Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 33
óróleg þegar börnin voru að fara
að sofa þetta kvöld. „Dóttir okkar
var nýbúin að taka upp á því að
vilja sofa ber að ofan eins og pabbi
hennar og bróðir og ég man að ég
hugsaði að það væri kannski ekki
rosalega sniðugt ef við þyrftum að
hlaupa út mjög skyndilega.“
Annað sem var svolítið sérstakt
að mati Önnu er að eftir að hafa
gengið fram hjá herbergi Ölmu hafi
hún bakkað og farið inn til hennar.
„Ég kyssti hana þá og bauð henni
góða nótt sem ég geri ekkert alltaf
við fimmtán ára unglinginn.“
Fylltist á nokkrum sekúndum
Eftir það gekk Anna inn í eldhús, sá
að Helena vinkona hennar og skóla-
stjóri Lýðskólans hafði hringt og
reyndi að hringja til baka án árang-
urs.
„Ég fer svo inn í stofu og hún
hringir til baka og segir mér að snjó-
flóð hafi fallið á höfnina, rétt í þeim
töluðu orðum fellur snjóflóð á húsið
mitt.“
Flóðið gekk inn í húsið sitt hvor-
um megin við Önnu sem stóð við
gluggalausan vegg. „Þetta gerist svo
ótrúlega hratt, húsið bara fyllist af
snjó á nokkrum sekúndum og rúður
sprungu vegna hljóðbylgjunnar,“
útskýrir Anna.
„Ég segi ítrekað við Helenu sem
enn er í símanum að það hafi fallið
snjóf lóð á húsið mitt en hún náði
þessu hreinlega ekki. Ég sé strax
Félagar í björgunarsveitinni Sæbjörgu, Flateyri, sem komu að björgun Ölmu
ásamt Ölmu sjálfri og Bjarnheiði hjúkrunarfræðingi sem hlúði að henni
þegar hún fannst. Hús fjölskyldunnar í bakgrunni. MYND/EYÞÓR JÓVINSSON
vini sínum og var við það að kaupa
hlut í staðnum þegar hann heyrði af
því að Anna fyrirhugaði að flytja á
Flateyri ásamt börnunum þremur.
„Það var mikið sjokk, enda minna
vesen að skreppa til Köben heldur
en þangað,“ segir Óli sem var hálf-
partinn á hliðinni vegna fréttanna,
þar til hann áttaði sig á því að hann
gæti bara f lutt vestur líka. Hann
flutti á Ísafjörð þar sem hann opn-
aði gullsmíðaverkstæði og börnin
gátu þá farið á milli og dvalið þann-
ig hjá báðum foreldrum. Óli er gam-
all skíðamaður sem tók fjallaskíðin
fram og naut sín vel fyrir vestan þar
sem stutt er í fjöllin.
Ævintýraþráin hafði enn einu
sinni dregið Önnu af stað og hún
réði sig sem kennslustjóra við Lýð-
skólann á Flateyri og leigði hús í efri
byggðum þorpsins þar sem hún bjó
með börnunum þremur.
„Ég þekkti aðeins til á Flateyri og
hafði heimsótt þorpið sem krakki.
Þarna vorum við að undirbúa
opnun skólans og það var ótrúlega
spennandi verkefni.“ Anna segir vel
hafa verið tekið á móti fjölskyld-
unni og að þeim hafi liðið mjög vel.
„Svo er þetta einn fallegasti stað-
ur landsins, Önundarfjörðurinn er
einstakur og það er varla hægt að
ímynda sér betri stað til útivistar,“
segir Óli sem ber Ísafirði einnig ein-
staklega vel söguna, þangað sem
hann er enn með sterka tengingu
og rekur þar enn verslun.
Leist ekki á staðsetningu hússins
Anna leigði eins og fyrr segir hús
fyrir sig og börnin í efri byggð Flat-
eyrar og segir Óli að sér hafi ekki
alveg litist á staðsetninguna.
„Þegar ég sá húsið sem stendur
um tveimur metrum frá snjó-
f lóðavarnargarðinum stóð mér
ekki á sama. Bróðir minn hafði 19
ára gamall farið sem björgunar-
sveitarmaður í f lóðið sem skall á
byggðina 1995 og sú reynsla sat svo
í honum að hann hætti sem björg-
unarsveitarmaður. Maður gat ekki
annað en hugsað út í þetta en bægði
þeim hugsunum svo frá sér og sagði
sjálfum sér að treysta garðinum,“
útskýrir Óli.
Anna bendir jafnframt á að fyrri
veturinn sem hún bjó fyrir vestan
hafi lítið snjóað og allar snjóflóða-
áhyggjur verið víðs fjarri. „Skíða-
svæðið var þá bara opið tvær helgar
svo manni fannst maður hálfsvik-
inn,“ segir Anna og Óli bætir við að
líklega hafi of margir skíðamenn
lagst á bæn því síðasti vetur var einn
sá snjóþyngsti í manna minnum.
Snjóaði stanslaust
En að örlagaríka deginum 14. janúar
síðastliðnum. Snjó hafði kyngt
niður í f leiri daga og ófært var á
milli Flateyrar og Ísafjarðar. Siggi,
sonur þeirra Önnu og Óla, hafði
dvalist hjá pabba sínum í tíu daga
þar til hann fékk far með snjótroð-
ara yfir svo hann var nýkominn
til Flateyrar þegar snjóflóðið féll á
heimili þeirra.
„Þetta var rosalegasta veður sem
maður getur ímyndað sér, snjóaði
stanslaust og var mjög hvasst. Mér
var farið að líða hálfilla enda veðrið
búið að standa yfir lengi og maður
sá ekkert út. Það var alltaf óvissu-
stig enda komst enginn til að mæla
snjóalög vegna veðurs, en hefði
verið lýst yfir hættustigi hefði ég
fært okkur neðar í byggðina.“
Anna segist hafa verið svolítið
ÞEGAR ÉG SÁ HÚSIÐ SEM
STENDUR UM TVEIMUR
METRUM FRÁ SNJÓFLÓÐA-
VARNARGARÐINUM STÓÐ
MÉR EKKI Á SAMA.
Óli
OPNUNARTÍMAR
UM HÁTÍÐIRNAR
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
85
2
76
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.
MUNUM EFTIR
GRÍMUNUM
Laugardagur 19. desember 11.00 - 18.00
Sunnudagur 20. desember Lokað
Mánudagur 21. desember 11.00 - 18.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Þriðjudagur 22. desember 10.00 - 20.00
Miðvikud. 23. des. – Þorláksmessa 10.00 - 22.00
Fimmtud. 24. des. – aðfangadagur 9.00 - 13.00
Föstudagur 25. des. – jóladagur Lokað
Laugardagur 26. des. – annar í jólum Lokað
Sunnudagur 27. desember Lokað
Mánudagur 28. desember 11.00 - 18.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Þriðjudagur 29. desember 11.00 - 18.00
Skeifan, Dalvegur og Skútuvogur 10.00 - 20.00
Miðvikudagur 30. desember 10.00 - 20.00
Fimmtud. 31. des. – gamlársdagur 9.00 - 14.00
Föstudagur 1. janúar – nýársdagur Lokað
Laugardagur 2. janúar 11.00 - 18.00
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33L A U G A R D A G U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0