Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 8
Rokkveislunni miklu frestað
– Frumsýnd í lok september!
Undanfarin ár hefur makríll veiðst á handfæri
í miklu mæli í höfnum og við strandlengju
Reykjanesbæjar. Handfærabátar hafa skóflað
makrílnum innbyrðis og stangveiðimenn
sömu leiðis af bryggjunum. Þessu hefur fylgt
mikið líf á hafnarsvæðinu, handfærabátarnir
beðið í röðum eftir löndun og stangveiðimenn
kastandi línu þvers og kruss í kringum þá.
Í ár bregður svo við að makríllinn lætur ekki
sjá sig og þeir handfærabátar sem voru tilbúnir
í slaginn eru komnir á aðrar veiðar í dag.
Samtals var fjórum tonnum af makríl landað
í heildina á síðustu vikum í sjö löndunum í
Keflavík.
„Öðruvísi mér áður brá en árið 2016, þegar
mest var um makríl, var 5.226 tonnum landað
í 922 löndunum,“ segir Halldór Karl Her-
mannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, í
samtali við Víkurfréttir.
Á myndinni hér að neðan er yfirlit landaðs
magn af makríl hjá Reykjaneshöfn síðastliðin
níu ár ásamt fjölda landana handfærabáta á
makríl viðkomandi ár. Þar sést að frá topp-
árinu 2016 hefur línan legið jafnt og þétt niður
á við.
Fjórum tonnum
af makríl landað í
Keflavík – voru 5.226
tonn árið 2016
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Hertar sóttvarnarreglur vegna Covid-19 koma í veg
fyrir að ekki tekst að halda tónleika á Ljósanætur-
helginni. Stefnt er á að frumsýna Rokkveisluna miklu
föstudagskvöldið 25. september ef búið verður að
aflétta þeim fjöldatakmörkunum sem nú eru í gildi.
Tvær sýningar fylgja svo í kjölfarið laugardaginn 26.
september.
Sýningar verða því á eftirfarandi tímum:
Frumsýning: Föstudaginn 25. september kl. 20.
(var áður 2. september kl. 20)
Önnur sýning: Laugardaginn 26. september kl. 16.
(var áður 6. september kl. 16)
Þriðja sýning: Laugardaginn 26. september kl. 20.
(var áður 6. september kl. 20)
„Við biðjum alla þá sem búnir voru að kaupa miða
á áður auglýstar dagsetningar velvirðingar á þeim
óþægingum sem þessar breytingar kunna að valda.
Þeir sem hafa keypt miða og geta ekki nýtt sér nýja
sýningartíma geta að sjálfsögðu fengið endurgreitt.
Eru þeir beðnir að hafa samband við Tix.is vegna
þess,“ segir í tilkynningu frá tónleikahöldurum.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.