Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 22
Ekki þessa endalausu neikvæðni
Makríll. Já, því miður þá þurfum við ekkert að hugsa um þann fisk lengur.
Því nú er orðið ljóst að enginn makrílvertíð verður þetta sumar, árið 2020.
Mikil áfall fyrir margar útgerðir héðan því menn voru búnir að græja
bátanna sína og voru tilbúnir.
Það er samt einhvern veginn
þannig að það er voðalega mikið
um neikvæðar fréttir af sjávarút-
vegi frá Suðurnesjum, t.d kviknaði
í netabátnum Langanesi GK sem
Hólmgrímur gerir út, sem betur
fór þá urðu ekki miklar skemmdir
á bátnum og komst eldurinn t.d.
ekki í mannaíbúðir eða þá aftur í
bátinn þar sem netin voru geymd.
Báturinn er ekki kominn á veiðar
en það styttist í það – og það má
geta þess að nýr skipstjóri verður
núna með Langanesi en það er Jón
Árni Jónsson.
Förum í hinn stóra bátinn sem
Hólmgrímur gerir út, Grímsnes
GK. Báturinn lenti í mjög alvarlegri
vélarbilun í febrúar síðastliðinn
og var það nokkuð mikil vinna að
laga vélina en báturinn er klár og
kominn á veiðar, Sigvaldi sonur
Hólmgríms er skipstjóri á bátnum.
Grímsnes GK fór beint í ufsann og
hefur verið á veiðum í kringum
Vestmannaeyjar.
Þriðji stóri netabáturinn, Er-
ling KE, er búinn að vera á grá-
lúðuveiðum í allt sumar og hefur
landað um 340 tonnum af grá-
lúðu sem mest hefur verið landað
á Vopnafirði. Núna þegar þessi
pistill er skrifaður þá er Erling KE
að nálgast Njarðvík.
En já, neikvæðar fréttir frá Suð-
urnesjum eru eins og fram kemur
að ofan nokkrar en kannski sú
neikvæðasta og kannski sú sorg-
legasta tengist báti sem var við-
loðandi í útgerð frá Suðurnesjum
í hátt í 50 ár.
Þarna er ég að tala um bátinn
sem er með skipaskrárnúmerið
288. Sá bátur hét fyrst Árni Geir
KE og var smíðaður árið 1959.
Báturinn var seldur árið 1970 og
fékk þá nafnið Þorsteinn Gíslason
KE en árið 1975 fékk báturinn
nafnið Þorsteinn Gíslason GK og
með því nafni var hann gerður út
frá Grindavík í 33 ár eða fram til
ársins 2008 þegar báturinn var
seldur, ásamt kvóta, til Horna-
fjarðar, Skinney Þinganes hirti
kvótann af bátnum og seldi síðan
bátinn áfram kvótalausan.
Árið 2010 fékk þessi bátur
nafnið Jökull SK og stundaði
rækjuveiðar fram í maí árið 2014
þegar hann hætti veiðum og síðan
þá hafði báturinn legið við bryggju
í Hafnarfirði.
Alla þá tíð sem að þessi bátur
réri frá Suðurnesjum, og lengstan
tímann í Grindavík undir nafninu
Þorsteinn Gíslason GK, var bát-
urinn mjög fengsæll og gekk útgerð
hans mjög vel þau ár sem hann var
gerður út.
Af hverju er ég að minnast á
þennan bát og af hverju myndi það
flokkast undir það neikvæða eða
sorglegast?
Jú, því 17. ágúst síðastliðinn kom
leki að bátnum þar sem hann lá
við bryggju í Hafnarfirði og sökk
hann við bryggju þar – og þegar
þessi pistill er skrifaður þá liggur
báturinn á botni hafnarinnar í
Hafnarfirði.
Við skulum samt ekki hafa
þennan pistil endalaust nei-
kvæðan, það er þó jákvætt að neta-
veiðin er búinn að vera mjög góð
núna í ágúst en Bergvík GK, Sunna
Líf GK, Hraunsvík GK, Halldór Afi
GK og Maron GK hafa allir fiskað
mjög vel. Halldór Afi GK hefur
mest komist í 3,9 tonn, Sunna Líf
GK mest í 6,4 tonn, Hraunsvík GK
mest í 4,3 tonn, Bergvík GK mest
í 6,9 tonn og Maron GK mest í 8,1
tonn. Mjög góður afli.
Allir netabátarnir hafa lagt netin
sín í Faxaflóanum og landað í
Keflavík og Njarðvík.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
22 // aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.