Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 50
Það er allt ágætt að frétta af mér. Maður reynir að leita lausna þessa dagana og ég var
að stofna Bókabúð á hjólum fram
að jólum, til að koma til móts við
ástandið í samfélaginu. Fólk getur
núna fengið bækur eins og Stafa
karlana og Jólasveinasögu sendar
beint heim að dyrum. Það er upp
lagt fyrir þá sem vilja losna við raðir
í búðum og grímustandið. Þetta
kóf reynir á alla. Ef fólk vill nýta
sér þetta og fá bók getur það sent
mér skilaboð á fésbók og ég færi
því bókina heim að dyrum,“ segir
rithöfundurinn Bergljót Arnalds,
sem þeysir um höfuðstaðinn og
nágrenni á Bókabílnum um helgina
en líka til kaupenda í nærumhverfi
Eyrarbakka þar sem hún hefur
verið að gera upp gamalt hús.
„Þetta verður svona pínu eins og
ísbíllinn á sumrin, nema ég er að
selja fræðandi barnabækur. Þetta
er skemmtilegt tilraunaverkefni
sem ég vona að heppnist!“ segir
hún og brosir.
Sjálf er hún að lesa bókina The
Artist’s Way á aðventunni.
„Sú bók er algjört æði, en svo á
eftir að koma í ljós hvað leynist í
jólapökkunum og á náttborðinu
á jóladag. Íslensku höfundarnir
eru á góðum spretti núna og þar á
meðal margir vinir mínir. Um jólin
les líka dóttir mín fyrir mig barna
bækurnar því hún er að æfa sig í
lestri,“ segir Bergljót og hlakkar
mikið til jólanna.
„Jólin fyrir mér eru hátíð ljóss og
kærleika. Besta jólaminningin er
heima hjá ömmu minni Bergljótu
að taka upp sameiginlega pakka
með bróður mínum. Það var
ekki verið að spandera í þá
daga og ef pakkarnir voru af
stærri gerðinni, eins og fjöl
skylduspil, þá fengum við
það saman. Mér þótt vænt
um það að deila gjöf með
annarri manneskju. Það
tengdi okkur saman og
svo var svo gaman að
spila með allri fjölskyld
unni. Samveran er besta
jólaminningin.“
Dreymir um taktmæli
Um þessi jól kemur
fjölskyldan heim til
Bergljótar á aðfanga
dagskvöld.
„Ég veit bara að
jólin verða yndisleg,
hvernig sem þau
verða. Það eru kerta
ljós, góður matur, fólkið
sem ég elska og ástin
sem fullkomna mín jól.
Friðurinn að fá bara að
vera og „eiga“ ekki að
þurfa að gera eitthvað
eða fara eitthvert. Bara að
vera með sínum nánustu
á þessari stundu,“ segir
Bergljót.
Hana dreymir um takt
mæli í jólagjöf og kósí föt
til að skottast um í heima,
en annars bara bros.
„Dóttir mín verður í
sanseruðum grænum
kjól en ég á eftir að
finna minn. Það verður eitthvað
sem er þægilegt að vera í því ég
elda á aðfangadag. En það tilheyrir
jólastemningunni að fara í
fallegan kjól.“
Uppáhaldsjólamatur
Bergljótar er villibráð
og heimagerður ís, og
súkklaðibitakökur eru í
dálæti.
„Ég laga alltaf jóla
ísinn sjálf og legg
mikinn metnað í
hann. Geri fjór
falda uppskrift
en hún klárast
öll. Ísinn er
alltaf mjög
vinsæll. Ég baka
líka litlar marens
kökur með ísnum
og set stundum inn í
þær súkkulaðibita og
það er algjörlega tryllt.“
Jólasveinn kemur
Jóladagarnir þrír eru
Bergljótu allir hjart
fólgnir.
„Á aðfangadag fæ ég
fjölskylduna til mín, en
jóladagur er rólegur
og þá er hægt að
spila á píanóið og
lesa. Á annan í jólum
fæddist frændi minn
og mér þykir svo
vænt um hann. Þar
að auki er uppá
haldsjóladagurinn
þegar ég held jóla
ball fyrir alla fjöl
skylduna, en það
hefur alltaf verið
hápunktur jólanna. Þá kemur
jólasveinninn og við dönsum
í kringum jólatréð. Sá dagur
verður með einhverju öðru sniði
í ár býst ég við,“ segir Bergljót sem
hlakkar til að njóta hátíðarinnar í
allri sinni dýrð.
„Uppáhaldsjólabókin mín þegar
ég var krakki var Þegar Trölli stal
jólunum. Það var því mjög gaman
að sjá Grinch á sínum tíma. Mér
þykir mjög vænt um myndina
Jólaósk Önnu Bellu en ég talaði
inn fyrir Önnu Bellu og söng. Það
er mjög falleg og hugljúf jóla
mynd sem var sýnd í sjónvarpinu
á sínum tíma og síðar gefin út af
Bergvík. Hún hefur verið spiluð
fyrir hver jól því hún er í uppá
haldi hjá dóttur minni,“ segir
Bergljót.
„Uppáhaldsjólalögin eru svo
ótal mörg. Mér finnst mjög ljúft
þegar ég er beðin um að syngja Ó,
helga nótt á jólatónleikum. Það
er svo hátíðlegt. En þau eru mörg
svo góð og fer eftir stemningunni
hverju sinni.“
Lesið í barnalauginni
Bækur Bergljótar hafa verið gíf
urlega vinsælar en þær þekktustu
eru Stafakarlarnir, klukkubókin
Tóta og tíminn, Talnapúkinn og
bækurnar um Gralla gorm.
