Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 54
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 5. janúar. Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Matís leitar að öflugum og fjölhæfum leiðtoga til að leiða mannauðsmál
vinnustaðarins. Til að hlúa að og efla mannauðinn leitum við að einstaklingi sem hefur
áhuga á öllu því sem viðkemur málaflokknum. Mannauðsstjóri heyrir beint undir forstjóra.
MANNAUÐSSTJÓRI
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Yfirumsjón með stefnumótun og framkvæmd
mannauðsmála
• Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og
starfsfólks í mannauðsmálum
• Þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
• Viðhald jafnlaunavottunar
• Umsjón með masters- og doktorsnemum
• Umsjón með ráðningum, móttöku nýrra
starfsmanna og starfsþróun
• Upplýsingagjöf og greiningar um rekstur og
mannauðsmál
• Ábyrgð á þróun starfsumhverfis m.a.
aðbúnaði, öryggi og líðan
• Þátttaka í verkefna- og umbótahópum innan
Matís
• Umsjón með launasetningu ásamt miðlun
upplýsinga um kjaramál
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sem flestum hliðum mannauðsmála
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Umburðarlyndi og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Þekking á launavinnslu og kjaramálum
• Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu
sem rituðu máli
Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni
íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja
matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra
nýtingu umhverfisins með rannsóknum,
nýsköpun og þjónustu
Matís leggur áherslu á hagnýtar
rannsóknir sem auka verðmæti íslenskrar
matvælaframleiðslu, stuðla að öryggi og
heilnæmi afurða og sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda.
Hjá Matís starfar um 100 manna kraftmikill
hópur sem brennur fyrir því að finna nýjar
leiðir til að hámarka nýtingu hráefnis, auka
sjálfbærni, tryggja matvælaöryggi og efla
lýðheilsu.
Traust og fagleg
þjónusta
hagvangur.is
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R