með bólusetningum hér á landi fyrr en á síðari hluta næsta árs. Nokkur upplýsingaóreiða einkennir því skilaboð stjórnvalda, sem er slæmt ofan á annað. En ekki fæst betur séð en botninn sé þar með dottinn úr efnahagslega batanum sem allir ráðgerðu á fyrri hluta ársins. Grundvöllur áætlana fyrirtækja brostinn og sá brestur er jafnvel stærri en sá sem varð þegar faraldurinn breiddist út í byrjun árs. Nú er það svo að samningar um kaup bóluefnis voru teknir úr því fyrirkomulagi sem jafnan er um kaup og dreifingu lyfja. Það er heilbrigðisráðuneytið sem annast þessa samningagerð en ekki þeir sem eru í við- skiptasambandi við lyfjaframleiðendur. Óvíst er um hverju það breytir í þessu samhengi en leiða má líkur að því að viðskiptasambönd hefðu að minnsta kosti getað tryggt sambærilegan árangur í innkaupum, og sennilega betri. Það eru því ekki líkur á öðru en að áfram þurfi sam- félagið að búa við verulega íþyngjandi takmarkanir um margra mánaða skeið. Það er umhugsunarefni. Það verður hvorki lagt á fólk né fyrirtæki að búa við íþyngjandi ráðstafanir sambærilegar þeim sem við höfum reynt, langt fram eftir næsta ári. Vinna þarf hnitmiðað að vernd viðkvæmra hópa en að öðru leyti hefja opnun samfélagsins á ný. Vernd lífs má ekki ganga svo langt að líf tapist. Það er verra en að pissa í skó sinn. Pissað í skóinn Vegna fjölgunar kórónaveirusmita munu samkomutakmarkanir einkenna jólahald um heim allan í ár. Fólk á helst ekki að koma saman. Geti það ekki haldið aftur af sér skulu aðeins fáir hittast í einu. Það er bannað að knúsast, kyssast og syngja. Alþjóða heil brigðis mála stofnunin hvetur Evrópu búa til að setja upp grímur á sam komum með fjöl skyldunni. Hugmyndir hafa verið uppi um að fresta jólunum fram til páska. Ráðamönnum er nú líkt við Scrooge og Grinch. Þeir eru sakaðir um að reyna að af lýsa jólunum. Það yrði þó ekki í fyrsta sinn í sögunni: n Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Winston Churchill. Svo hrifinn er Boris af forvera sínum sem leiddi Breta í gegnum síðari heimsstyrjöldina, að hann apar upp framkomu hans og talanda og virðist ófær um að opna munninn án þess að út streymi stríðssam- líkingar. Boris til mæðu hafa stjórnarathafnir hans undanfarið hins vegar vakið hugrenningatengsl við annan liðinn leiðtoga. Oliver Cromwell er þekktur fyrir að hafa leitt upp- reisn gegn konungsveldinu í ensku borgarastyrjöld- inni á árunum 1642-1651, gert Karl I. Englandskon- ung höfðinu styttri og lýst England lýðveldi. Hann er líka þekktur fyrir að hafa bannað jólin. Cromwell og fylgismenn hans voru púrítanar. Þeir höfðu lengi haft horn í síðu hátíðahalda jólanna, sem þeim þóttu syndsamlegt prjál. Árið 1647 bannaði þingið jólin. Verslunum og mörkuðum var gert að hafa opið alla jólahátíðina. Jólaskraut var gert útlægt. Hömlur voru settar á fögnuð og áfengis- neyslu. Hermönnum var gert að vakta götur Lund- úna og gera upptækan allan mat sem leit út fyrir að vera jólamatur. Þegnarnir tóku banninu illa. Óeirðir brutust út víða um land. Að Cromwell gengnum var konung- ungdæmið endurreist og jólin endurvakin. n Á tímum frönsku byltingarinnar sem hófst árið 1789 voru jólin blásin af. Messur voru bannaðar, kirkjuklukkur bræddar niður og bökurum gert að endurnefna jólakökur „frelsiskökur“. n Breska ríkisútvarpið, BBC, ákvað nýverið að rit- skoða eitt vinsælasta jólalag Bretlands, „Fairytale of New York“ með þjóðlaga pönkhljómsveitinni Pogues. Texti lagsins, sem er frá árinu 1987, þykir innihalda óviðeigandi orð. Í stað þess að banna lagið ætlar ríkisútvarpið að breyta textanum. Þetta er ekki í fyrsta sinn í sögunni sem texti vin- sæls jólalags hlýtur yfirhalningu. Stjórnvöld í þriðja ríki Hitlers töldu sér standa ógn af skipulagðri trúar- starfsemi. Margir söfnuðir voru bannaðir. En í stað þess að banna jólin nýttu nasistar þau sér í vil. Þeir breyttu jólunum í veraldlega hátíð, lögðu áherslu á heiðinn uppruna þeirra, leiddu að því líkur að jóla- sveinninn væri germanskur og ætti rætur að rekja til guðsins Óðins og sömdu nýja texta við þekkta jóla- sálma, þar sem Hitler fór með hlutverk frelsarans. n Kúba var lýst trúlaust ríki árið 1962. Árið 1969 afnam Fiedel Castro jólin því hátíðin þótti truf la vinnu við sykurreyrsuppskeruna. Jólatré voru alls staðar bönnuð nema á ferðamannastöðum og hót- elum. Árið 1997 tilkynnti Jóhannes Páll páfi II. að hann hygðist heimsækja Kúbu. Af því tilefni gáfu stjórn- völd Kúbverjum eins árs undanþágu frá banninu. En jólin voru komin til að vera og breytingin varð varanleg. Dagatalið og sagan sýna að jólin koma alltaf aftur. Förum því að engu óðslega um hátíðirnar. Ef við tökum Skrögg, þ.e. Ebenezer Scrooge, okkur til fyrir- myndar í ár, bíður okkar vonandi betri tíð með blóm í haga næstu jól. Jólaboð og -bönn 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.