„Vinsælasta bókin í bókabílnum
er án efa Jólasveinasaga. Hún
fjallar um Grýlu og jólasveinana
og vesenið á þeim við að komast
til byggða. Svo er ég með baðbók
fyrir yngstu börnin sem hægt er
að taka með sér í sund því nú eru
laugarnar opnar. Ekki amalegt að
geta lesið í barnalauginni.“
Með bókabúð á hjólum fyrir jól
Rithöfundurinn Bergljót Arnalds ætlar að klæðast þægilegum jólakjól við eldamennskuna á
aðfangadag. Til jóla fer hún um borg og bý á Barnabókabílnum með vinsælar barnabækur sínar.
Maðurinn er snillingur í að koma sér í vanda og enn meiri snillingur í að græða
á honum. Hann lendir iðulega í
áföllum og vandræðum en í þetta
sinn er vandinn næstum óyfir
stíganlegur því á fyrstu blaðsíðu
kemur í ljós að hann vaknar á
ókunnum spítala í ókunnri borg
og man ekki neitt, ekki baun.
Hann man ekki hver hann er,
hvernig hann komst þangað né
sitt eigið andlit og þá er spurning
hvort svikahrappurinn Lavander
komi aftur í ljós eða líf hans muni
breytast til batnaðar,“ segir Jón
Páll, um gamanfantasíur sem nú
eru orðnar að þríleik.
„Á vegi Lavanders í leit að sjálfum
sér mæta honum alls konar erfið
leikar, þar á meðal mislukkaður
töframaður, tröll sem tala fornís
lensku, skrímsli, líka borgarstjórn
arkosningar og fjallmyndarlegur
sellóleikari. Atburðarásin er því
spennandi frá upphafi til enda.“
Hvítur hrafn í bókmenntum
Jón Páll segir hreinræktaðar
gamansögur fátíðar á Íslandi í dag.
„Gamanfantasía er hvítur hrafn
í íslenskum bókmenntum, en sú
tegund bóka hefur notið mikilla
vinsælda í útlöndum í meira en
fjörutíu ár. Hún hefur í gegnum
tíðina verið vettvangur fyrir háðs
ádeilu á samfélagið og þannig er
það í Lavanderbókunum líka;
ég pota í það sem er spaugilegt
í samtímanum, meðal annars
hernaðarbrölt, fjöldamótmæli,
borgarstjórnarkosningar, trú
mál, samfélagsmiðla og skyndi
bita,“ upplýsir Jón Páll sem setur
nútímalega hluti inn í miðalda
brag bókanna.
„Þá sér maður hvað samfélags
miðlar verða fáránlegir í umhverfi
miðalda. Á miðju torgi standa
stórir tréflekar með löngum papp
írsrenningum sem kallast sam
félagsmiðar og þar getur fólk skipst
á upplýsingum, uppskriftum, lesið
fréttir og haft samband við vini og
ættingja. Ef því líkar við hlutina
teiknar það læk því lækurinn
streymir og streymi er svo mikil
vægt fyrir samfélagsmiðla og þar
eru líka hauspokar fyrir þá sem
vilja setja inn nafnlausar athuga
semdir. Þegar Lavander spyr svo
af hverju fólk sé nú að þessu og tali
ekki frekar saman er svarið að það
sé svo gamaldags,“ segir Jón Páll
og hlær.
Hann hefur ekki glóru um
hvaðan hugmyndir hans um ævin
týri Lavanders spretta.
„Sögurnar verða til af sjálfu
sér. Lavander er svo lifandi og
skemmtileg persóna að þegar
maður setur hann í umhverfi er
eins og hann taki völdin. Karlinn
virðist búa innra með mér en er
þó algjör andstæða við sjálfan mig
og gerir hluti sem ég mundi aldrei
gera. Hann er mikil andhetja,
hrikalega óheiðarlegur og nýtir sér
allt til að næla sér í peninga.“
Hreinræktaðar fantasíur
Bækurnar um Lavander skrifar Jón
Páll fyrir fólk allt frá unglingsaldri
upp í fullorðna.
„Fantasíur eru ekki bara fyrir
börn og ég veit að fullorðnir
skemmta sér ekki síður vel yfir
Lavander. Mig grunar að flestir
brosi í gegnum alla bókina og
skelli upp úr af og til,“ segir Jón
Páll sem sjálfur skemmtir sér
stórvel við skrifin og hefði tekið
Lavanderbókunum fegins hendi á
unglingsárunum.
„Næsta bók verður um Lavander
ungan því hann byrjaði að svíkja
og pretta mjög ungur og því er
kjörið að skrifa um hann barna
bók þar sem börnum er kennt að
svíkja út peninga og leika á sam
borgarana,“ segir Jón Páll sposkur.
„Íslendingar er pínulítið alvöru
gefnir þegar kemur að bókmennt
um og skrifa mikið um dramatík
og glæpi. Það er ósk mín að á næstu
árum muni vegur fantasíunnar
aukast því í fortíðinni áttu Íslend
ingar mjög ríka sagnahefð og ekki
síst fantasíur því ein af okkar elstu
bókmenntum á miðöldum voru
riddarasögur sem voru hreinrækt
aðar fantasíur.“
Fantasíur ekki bara fyrir börn
Lavander í vanda er þriðja bók Jóns Páls Björnssonar um fagurkerann, athafnamanninn og svikar-
ann Lavander Petrillots. Hann segir gríðargaman að skrifa um Lavander sem er mikil andhetja.
Jón Páll Björns-
son hefur nú
skrifað þriðju
gamanfantasíuna
um svikahrapp-
inn Lavander.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Bergljót
Arnalds er
í jólaskapi
og kemur
með bækur
sínar heim
að dyrum.
MYND/BONNI
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R