Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 40
Uppbyggingin á Siglufirði er
skemmtileg og verið er að gera upp
gömul hús þar, alltaf líf og fjör þar,
tónleikar á Rauðku á hverju kvöldi
með flottum tónlistamönnum og
það var svo mikið um fólk þegar
við vorum, við ætluðum út að
borða á öðru hvoru Hótelanna en
því miður allt upppantað fram í
næstu viku, var okkur tjáð, reynum
síðar.
Heimsóttum Dimmuborgir á Mý-
vatni og þar er búið að útbúa góða
göngustíga en þangað höfðum við
ekki komið í mörg ár. Í hrauninu
sér maður marga kynjakvisti og
gáfum okkur góðan tíma í að rölta
þar.
– Fannst þér margir vera á ferli
á þem slóðum þar sem þú varst
á ferðinni?
Fyrir svona þremur, fjórum árum
fórum við um Suðurlandið, t.d.
að Seljalandsfossi, Dyrhólaey og
Reynisfjörum og Skógafossi, og
það var svo mikið af bílum og
margt fólk að maður hafði engan
áhuga á að skoða sig um.
Núna fórum við á þessar perlur
okkar og nutum þess að skoða
okkur um en það var fólk á þessum
stöðum, misjafnlega margt, bæði
útlendingar og Íslendingar, þægi-
legur fjöldi fannst okkur.
Okkur fannst t.d. á Egilsstöðum
vera mikið um útlendinga en við
vorum einmitt þar á ferðinni
þegar Norræna var að koma frá
Danmörku og með henni komu þó
nokkuð margir á húsbílum og við
urðum vör við marga útlendinga
á erlendum húsbílum á vegum
landsins.
– Hver er kosturinn að ferðast
innanlands?
Maður veit að hverju maður
gengur, þekkir sig mjög vel víða
og er engum háður. Svo er bara
Ísland svo fallegt land og þú sérð
alltaf eitthvað nýtt þó þú sért búin
að fara margsinnis um landið þitt.
Hér eigum við heima.
– Hefur þú ferðast mikið innan-
lands?
Já, ég hef ferðast mjög mikið
um landið mitt og ferðast alltaf
innanlands á sumrin. Fyrst þegar
maður var að ferðast ungur og með
börnin, þá var verið í tjaldi en það
var nú ekki farið nema svona um
nokkrar helgar og í mesta lagi í
Rölt um á Siglufirði. Þar er margt að sjá eins og sjá má á
myndunum hér í opnunni. Hér að neðan er svo Benz af árgerð
1972 sem hefur verið gerður upp og er til sýnis í bænum.
40 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.