Fréttablaðið - 19.12.2020, Blaðsíða 110
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R78 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
LÍFIÐ 2020
Árið 2020 er óumdeilt versta og leiðinlegasta árið sem seinni tíma sögur fara af og því mætti ætla að lítið hafi verið að
frétta annað en dauði og djöfull
veirunnar í bland við belginginn í
Trump.
En hún snýst nú samt, jörðin, og
ljós og skuggar dönsuðu um óbæri
lega, léttleikandi tilveruna þar sem
ríka og fræga fólkið hélt áfram að
glansa, gera sig að fíf lum, hlæja,
gráta, elskast, lifa og deyja. Alveg
eins og við hin, um leið og þau sáu
okkur fyrir fréttunum sem allir lesa
án þess endilega að gangast við því.
Meghan, þá hertogaynja af Suss
ex, og Harry, sem þá skreytti sig
með nafnbótinni prins, voru áber
andi í lífsfréttaannál síðasta árs þar
sem hæst bar fæðingu frumburðar
ins, Archie.
Þau stimpluðu sig síðan hressilega
inn í annál þessa árs strax í janúar
byrjun þegar þau settu Bucking
hamhöll og sjálfsagt hálfa heims
byggðina á hvolf með yfirlýsingu
um að þau ætluðu að slíta sig frá
konungsfjölskyldunni, vinna fyrir
sér sjálf og standa fjárhagslega sjálf
stæð. 1. apríl var síðan formlegur
Mexitdagur og hjónin hafast nú við
í Los Angeles þar sem þau una hag
sínum ágætlega, þrátt fyrir nýlegan
skandal sem tengist samningi þeirra
við Netflix, sem ýfði heldur betur
páfuglsfjaðrir nánustu ættinga Har
rys með fjórðu seríu The Crown.
Leiðinlegt fólk í ljóma
Sigurganga The Crown hélt áfram
á Netflix og æstust nú heldur betur
leikar þar sem nú bættust Díana
prinsessa, móðir Harrys, og skör
ungurinn Margaret Thatcher við
persónugalleríið. Karli, sem verður
kannski kóngur, föður Harrys
og öðrum í fjölskyldunni er ekki
skemmt og þess hefur verið krafist
að Netf lix slái áberandi varnagla
um að þessir spennandi þættir um
meint óáhugaverðasta fólk sögunn
ar, séu mikið til skáldskapur.
Netf lix og aðrar streymisveitur
gerðu óhjákvæmilega gott mót á
árinu þar sem heimsbyggðinni var
meira eða minna gert að hanga
heima hjá sér og halda sig fjarri
ókunnugum og þeim sem ekki rúm
ast í lítilli jólakúlu hvers og eins.
Fyrsti stórsigur ársins hjá efnis
veitunni var heimildaþátturinn
Tiger King: Murder, Mayhem and
Madness, þar sem hvítt rusl og
ómerkilegt skítapakk fékk sínar
fimmtán mínútur af vafasamri
frægð.
Óvæntasti sjónvarpssmellur árs
ins sprakk síðan út síðla árs þegar
fólk, hálf sturlað af einangrun og
inniveru, sökkti sér á kaf í The
Queen´s Gambit og fékk í kjölfarið
skákdellu.
Ekki var það síðan til að draga úr
ánægjunni með þættina á Íslandi að
sigurskák Friðriks Ólafssonar gegn
heimsmeistaranum Mikhail Tal var
meðal annars tef ld í The Queen´s
Gambit og brá örstutt fyrir í sjötta
þætti, þar sem aðalpersónan Beth
Harmon tef lir hraðskáksfjöltef li
við þrjá félaga sína.
Þá þótti skáksérfræðingi Frétta
blaðsins ástæða til þess að hafa orð
á því að þættirnir slógu á þá lífseigu
klisju að skákmenn séu eingöngu
einhverjir furðufuglar. „Ég myndi
skjóta á að sjö prósent skákmanna
væru á einhverju rófi, 15 pró
sent félagslega bældir einfarar og
kannski í mesta lagi fjögur prósent
tjörugeðveikir. Það þýðir að 74 pró
sent skákmanna eru fullkomlega
eðlilegt fólk og því er komið til skila
í þáttunum,“ sagði Björn Þorfinns
son í umfjöllun sinni um þættina.
