Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 120
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Vínkælar
Fyrir heimilið
FRÁBÆRT ÚRVAL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
E L D H Ú S A L L R A L A N D S M A N N A
Verslun í Kringlunni
Beint í bílinn
úr lúgunni
Ég hef oft fjallað um jólakvíð-ann sem læsir klóm sínum í þjóðina á þessum árstíma.
Jólin hafa skollið á af fullum þunga
með öllum sínum væntingum og
kröfum og margir kiknað undan
álaginu. Flestallir landsmenn tóku
þátt í keppninni um fullkomið
helgihald með fallega skreyttu
íslensku grenitré, rjúpum, messu
og glöðum börnum á bókajólum.
Nágrannar kepptu í útiskreyt-
ingum. Menn átu skötu með tólg
á Þorlák með dönskum jólabjór
og ákavíti. Jólasveinar úr íslensku
þjóðtrúnni ásamt vinnufélögum
sínum frá kóka kóla gengu af
göf lunum af gleði. Rithöfundar
lásu upp úr öllum fimm stjörnu
bókunum sínum. Jólatónleikar á
hverjum degi á aðventunni. Eng-
inn fór í jólaköttinn enda keyptu
sér allir nýja f lík fyrir jólaboðin.
Nú er öldin önnur á þessum
pestartímum.
Ekkert ber á jólastressi. Enginn
gerir lengur kröfu um fullkomin
jól. Það er allt í lagi að fresta hrein-
gerningum, kökubakstri og jóla-
gjafainnkaupum til vors. Yfirvöld
banna bæði jólaboð og ferðalög
milli landshluta mörgum til mik-
ils léttis. Gamla fólkinu verður
ekki hleypt út af elliheimilum
svo að ekki þarf að hafa áhyggjur
af afa og ömmu. Engir venjulegir
jólatónleikar í Hörpu. Fjölda-
takmarkanir í verslunum þýðir
að jólapökkum fækkar undir
gervijólatrénu. Enginn fer til Tene
og jólasveinar eru atvinnulausir,
pirraðir og þunglyndir. Messur
og allar gestakomur falla niður
svo að margir munu klæðast
gömlum náttfötum yfir öll jólin.
Engir ferðamenn verða á landinu
um áramótin svo að menn þurfa
ekki að skjóta upp f lugeldum.
Brennur verða bannaðar. Þjóðin
getur hlakkað til stresslausra jóla
og áramóta í boði kóvíð og sótt-
varnayfirvalda. Gleðileg hvíldar-
og letijól!
Jólakvíði
Verslun opin 10-20– IKEA.is
IKEA Bakarí opið 10-18 – Sænska matarhornið og IKEA Bistro opið 10-20
TILBOÐ
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020
+
+
+
+
+
+
+
+
Auðveldaðu matarveisluna með góðum áhöldum og ílátum. Með réttum búnaði getur það verið hrein unun að
elda veislumat. Ef afgangarnir eru vel varðveittir í góðum matarílátum getur þú tekið þér frí frá eldamennskunni
næstu daga eða leyst veislugestina út með bragðgóðum gjöfum. Í IKEA fæst úrval af vönduðum eldhúsáhöldum,
pottum og pönnum og sniðug matarílát í öllum stærðum og gerðum. Líttu við, við tökum vel á móti þér!
Ilmurinn úr eldhúsinu ...
+