Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 5
norðurslóðum til landsins,“ segir
Þráinn.
Með umræddu húsi stórbætast
möguleikar á hvers kyns viðhalds-
verkefnum sem annars eru keypt
erlendis. Svo stór og yfirbyggð kví
ásamt landi og aðstöðu í og við
Njarðvíkurhöfn skapar skilyrði
fyrir skipaþjónustuklasa með mörg
hundruð störfum.
Þjónustuklasinn mun að sögn
Þráins leggja áherslu á þjónustu
við skip á norðurslóðum, íslensk
sem erlend, til viðhalds, breyt-
inga og endurnýjunar. Auknar
kröfur um betri mengunarvarnir í
skipum, skipti yfir í vistvæna orku
og lækkun orkukostnaðar, skapi ný
tækifæri á þessu sviði.
Hugmynd Skipasmíðastöðvar
Njarðvíkur gengur út á að nýta sér-
þekkingu á margvíslegum sviðum
sem safnast hefur upp hjá vél- og
stálsmiðjum víða á landinu. Öflug
málvinnslufyrirtæki og -smiðjur
fengju stóraukin tækifæri í verk-
efnum og þróun. Þannig yrði
þjónustuklasinn byggður á fjölda
fyrirtækja, hverju með sína sér-
hæfingu.
– En hvað mun uppbyggingin
taka langan tíma?
„Þjónustuklasinn getur tiltölulega
fljótt skapað á annað hundrað
störf og samfélaginu umtalsverðar
tekjur til framtíðar. Bein vinna í
hinni nýju kví kallar á 70 til 80
heilsársstörf auk óbeinna starfa.
Varlega áætlað er gert ráð fyrir
að verkefni fyrst um sinn tengd
kvínni skapi þannig um 120 störf.
Ekki er óraunhæft að ætla að á
fáum árum gæti orðið til í Njarðvík
þekkingarklasi í viðhaldi og þjón-
ustu við skip sem teldi um 250
til 350 bein og óbein störf,“ segir
Þráinn en áætlaður framkvæmda-
tími verkefnisins er þrjú ár frá því
að fjármögnun þess liggur fyrir.
Skilningur frá yfirvöldum
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri, segir að búið sé að ræða við
yfirvöld og þingmenn og góður
stuðningur sé við málið en ríkið
kemur að byggingu varnargarða
sem er forsenda þess að hægt
sé að fara í byggingu kvíarinnar.
„Þetta er mjög jákvætt og skapar
fjölda starfa. Frumkvæðið kom frá
Skipasmíðastöð Njarðvíkur og það
er einmitt það sem við hjá Reykja-
nesbæ höfum verið að leita eftir og
viljum sjá, að frumkvæðið komi frá
öðrum aðilum en sveitarfélaginu.
Verði þetta að veruleika sem við
getum við bjartsýn um erum við
líka að bæta við fjölbreytileikann
í atvinnulífinu á svæðinu. Það er
nauðsynlegt og hefur komið ber-
lega í ljós í nú í heimsfaraldri þar
sem Suðurnesin hafa átt undir
högg að sækja þar sem svo mörg
störf eru í flugstöðinni og hennar
nágrenni,“ segir Kjartan Már.
MIKILVÆGT FYRIR
REYKJANESHÖFN
Halldór Karl Hermannson,
hafnarstjóri Reykjaneshafnar,
segir að þetta sé frábært verk-
efni og muni hafa mikla þýðingu
fyrir rekstur hafnarinnar. Þarna
erum við að styrkja starfsemi
sem þegar er til staðar og gæti
skilað okkur bættum rekstri í
framtíðinni. Rekstur hafnarinnar
hefur lengi verið þungur og upp-
bygging í Helguvík ekki gengið
eins og stefnt hefur verið að.
Þá er ekki alltaf á vísan að róa í
sjávarútvegnum, t.d. þá hefur
makríll sem hefur skilað höfn-
inni all nokkrum tekjum undan-
farin fimm ár ekki látið sjá sig
á Suðurnesjum í sumar. Við
verðum því að horfa til nýrra
tækifæra og þarna er tækifæri
sem lofar góðu, ekki eingöngu
fyrir höfnina heldur samfélagið
í heild.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Páll Ketilsson
pket@vf.is
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 5