Sníkjudýr í Hollywood
Kvikmyndabransinn náði að halda
Óskarsverðlaunaárshátíð sína í
febrúar rétt áður en COVID19 sló
bransann bylmingshöggi, þegar
kvikmyndahúsum um víða veröld
var lokað og frumsýningum stór
mynda á borð við James Bond
myndarinnar No Time To Die,
Dune og Black Widow var slegið
á frest. Bond átti að byrja í apríl
2020 en vonir standa nú til þess að
myndin komi í bíó í þeim mánuði
2021.
Ýmis undur og stórmerki gerðust
á annars heldur dæmigerðri verð
launahátíðinni þar sem hæst bar að
myndin Parasite frá SuðurKóreu
sópaði til sín helstu verðlaunum,
meðal annars sem besta myndin.
Líf í tuskunum á leiðinlegasta árinu
Fréttaannáll ársins 2020 hljómar álíka spennandi og kasúldinn og ódagsettur hnoðmör Fiskikóngsins þar sem af
árinu leggur fúlan daun dauða og depurðar í skugga heimsfaraldursins. Eins og veruleikafirrtur stórlax á amfeta-
mínsterum fer lífið þó alltaf á móti straumnum þannig að lífsfréttaannáll ársins er jafn bakkafullur og í góðæri.
Meghan og Harry, nú óbreyttir borgarar með helling af fríðindum, eru í
öndvegi lífsfréttaannála annað árið í röð, enda greinilega áhugaverðasta
fólkið í fjölskyldu sem heldur fyrirhafnarlítið vinsælum Netflix-þáttum
gangandi þrátt fyrir meint genetísk leiðindi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Síðast þegar fréttist var villi-
dýrabóndinn og tígurkóngurinn
Joe Exotic í fangelsi, en óneitan-
lega huggun gegn ýmsum harmi
að til stendur að Nicholas Cage
leiki hann í þáttum byggðum á
ruglinu í kringum hann.
Konungsfjölskyldan er æf yfir hvernig The Crown afgreiðir hjónaband
Díönu, prinsessu fólksins, og prinsins af Wales sem kemur heldur illa út.
Netflix-þættirnir The Queen´s
Gambit slógu í gegn í samkomu-
hremmingunum og kölluðu
skákdellu yfir heimsbyggðina.
Johnny Depp fór sneypuför fyrir
breska dómstóla þar sem hann
höfðaði meiðyrðamál gegn
götublaðinu The Sun, fyrir að
hafa eftir Amber Heard að hann
sé heimilisofbeldismaður, en
ásakanir hafa gengið á víxl milli
hjónanna fyrrverandi undan-
farin misseri. Sýknudómurinn
yfir The Sun hafði strax þau áhrif
að Warner Bros. bað leikarann
um að segja skilið við mynda-
bálkinn Fantastic Beasts. Hann
heldur þó launum sínum fyrir
þriðju myndina sem hann mun
ekki leika í, en Daninn Mads
Mikkelsen mun leysa hann af.
Þann
11. mars fékk
skíthællinn Harvey
Weinstein loks einhvers
konar makleg málagjöld, eftir að
#MeToo skall á honum af fullum
þunga, þegar hann var dæmdur
í 23 ára fangelsi fyrir nauðgun og
kynferðislega áreitni. Dómnum var
víða fagnað í Hollywood og hann
græddi enga samúð á orðrómi
um að hann hefði smitast af
COVID-19 um þetta leyti.
Hermt er að Pedro
Pascal, sem leikur
The Mandalorian í sam-
nefndum þáttum, sé að drepast
í bakinu við að bera Star Wars
einn á herðum sínum. Þættirnir
héldu áfram að gera stormandi
lukku og Disney hefur tilkynnt að
á næstu árum megi eiga von á tíu
nýjum Stjörnustríðsþáttum á
streymisveitunni Disney+.