Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 78
Atvinnuleysisbætur og afkoma heimila
Samkvæmt nýjustu tölum Vinnumálastofnunar er atvinnuleysi
á Suðurnesjum 16,5%, það hæsta á landinu. Atvinnuleysi á
landinu öllu er 8,8%. Á Suðurnesjum er atvinnuleysi meðal karla
14,8% en 19% meðal kvenna. Augljóslega ætti ríkisstjórnin og
þingmenn svæðisins að leita logandi ljósi að lausn á vanda þeirra
sem misst hafa vinnuna. Og gæta sérstaklega að Suðurnesjum
sem verða allra verst úti.
Hver sá sem lendir í því að missa vinnuna
verður fyrir miklu áfalli og það getur dregið
dilk á eftir sér. Langtíma atvinnuleysi hefur
ekki aðeins slæmar fjárhagslegar afleiðingar
heldur einnig félagslegar. Atvinnuleitendur í
árangurslausri atvinnuleit þurfa því ekki aðeins
fjárhagslegan stuðning heldur einnig andlegan
stuðning. Gæta þarf sérstaklega að börnum at-
vinnulausra.
Við sjáum ekki fyrir endann á afleiðingum
faraldursins vegna COVID-19. Vonandi gengur
hann yfir sem allra fyrst. Eitt vitum við þó.
Þau sem missa vinnuna og fara á atvinnu-
leysisbætur verða að fá aukinn stuðning frá
stjórnvöldum. Stjórnvöld virðast hafa mikinn
skilning á stöðu fyrirtækja í vanda og á að þau
þurfi að búa við einhvern fyrirsjáanleika í formi
stuðnings frá ríkinu. Það þurfa heimilin líka þó
minna hafi borið á skilningi ríkisstjórnarinnar
á þeirri þörf.
Tekjufall
Strax þegar fólk fer af uppsagnarfresti og á at-
vinnuleysisbætur sér það fram á fjárhagsvanda
og erfiðleika við að ráða við skuldbindingar, t.d.
í formi húsnæðislána. Það sér líka fram á að eiga
erfitt með að leyfa börnum sínum að taka þátt
í félagsstarfi sem kostar peninga. Þegar þriggja
mánaða launatengdu tímabili lýkur magnast
vandinn.
Meðallaun í landinu eru um 800.000 krónur
á mánuði. Tekjutengdu atvinnuleysisbæturnar
sem fólk á rétt á í þrjá mánuði verða ekki hærri
en 456.404 krónur á mánuði og grunnatvinnu-
leysisbætur sem taka við eru 289.510 krónur á
mánuði. Augljóst er að heimili atvinnulausra
verða fyrir gríðarlegu tjóni, með tilheyrandi
afleiðingum. Þetta hefur svo margfeldisáhrif í
samfélaginu því að um leið verður eftirspurn í
hagkerfinu minni.
Tekjur sveitarfélaganna á Suðurnesjum hafa
dregist saman, margfalt meira en í öðrum lands-
hlutum. Sveitarfélögin verða að geta komið til
móts við barnafjölskyldur og sinnt lögbundnu
hlutverki sínu um velferð íbúa. Það munu
þau ekki geta nema með stuðningi ríkisins ef
ástandið varir lengur en nokkrar vikur til við-
bótar.
Dreifum byrðunum
Eigum við að láta þau sem voru svo óheppin
að missa vinnuna vegna faraldursins taka allt
tjónið á sig? Eiga fjölskyldur þeirra að líða fyrir
faraldurinn? Nei, auðvitað ekki. Við eigum að
dreifa byrðunum. Í þannig samfélagi viljum við
búa.
Við þurfum strax að lengja réttinn til tekju-
tengdra atvinnuleysisbóta. Við þurfum líka
að lengja réttinn til grunnatvinnuleysisbóta
og hækka þær um leið. Að lágmarki ætti að
lengja launatengda tímabilið í sex mánuði úr
þremur og réttinn til atvinnuleysisbóta um ár
til bráðabirgða. Grunnatvinnuleysisbætur ættu
að hækka í það minnsta að 95% af lágmarks-
launum.
Ef þau sem treysta á lífeyrisgreiðslur frá
Tryggingastofnun og einstaklingar á atvinnu-
leysisbótum fengju hærri greiðslur frá ríkinu
myndi eftirspurnin í hagkerfinu aukast um leið,
enda ekki rými fyrir sparnað á þeim bæjunum.
Tímabundnar eingreiðslur til viðbótar gætu
ekki aðeins komið til móts við fjárhagsvanda
heimila heldur einnig aukið eftirspurn sem
aftur verður til þess að störfum fjölgar.
Leitum lausna
Ég mun leggja fram frumvarp í næstu viku
um hærri atvinnuleysisbætur og framlengingu
á launatengda tímabilinu ef ríkisstjórnin gerir
það ekki þegar að þing kemur saman 27. ágúst.
Fráleitum málflutningi hægrimanna um að ef
bæturnar hækki vilji fleiri draga fram lífið á
atvinnuleysisbótum, vísa ég til föðurhúsanna.
Eða dettur einhverjum í hug að um 22.000
manns sem nú eru atvinnulaus hér á landi hafi
valið sér það hlutskipti? Þvílík fásinna!
Hvað þarf til svo ríkisstjórnin vakni og taki
eftir vanda Suðurnesjamanna? Strax þarf að
slá á bráðavanda heimila með hærri atvinnu-
leysisbótum en einnig verður að leita lausna í
atvinnumálum svæðisins.
Oddný G. Harðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi.
78 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.