Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 36

Víkurfréttir - 19.08.2020, Blaðsíða 36
– Hvert var ferðinn heitið í sumarfríinu í ár? Ákveðið var að fara austur á land í sumarfríinu og farið var suður- leiðina austur og svo norðurleiðina til baka. – Hvaða ferðamáta notaðir þú? Ferðast var á húsbíl en ég hef átt húsbíl frá árinu 1999 og er þetta þriðji bílinn sem ég á. – Var ferðalagið um landið skipulagt fyrirfram eða var fríið látið ráðast af „veðri og vindum“? Það var búið að fylgjast með spánni svoldið áður en átti að leggja í hann og leist okkur ágæt- lega á að fara austur á bóginn og langaði mig til að fara til Norð- fjarðar en þar liggja rætur mínar í móðurætt. En ekkert skipulagt bara keyrt af stað og svo kemur þetta bara af sjálfu sér, hvar maður stoppar, hvað er skoðað og hversu lengi dvalið er á sama stað, veðrið hefur dálítið mikið um það að segja. Það er nú alltaf skemmtilegra að ferðast um landið ef maður er svo heppinn að fá gott veður. Byrjað var að fara um Suður- landið því þar eru svo margar fal- legar perlur. Við byrjuðum fríið á Hellu og fórum svo á fallegu staðina sem eru á leiðinni til Víkur í Mýrdal og við nutum þess að labba um fal- legu perlurnar okkar á þessari leið gistum þar eina nótt og héldum svo til Kirkjubæjarklausturs þar sem við stoppuðum í tvo daga. Heimsóttum Höfn í Hornarfirði, keyrðum þar um plássið og skoð- uðum m.a. Steinagarðinn sem er kynningarreitur fyrir jarðfræði svæðisins og þar eru kynntar nokkrar bergtegundir Suðaustur- lands með hressilega stórum grjót- hnullungum og grettistökum. Þessi steingarður er við nátt- úrustíginn, sem er göngustígur fyrir heimamenn og liggur frá Ós- landshæð og inn að golfvellinum á Höfn, þessi gönguleið er rómuð fyrir fallegt útsýni yfir fjörðinn til Vatnajökuls. Ísland er svo fallegt land og þú sérð alltaf eitthvað nýtt Netspj@ll Soffía G. Ólafsdóttir segir lesendum Víkurfrétta frá sumarfríinu innlands árið 2020 en hún og Ólafur Björg- vinsson fóru hringinn í kringum Ísland á húsbíl í sumar. Óli við Seljalandsfoss. 36 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.