Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 103
BÆKUR
Þegar heimurinn lokaðist – Pet-
samo-ferð Íslendinga 1940
Davíð Logi Sigurðsson
Útgefandi: Sögur útgáfa
Sjöldi síðna: 319
Þeir atburðir sem Davíð Logi Sigurðsson lýsir í bók sinni gerðust árið 1940, eða fyrir
drjúgum mannsaldri. Þá geisaði
stríð í heiminum og ferðir til og frá
Evrópu höfðu lagst af þess vegna.
Þá eins og nú voru Íslendingar um
allt og þrá þeirra að komast heim
var sterk. Römm er sú taug. Maður
gekkst því undir manns hönd að
leita leiða til að koma því í kring.
Afrakstur margra mánaða vinnu
varð sá að stærsta skip Íslendinga
á þeim tíma, Esjan, var send til Evr
ópu með vitund og samþykki stríð
andi fylkinga, til að sækja fólkið í
einni ferð.
Afráðið var að stefna þeim sem
vildu komast með skipinu til Pets
amo, norðarlega í Finnlandi. Fólk
dreif að frá meginlandi Evrópu
og Norðurlöndum og lagði sig í
hættur á leiðinni. Skipið sigldi svo
heim til Íslands með sinn dýrmæta
farm. Íslenska þjóðin fylgdist með
í andakt. Margir þeirra sem voru
um borð höfðu verið við nám ytra
og áttu eftir að láta til sín taka hér
á landi á áratugunum sem eftir
fylgdu.
Á þeim 80 árum sem liðin eru
frá þessari ferð Esjunnar hefur hún
að verulegu leyti fallið í gleymsk
unnar dá og því vel til fundið hjá
höfundi að halda henni til haga.
Það gerir hann vel. Dregur upp
mynd af aðdraganda ferðarinnar
og ekki síður eftirmálum. Fléttað
er inn í frásögnina örlagasögum
þeirra sem við sögu koma, um ástir,
vonir og vonbrigði. Þessi aðferð
höfundar glæðir frásögnina lífi
og gerir umfjöllun um sögulegan
atburð spennandi og vekur forvitni
lesandans.
Það liggur vel fyrir Davíð Loga að
skrifa og þetta mun vera hans fjórða
bók. Hann skrifar lipran stíl og
ferst vel að byggja upp frásögnina
þannig að hún verður spennandi
og áhugaverð. Frágangur bókar
innar er góður og það eykur gildi
frásagnarinnar ótvírætt sá fjöldi
mynda sem hana prýða. Þá er einn
ig sérlega forvitnilegt að renna yfir
lista farþeganna sem birtur er aftast
í bókinni. Ekki er um að villast að
mikil vinna hefur verið lögð í að
koma honum saman, þó höfundur
geri fyrirvara um áreiðanleika hans
og hversu tæmandi hann er.
Engum ætti að leiðast lestur þess
arar bókar.
Jón Þórisson
NIÐURSTAÐA: Spennandi og
læsileg bók um merkilegan kafla
Íslandssögunnar.
Merkileg sigling
Íslenski dansf lokkurinn hefur hlotið norsku menningarverðlaunin Subjektprisen.
Subjektprisen er ein virtasta
hátíð menningarársins í Noregi og
gefst almenningi kostur á að velja
þau verk sem þykja skara fram úr
á árinu. DuEls, samstarfsverkefni
Íslenska dansflokksins og Norska
dansflokksins Nagelhus Schia Pro
ductions, hefur hlotið verðlaunin
fyrir sviðslistaverk ársins.
Verkið, sem er eftir Ernu Ómars
dóttur og Damien Jalet, var frum
sýnt á hinu sögufræga Vigeland
safni Oslóborgar í febrúar 2020.
DuEls var unnið út frá sýningar
staðnum sem í þessu tilfelli var
myndlistarsafn Gustavs Vigeland
sem er einn þekktasti listamaður
Noregs. Höggmyndir Gustavs
fjalla gjarnan um ævihlaup mann
eskjunnar og var hann einn af boð
berum natúralismans á síðustu öld.
Uppselt var á allar sjö sýning
arnar sem sýndar voru í Vigeland
safninu. Stefnt er á að því að færa
DuEls til Íslands á næsta ári.
Dansflokkurinn fær sviðslistaverðlaun
Úr verðlaunaverki Íslenska dansflokksins. MYND/VALDIMAR JÓHANNSSON
ÞAÐ LIGGUR VEL
FYRIR DAVÍÐ LOGA AÐ
SKRIFA OG ÞETTA MUN VERA
HANS FJÓRÐA BÓK.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Mögnuð saga eftir Halldór
Armand um eitrað en fallegt
systkinasamband.
„Algjörlega mögnuð og vel stíluð saga ...“
Á S G E I R H . I N G Ó L F S S O N / S T U N D I N
„Fullmótaður skáldsagnahöfundur stígur
fram í besta verki sínu til þessa.“
Ó T T A R K O L B E I N S S O N P R O P P É / F R É T T A B L A Ð I Ð
„Feikilega vel heppnuð bók …
mikilfenglegur skáldskapur.“
Þ O R G E I R T R Y G G V A S O N / K I L J A N
„Absolút besta bók Halldórs.“
G Í S L I M A R T E I N N B A L D U R S S O N / M O R G U N K A F F I Ð
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 71L A U G A R D A G U R 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0